17.12.1987
Sameinað þing: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2463 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)
Greinargerð utanrrh. um byggingu flugstöðvar
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að halda hér mjög langa ræðu. Ég hefði gjarnan viljað og við í Borgarafl. að þessi umræða hefði verið á næsta ári því að svo stutt er til jóla að það hefði verið kannski mikilvægara að klára önnur þingstörf. Ekki hleypur þetta mál frá okkur.
En það sem fékk mig fyrst og fremst til að koma hér upp voru bæði ummæli hæstv. samgrh. og hæstv. forsrh. varðandi varnar- og öryggismál og hernámsandstæðinga. Ég hef orðið var við að eitt blað hér í borginni, sem nefnt er Morgunblaðið, hefur gjarnan notað öll tækifæri til að snúa út úr fyrir okkur í Borgarafl. varðandi stefnu okkar í öryggis- og varnarmálum. Ég vil ekki að það gefi sér enn eitt tilefnið til að halda því fram að við séum hernámsandstæðingar eins og er verið að gefa í skyn í þessari umræðu því að við viljum fjalla um málin á málefnalegan hátt en ekki vera með útúrsnúninga eins og það blað hefur verið með nokkrum sinnum í þessum málum. Núna síðast fyrir tveimur dögum við fjárlagaumræðu.
Þessi stöð og staðsetning hennar er til mikilla bóta bæði hvað varðar samskipti við bandaríska herinn, flug til útlanda og aðbúnað farþega. Hitt er annað mál að hér hafa orðið mikil mistök á í kostnaði. Það eru menn sammála um. Það hefur verið farið langt fram úr þeim áætlunum sem fyrir hendi eru.
Páll Pétursson, hv. 1. þm. Norðurl. v., kom hér réttilega inn á í sínu máli, að í 41. gr. stjórnarskrárinnar stendur: „Ekkert gjald má reiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.“ Þessar heimildir hafa ekki verið fyrir hendi varðandi þær framkvæmdir sem hér er um að ræða og er alveg ljóst að þær hafa farið stórlega fram úr því sem menn áttu von á.
Það hefur verið hart deilt um hver sé ábyrgur. Ég ætla ekki að gera það að umræðuefni hér, en eitt vil ég segja, að það hafa margir verið gerðir ábyrgir fyrir minni sakir en þetta. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn. Menn hafa jafnvel verið látnir víkja, bæði úr flokkum og störfum, fyrir minni sakir.
Myndhöggvarafélag Reykjavíkur hefur skrifað hæstv. fjh.- og viðskn. bréf. Þar er rætt um þessi mál og með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa það:
„Undanfarin ár hafa farið fram ýmsar samkeppnir um opinber listaverk á vegum opinberra aðila. Stærst og veglegust þessara samkeppna var tvímælalaust samkeppnin um útilistaverk við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Þegar höfð er í huga sú reisn sem einkenndi framkvæmd samkeppninnar vekur nokkrar áhyggjur að svo virðist sem tekið hafi allan vind úr framkvæmdum nú þegar valin verk eru komin af undirbúningsstigi og sjálf uppsetningin skyldi hefjast.“
Enn fremur segir í þessu bréfi: „Staða þessa máls er sú að verk eftir tvo listamenn voru valin til uppsetningar í maí 1986. Gengið var frá samningum við listamennina, Rúrí í apríl 1987, Magnús Tómasson í ágúst 1987. Samkvæmt samningi um fyrra verkið, sem er Regnboginn eftir Rúrí, voru öll gögn af hálfu listamannsins og verkfræðistofu tilbúin í apríl, útboði og uppsetningu lokið 22. apríl og því ekkert til fyrirstöðu að framkvæmdir hæfust. Samkvæmt samningi aðila skuldbindur listamaðurinn Rúrí sig til að inna verkið af hendi á árinu 1987 og í öllum umræðum hefur verið miðað við septemberlok. Í samningi við Magnús er gert ráð fyrir að verki verði lokið árið 1988.
Eftir opnun útboða virðist sem máttleysi hafi lagst í framkvæmdaaðilana. Ríkisvaldið virðist hika við framhald þessa máls sem annars hefur verið svo vel staðið að. Ofangreint vekur sérstaka furðu í ljósi þess að á sama tíma voru verktaka um blómaskreytingar innan flugstöðvarbyggingarinnar settar þröngar tímaskorður til uppfyllingar verksamnings.“
Ég vil rétt benda á að uppsetning þessa verks kostaði ekki meira en opnunarveislan og hefði verið ánægjulegt að standa við samning við þessa listamenn því að það þarf líka að standa við samninga við listamenn ekki síður en við aðra verktaka. Ég beini því til þeirra sem nú ráða ferðinni að listamönnunum verði gert kleift að ljúka verkinu eins og tilskilið er í samningi. En nóg um þetta.
Ég vil að lokum segja að það er áhyggjuefni hvernig fjármál hafa oft þróast í framkvæmdum hjá opinberum aðilum. Þau virðast hafa þá tilhneigingu að fara langt fram úr áættunum og því sem menn búast við. Ég tel því mikilvægt að það verði unnið að því að útboðin verði skoðuð og framkvæmdirnar. Það verði haft strangara og betra eftirlit með þeim þannig að slíkir hlutir geti ekki komið upp. Það er svo að við erum að afgreiða fjárlög og þar er fullt af óskaverkefnum. Þegar slík eyðsla kemur upp sem hér er dregur það úr því fé sem hægt er að úthluta. Ég vil því beina þeim tilmælum til hæstv. ríkisstjórnar að það verði samdar og gerðar strangari reglur um framkvæmdir og sérstaklega stórverkefni þannig að það verði hægt að hafa betri hemil á því hvort rétt er staðið að verki.
Ég vil að lokum ítreka að við í Borgarafl. gætum talað töluvert meira um þetta. Það hefur verið lítill tími til að skoða og lesa þessa skýrslu, en allt það sem við vildum sagt hafa var sagt hér af hv. 16. þm. Reykv., Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, sem sagði skýrt og skorinort hvað við vildum sagt hafa.