18.12.1987
Efri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (1843)
128. mál, sóknargjöld
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um sóknargjöld eins og það kemur frá Nd. á þskj. 318. Frv. er flutt vegna nauðsynlegra breytinga sem gera þarf á tekjustofnum sókna og trúfélaga í tengslum við gildistöku laga um einföldun og staðgreiðslu opinberra gjalda. Með tilkomu hins nýja staðgreiðslukerfis er ekki lengur gert ráð fyrir því að sóknargjöldin innheimtist beint af sóknarmönnum.
Á sl. sumri var skipuð fjögurra manna nefnd til að semja frv. til l. um sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld sem taka skyldi mið af skattkerfisbreytingunni. Í þessari nefnd áttu sæti tveir fulltrúar tilnefndir af kirkjuráði, einn fulltrúi tilnefndur af fjmrn. og einn fulltrúi frá dóms- og kirkjumrn. Nefndin fékk í veganesti yfirlýsingu sem gefin var í grg. með frv. til l. um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekju- og eignarskatt, á sl. vetri, en þar var sagt að miða skyldi við það að hlutdeild sóknanna í skattheimtunni yrði hin sama og verið hefði.
Nefndin samdi frumvarpsdrög sem lögð voru fram á kirkjuþingi í byrjun október og gerði kirkjuþingið nokkrar smávægilegar breytingar á þeim. Á grundvelli þessara draga var það frv. samið sem hér er flutt.
Nd. hefur gert á frv. smávægilegar orðalagsbreytingar á 2. og 3. gr. sem gera merkingu þeirra skýrari.
Ég ætla að víkja nokkrum orðum að efni frv. og kem þá fyrst að I. kafla, en þar er lögð til sú breyting frá gildandi lögum að gjaldendur greiði ekki skatt beint til sóknanna. Þjóðkirkjusöfnuðir, trúfélög og Háskóli Íslands vegna þeirra sem standa utan trúfélaga fá hins vegar hlutdeild í hinum sameinaða nýja tekjuskatti. Þessi hlutdeild í tekjuskattinum er ákveðin í frv. í samræmi við álögð sóknargjöld á árinu 1987, en samtals námu þau rúmlega 312 millj. kr. en væru 299,7 millj. ef aðeins væri miðað við hinar almennu álagningarheimildir skv. 2. gr. gildandi laga. Er þá ekki tekið tillit til hækkunarheimildar sem sóknirnar hafa og háð er samþykki dómsog kirkjumrh. Við útreikning á hlutdeild þjóðkirkjusóknanna, annarra trúfélaga og háskólasjóðs vegna utankirkjumanna í tekjuskattinum er því miðað við töluna 299,7 millj. á árinu 1987. Í þá tölu er deilt fjölda þeirra manna sem eru 16 ára og eldri í árslok 1986. Þar með er fundin ákveðin grunntala sem notuð er til að ákveða sérstakt nefgjald og þar með hlutdeild sókna, trúfélaga og háskólasjóðs í tekjuskattinum í framtíðinni. Þessi grunntala er eins og fram kemur í 1. tölul. 2. gr. í frv. 141 kr. á mann á mánuði og má ætla að hún verði 193 kr. á mann á mánuði á árinu 1988. Álagning þessa gjalds mun sjálfkrafa fylgja þeim breytingum sem verða á fjölda þeirra manna er náð hafa 16 ára aldri. Þá er gert ráð fyrir því að þetta gjald fylgi þeim breytingum sem verða kunna á meðaltalstekjuskattstofni einstaklinga fram til hvers gjaldárs.
Heildarfjárhæðinni sem þannig fæst er skipt á milli þjóðkirkjusafnaðanna, trúfélaganna og háskólasjóðs í hlutfalli við fjölda manna eldri en 16 ára í hverjum þessara hópa. Þetta er einföld regla og mun leiða til jöfnunar milli sóknanna í landinu þannig að hinar tekjulægri þeirra fá heldur meira en þær annars fengju. Þetta auðveldar líka söfnuðunum að áætla tekjur sínar. Ríkisbókhaldið mun annast skiptingu gjaldsins samkvæmt upplýsingum um fjölda manna í sóknum og trúfélögum sem Hagstofa Íslands safnar.
