18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2510 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)

125. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég stend að nál. hv. fjh.- og viðskn. Ed. um staðgreiðslufrv. Eins og kemur þar fram hef ég ásamt öðrum stjórnarandstöðuþm. fyrirvara á samþykki mínu og hann er hinn sami og þeirra.

Hv. 7. þm. Reykv. lýsti því máli sem fyrirvarinn snýst um af því að athygli hans hafði verið vakin á því að það væri í raun hvergi í þessum lögum um staðgreiðslu né heldur í lögum um tekju- og eignarskatt neitt ákvæði sem kæmi í veg fyrir að tekjuskattur væri tekinn af lífeyrissjóðsgreiðslum aldraðra og þá einnig þeim vasapeningum sem þeim er úthlutað og munu vera nú um 5 þús. kr. á mánuði. Það urðu allir í nefndinni sammála um að það næði náttúrlega ekki nokkurri átt, það hlyti að vera botninn á skattheimtu ef farið væri að krefja aldraða um skatt af þessum allt of lágu vasapeningum sem þeir nú hafa. Mig langar einungis að vekja athygli á því hvað er hér á seyði í raun og veru vegna þess að stjórnarliðar studdu það heils hugar að vasapeningar aldraðra yrðu varðir skattheimtu þegar í ljós kom að ekkert ákvæði væri í lögunum sem tryggði að slíkt yrði ekki gert. Þessi hraðferð á málunum í gegnum þingið gerir það að verkum að allir vel meinandi menn geta í raun ekki fylgst nægilega með því hvað þeir eru að afgreiða. Um leið og stjórnarliðar sáu þessa gloppu sáu þeir líka að þetta er ekki hægt og þess vegna samþykktu þeir að vasapeningar aldraðra yrðu tryggðir því þeir eru allir vel meinandi menn. En þetta er bara eitt lítið dæmi í viðbót við það sem hér hefur komið ítrekað fram, að við erum í raun á hlaupum að afgreiða afskaplega mikilvæg mál.

Það kom fram í nefndinni í morgun að skilaboð hv. 7. þm. Reykv. til hæstv. fjmrh. um að taka tillit til þess arna höfðu borist og átti að sinna málinu í reglugerð. En það er ekki nóg. Það verður að vera afdráttarlaust ákvæði um þetta í lögum. Þeir sem komu á fundi nefndarinnar hjá embætti ríkisskattstjóra lofuðu að taka það til greina og við væntum þess að þessum breytingum verði komið á í lögum um tekju- og eignarskatt.

Í öðru lagi er um kynninguna á skattamálunum að ræða. Það kom fram þegar ég talaði í 1. umr. um málið að vissulega hefur margt verið gott gert til að kynna þessa viðamiklu kerfisbreytingu, en ég verð að segja að margir hafa komið að máli við mig og beðið mig um skýringar á því hvernig þessi framkvæmd muni verka vegna þess að þeir hafa ekki verið með það á hreinu. Þess vegna legg ég til eins og áður að undinn verði hinn bráðasti bugur að því að gera einfalda og ítarlega sjónvarpsþætti um þessa kerfisbreytingu þannig að allir þeir, sem ekki mættu á fundina sem ríkisskattstjóri tilkynnti okkur að haldnir hefðu verið víða um landið, bæði með starfsmannafélögum, hópum aldraðra og öðrum, verði nokkurs vísari. Það eru nefnilega margir sem sækja ekki slíka fundi og það eru kannski einmitt þeir sem velkjast í vafa um hvernig þeir eiga að hegða sér í málinu. Ég legg því eindregið til að það verði sem fyrst unnið að því að ítarleg og greinargóð kynning fari fram í sjónvarpi og verði endurtekin nokkrum sinnum þannig að hún nái til sem flestra áður en þessi kerfisbreyting fer fram.