18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2518 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)
196. mál, söluskattur
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það skal strax viðurkennt að það mundi flækjast fyrir mér að svara spurningum skoðanakannana um hvernig ég hefði staðið að og unnið að því söluskattsmáli sem hér er til umræðu. Því miður hef ég ekki haft tíma til að kynna mér hverja grein um sig og ég verð að fara í atkvæðagreiðslum nokkuð eftir því hvernig þeir menn, sem hafa verið að vinna í málinu, hafa greitt atkvæði.
En mér kom í hug áðan, þegar við vorum að fá okkur kaffi í fundarhléinu, að það væru tvær bækur sem jafnan væru hafðar um borð í hverju fiskiskipi sem alltaf hefðu verið undanþegnar söluskatti. Ég hefði haft vissan áhuga á því að hæstv. fjmrh. væri hér í deildinni og langaði til að leggja fyrir hann fsp. um þessar tvær bækur, hvort svo væri að enn væru þær undanþegnar söluskatti þó að það mætti kannski segja að ég hefði átt að gefa mér tíma til að fara ofan í frv. og kanna hvort svo væri. Af þessum bókum mun hafa allar götur frá því að byrjað var að leggja á söluskatt ekki hafa verið krafinn söluskattur þó að leiðirnar til að losna við söluskattinn hafi kannski verið á ýmsa vegu.
Hér er hæstv. fjmrh., en ég er kominn í ræðustól til að fjalla um söluskattinn, m.a. vegna þess að ég hef ekki gefið mér of mikinn tíma til að kanna frv. sjálft. En í lok umræðna um það langaði mig til að fá upplýsingar um hvort svo væri ekki enn, sem jafnan hefur verið í sambandi við ákvörðun um söluskatt, að tvær bækur sem eru held ég um borð í hverju einasta íslensku fiskiskipi séu enn undanþegnar söluskatti. Þessar bækur eru Biblían og Sjómannaalmanak. Ef svo er ekki legg ég eindregið til að þeirri reglu verði ekki breytt og að þessar tvær bækur haldi enn þeim sjálfsagða rétti að vera undanþegnar söluskatti.
Fyrst maður er kominn í ræðustól má geta þess að ýmislegt skemmtilegt hefur skeð í deildinni í umræðunum. Ég hafði gaman af því þegar hv. þm. Júlíus Sólnes var að jafna umræðunni við umræður í hv. deild fyrir 60 árum og kannski þá að jafna sjálfum sér og fjmrh., hv. þm. Svavari Gestssyni og öðrum sem hafa verið í umræðunni við fræg nöfn úr sögunni, Jón Baldvinsson og Jón Þorláksson. (EgJ: Ekki jafna sér við Jón Þorláksson.) Ja, þetta var gert hér, hv. þm., í ræðustól áðan, allt að því.
Það hafa verið reyndar til umræðu ýmsir samjöfnunarhlutir í blöðum, fjölmiðlum. Ég hafði gaman af því að lesa Þjóðviljann minn í fyrradag þar sem svona samjöfnuður var líka. Þar var núv. formanni flokksins, Ólafi Ragnari, jafnað saman við Héðin Valdimarsson og Hannibal Valdimarsson og ekki nóg með það, heldur var farið aftur í söguna og skrásetjari merkrar bókar um Alþb. jafnaði sér við Sturlu Þórðarson.
Ég held að þó að hér séu sjálfsagt að gerast merkilegir hlutir og álagning þessa söluskatts, matarskatts Alþfl., verði kannski lengi merk og umtöluð í sögunni verði það ekki eins umtalað í sögunni og þau góðu verk sem Jón Baldvinsson og Héðinn Valdimarsson voru fyrir 60 árum að koma í gegnum hv. Ed. því að sem betur fer eru hlutirnir þannig að enn þá er sögutilfinningin á þann veg að þegar frá líður eru góðu hlutirnir lengur í hugum manna en hinir sem eru á þann veg sem hér er verið að gera.