18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2522 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

196. mál, söluskattur

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Örfá orð að gefnu tilefni. Það skortir ekki á að birtar hafi verið upplýsingar og þær ítarlegar að því er varðar skattstofna og tekjuáætlanir varðandi þær skattkerfisbreytingar sem hér eru til umræðu. Í því efni vísa ég í seinasta gagnið um það, sem er frétt frá fjmrn. sem þegar hefur verið birt, þar sem það er rakið lið fyrir lið hvernig það dæmi er í heild sinni.

Það sem menn eru síðan að spyrja um er þetta: Er ástæða til að ætla við endurskoðun á tekjuhlið fjárlaga í heild og miðað við spá Þjóðhagsstofnunar um efnahagsþróun á næsta ári að það sé að vænta verulegra breytinga um hvað þessir tekjustofnar gefi af sér að raungildi? Þess vegna er það sem ég vísaði til að það er verkefni Þjóðhagsstofnunar að skila endurskoðaðri tekjuáætlun sem hún gerir samkvæmt venju fyrir 3. umr. fjárlaga og ég hef meðtekið fsp. hv. þm., beint henni til réttra aðila og tekið fram hvenær svars væri vænst. Ég hef ekki svör að flytja frá Þjóðhagsstofnun. Mér er að vísu kunnugt um að starfsmenn Þjóðhagsstofnunar telja ýmsa örðugleika á að skila slíkri spá svo óyggjandi gæti talist að þeirra mati fyrr en menn hafa gefið sér alveg endanlegar niðurstöður um leyfilegt aflamagn, um forsendur fiskveiðistefnu á næsta ári.

Ég verð að segja það fyrir mitt leyti að á þessu út af fyrir sig er engin breyting frá því sem verið hefur á ári hverju. Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina. Hingað til hefur mér heyrst, einkum og sér í lagi á hv. 7. þm. Reykv., að hann bæri ekki mjög mikla virðingu fyrir þeim spádómum um framtíðina sem í slíkum þjóðhagsspám birtast þannig að ég fæ ekki séð að það eigi að tefja þingstörf á hv. Alþingi þótt þessir spádómar hafi ekki birst hv. þm. á þessari stundu.

Það hefur þegar komið fram í umræðum að fyrir utan að þessir tekjustofnar eru metnir með sæmilega öruggum hætti, einfaldlega vegna þess að tekjustofnarnir sjálfir eru skýrar afmarkaðir en áður, það á bæði við um tolla, vörugjald og söluskatt, þá var tekið tillit til hvors tveggja: mats á veltubreytingum miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins og mats á eftirspurnaráhrifum tollkerfisbreytingarinnar, þannig að það er þegar inni í þeim tölum sem við fjöllum um og þegar hafa verið birtar þm. Niðurstaða mín er sú að ég hafi gert skyldu mína um að koma þessari fsp. áleiðis til réttra aðila, en að öðru leyti eru fyrirliggjandi þær upplýsingar sem er að vænta um málið og það eru ekki rök fyrir því að tefja þingstörf að þessar upplýsingar skorti.