18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2523 í B-deild Alþingistíðinda. (1882)

196. mál, söluskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Það er út af fyrir sig alveg hægt að ræða hér aðeins um þessa tekjuáætlun ef menn vilja. Það er hægt að gera það í umræðum um þau mál sem hér liggja fyrir, skattamál frá ríkisstjórninni, kirkjugarðsgjald, sóknargjald, brunamálagjald, vörugjald og söluskatt. En hér er ekki verið að ræða neitt annað en skatta. Það hefur yfirleitt engin tillaga komið frá þessari ríkisstjórn um eitt eða neitt nema skatta. Það er allt í lagi að halda áfram að ræða það mál. Ef menn geta ekki komið sér niður á hvernig á að haga hér hlutunum, m.a. þingstörfum, er allt í lagi að taka sér tíma í að ræða þessi mál ítarlega ef menn ætla að vera að gaufa við þetta hvort eð er fram eftir öllum vetri. (Gripið fram í: Fram á þrettánda.) Ég lagði þessa ósk fyrir hæstv. fjmrh. fyrir skömmu. Það var á næturfundi fyrir stuttu. Hæstv. ráðherra skrifaði Þjóðhagsstofnun. Þjóðhagsstofnun hefur enn ekki svarað. Það sem ég nefndi hér var ósköp einfaldlega að eitthvað af þessum skattamálum fengi að liggja hér í deildinni þangað til Þjóðhagsstofnun hefði svarað. Mér er nákvæmlega sama um undir hvern af þessum kóngum ríkisstjórnarinnar Þjóðhagsstofnun heyrir í þessu efni. Það breytir engu í mínum huga hvort það er forsrh., fjmrh. eða einhver annar ráðherra. Ég vil fá þessi svör. Og ég bendi á að það var ekki einasta ég sem lagði þessa beiðni fram heldur líka hv. 8. þm. Reykv.

Hæstv. fjmrh. hefur auk þess í blöðum lýst því yfir að þetta sé enginn vandi. — Ég geri hlé á máli mínu, herra forseti, og óska eftir frestun þessara mála meðan hæstv. ráðherra gegnir skyldustörfum sínum í Nd. Ég tel ekki við hæfi að ræða þessi mál, hvorki tæknilega né efnislega, meðan ráðherrann er fjarri.