18.12.1987
Efri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

196. mál, söluskattur

Guðmundur Ágústsson:

Hæstv. forseti. Ég held að það sé ágætt að gera grein fyrir hvaða brtt. við gerum hér. Þetta er um afruglara. Ég tel það ófært að meðan verið er að setja matarskatt á skuli vera heimild í lögum fyrir fjmrh. til að undanþiggja afruglara söluskatti. Ég segi því já.