18.12.1987
Efri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (1822)
196. mál, söluskattur
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég kannast ekki við að það séu til nein ákvæði um það í þingsköpum hversu oft eða sjaldan menn mega tala um þingsköp. Það væri kannski ástæða til að setja það í þingsköp.
En ég harma að stjórnarmeirihlutinn og leiðtogi Alþfl. í þessari deild skuli ekki vilja sýna fjmrh. hér nú þegar. Ég hef gert mitt besta til að skapa svigrúm til þess í þinghaldinu að fjmrh. fengi að gefa yfirlýsingu varðandi niðurgreiðslu á mjólk og mjólkurvörum.
Hæstv. sjútvrh. sagði nokkur orð áðan og orðaði þetta svo: Það hefur aldrei staðið til að endurgreiða söluskatt af mjólk og mjólkurvörum. Hins vegar verða niðurgreiðslur auknar. Þetta er nákvæmlega það sem bersýnilega verður reynt og við höfum óttast, að það verði litið á þessa niðurgreiðsluaukningu sem almenna viðbót við niðurgreiðslur sem síðan megi ráðstafa og verði ráðstafað eftir ákvörðun og vilja ríkisstjórnar hverju sinni þannig að það er verið að gefa í skyn að matarskatturinn geti að hluta til lent á mjólk og mjólkurvörum. Til þess hins vegar að koma í veg fyrir að menn geti með tilraun til útúrsnúninga komið sér undan því að taka afstöðu í þessu efni, eins og hæstv. sjútvrh. var að gera, mun ég við 3. umr. flytja aðra till. um þetta sama mál þar sem gert verður ráð fyrir að verð á mjólk og mjólkurafurðum, kjöti og kjötafurðum, ostum og öðrum slíkum vörum skuli ekki hækka vegna álagningar matarskattsins. Það geta auðvitað komið til aðrar hækkanir síðar, en ekki vegna álagningar matarskattsins. Þessi niðurgreiðsluupphæð upp á 1200–1250 millj. kr., sem verið er að tala um að komi til vegna mjólkur og mjólkurafurða, verði því notuð til að halda niðri verði á þeim vörum en menn geti ekki sagt sem svo: Við erum hér með 1250 millj. kr. í niðurgreiðslur og við notum þetta svo sem í hvað sem er. Það er einmitt það sem hæstv. sjútvrh. er að gefa í skyn.
Hitt, sem fram kom hjá hv. 2. þm. Norðurl. e., voru ómerkilegar dylgjur um að ég hefði í ræðu minni eða athugasemd áðan verið að segja að það væri í raun og veru allt í besta lagi þó að farið yrði þvert gegn vilja deildarinnar. Það var ekki það sem ég var að segja eins og hv. þm. veit. Það sem ég var að vekja athygli á er að svo virðist vera sem meiri hl. deildarinnar láti sér þetta mál í léttu rúmi liggja., rumskaði ekki í þessu máli fyrr en ég fór að gera grein fyrir atkvæði mínu við nafnakall um málið., vissi þá ekki hvaðan á sig stóð veðrið, náði svo að lokum nokkurn veginn áttum þegar hæstv. sjútvrh. kastaði út líflínu til stjórnarliða. En hún dugir skammt vegna þess að við lokameðferð málsins í þessari virðulegu deild verður gerð tilraun til að gefa stjórnarliðum kost á að taka afstöðu til þess hvort þeir ætla að hækka verð á mjólk og mjólkurvörum. Það er einmitt það sem hæstv. sjútvrh. var að gefa í skyn að stæði til vegna þess að niðurgreiðslurnar á að taka eins og hverja aðra púlíu, hvern annan sjóð og dreifa síðan út til niðurgreiðslna á hinar ýmsu vörur.
En ég harma hvað stjórnarliðið er tregt til að sýna hæstv. fjmrh. Ég veit ekki til þess að hann sé feiminn við að koma inn í þessa virðulegu deild. En ég skal ekki vera að nudda í þessu lengur fyrst leiðtogi Alþfl. í deildinni vill ekki sýna ráðherrann sinn núna. Það verður þá að hafa sinn gang. En ég bið þá um hann á eftir.