18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2519 í B-deild Alþingistíðinda. (1876)

196. mál, söluskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Undir umræðum um vörugjald í dag lagði ég ákveðnar fsp. fyrir hæstv. fjmrh. og miðað við stöðu mála hér hefði ég talið að mörgu leyti heppilegt að hæstv. ráðherra svaraði þeim fsp. áður en umræður halda áfram og ég teldi í raun og veru eðlilegt að það gerðist við umræður um vörugjald. Fsp. var þessi: Hver er talnagrunnur þeirra útreikninga sem framkvæmdir hafa verið í fjmrn. varðandi einstaka tekjustofna ríkisins og breytingar þeirra milli áranna 1987 og 1988? Þetta var spurning sem hv. 8. þm. Reykv. lagði fyrir ráðherrann núna fyrir nokkrum dögum. Ég tók þá undir þær spurningar og óskaði eftir því að svör bærust við 3. umr. frv. um vörugjald. Reyndar er það rétt, sem bent hefur verið á, að ég óskaði eftir þessum svörum skriflegum. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hverju sætir það að ég hef enga pappíra fengið enn um þetta mál? Ég tel að það sé útilokað að halda umræðum áfram um þessi skattamál öðruvísi en þessir pappírar liggi fyrir, auk þess sem er brýnt að hæstv. ráðherra svari þeim spurningum sem fram komu frá hv. 4. þm. Vesturl. Skúla Alexanderssyni.

Ég veit að margt er að gera hjá ráðherranum og veit að hann þarf líka að gegna skyldu sinni sem þm. í Nd. Ef það getur ekki gengið saman samtímis er einfaldast að fresta fundi í þessari hv. deild meðan ráðherrann er að ganga frá atkvæðum sínum í Nd. Auðvitað verður maðurinn annaðhvort að vera í Ed. eða þeirri neðri. Við efrideildarmenn kunnum því illa að menn sinni ekki þessari deild og við skiljum ekki hvað það á að þýða að þessi deild njóti minni virðingar en sú neðri (Gripið fram í.) nema kannski hjá hæstv. fjmrh. (Forseti: Þetta er mikill misskilningur.) Ég legg þessar spurningar fram og vænti þess að þeim verði svarað. En þetta var um þingsköp, herra forseti, þannig að það er ljóst að ég hef ekki gengið á umræðukvóta minn í almennum umræðum. (Forseti: Forseti er klár á því.)