Í þessu sambandi er mikilvægt að skráning fólks í söfnuði og trúfélög sé ljós því skipting sóknargjaldanna ræðst af þessari höfðatölu. Ég hef rætt það sérstaklega við Hagstofu Íslands og hagstofustjóra að reglurnar um skráningu í söfnuði og trúfélög verði nú endurskoðaðar og þess sé gætt að sú skráning verði jafnan sem réttust. Auglýsing um skráningu í trúfélög var síðast gefin út árið 1966 með auglýsingu nr. 204. Síðan hafa reyndar verið samþykkt ný lög um trúfélög, árið 1975, og þegar af þeirri ástæðu er þörf á því að endurskoða þessar reglur, en sú nýja tilhögun sóknar- og kirkjugarðsgjalda sem hér er verið að mæla fyrir gerir það enn brýnna en ella; enda verður það gert.
Í II. kafla þessa frv. er fjallað um það nýmæli að stofnaður verði jöfnunarsjóður sókna. Þessum sjóði er ætlað að mæta fjárþörf sókna sem ætla má að annars myndu hafa notað hækkunarheimild 3. gr. gildandi laga um sóknargjöld. Þessum sjóði er líka ætlað það hlutverk að styrkja fámennar og fátækar sóknir, að auðvelda stofnun nýrra sókna og styrkja kirkjulega, félagslega og menningarstarfsemi í söfnuðunum. En ekki síst er sjóðnum ætlað að standa að hluta til undir rekstri og viðhaldi kirkna sem kalla mætti landskirkjur. Þar á ég við Dómkirkjuna í Reykjavík, Hóladómkirkju, Hallgrímskirkju í Reykjavík og Skálholtskirkju. Loks er sjóðnum ætlað að veita framlög til ýmissa kirkjulegra verkefna sem til þessa hafa notið fjárstyrks úr ríkissjóði ef þau þá á annað borð hafa fengið slíkan stuðning. En stjórn þessa nýja jöfnunarsjóðs verður í höndum kirkjuráðs.
Með stofnun hans er fjárhagslegt sjálfstæði þjóðkirkjunnar aukið, en jafnframt aukin ábyrgð kirkjuráðsins. Kirkjuráðið skal hafa með hendi umsjón og stjórn jöfnunarsjóðs sókna og skal semja árlega fjárhagsáætlun fyrir sjóðinn og kynna hana dóms- og kirkjumrn. fyrir lok maímánaðar á hverju ári. Þannig ætti að vera unnt að taka tillit til hennar við gerð fjárlagabeiðna vegna þjóðkirkjunnar. Þessa áætlun skal einnig leggja fram á kirkjuþingi. Reikningshald sjóðsins skal vera hjá Biskupsstofu, en endurskoðun í höndum Ríkisendurskoðunar. Eftir að sjóðurinn hefur verið stofnaður er lagt til að bein framlög á fjárlögum og ríkissjóði til einstakra kirkna falli brott, en yfirleitt komi í þeirra stað framlög úr jöfnunarsjóðnum.
Í III. kafla þessa frv. eru ákvæði um héraðssjóði sem eru í öllum meginatriðum hin sömu og ákvæði gildandi laga um sóknargjöld, en héraðssjóðunum er ætlað það hlutverk að standa undir ýmsum sameiginlegum kirkjulegum verkefnum á vegum prófastsdæmanna í landinu. Þær raddir hafa heyrst að með þessum tillögum sé verið að eyrnamarka kirkjunni hluta af tekjustofnum ríkissjóðs sem sé andstætt markaðri meginstefnu í fjármálastjórn ríkisins.
Ég vil af því tilefni taka alveg skýrt fram að söfnuðir þjóðkirkjunnar og önnur trúfélög hafa fram til þessa haft sjálfstæðan tekjuskatt og í frv. er einungis gert ráð fyrir að þau hafi hann áfram en með öðrum hætti en verið hefur vegna þeirrar einföldunar á skattakerfinu sem staðgreiðslan felur í sér. Þess vegna er sú tillaga gerð sem hér er flutt.
Herra forseti. Ég legg áherslu á að frv. fái skjóta meðferð í þingdeildinni, enda tengist það gildistöku staðgreiðslunnar í upphafi næsta árs og gerð fjárlaga sem brýnt er að ljúki sem allra fyrst. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.