18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2524 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)
196. mál, söluskattur
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég held að sú ósk sem hv. 7. þm. Reykv. setti fram varðandi umræður um lánsfjárlögin sé alveg réttmæt og eðlileg eins og staða mála er núna þannig að það mál verði tekið til umræðu við upphaf deildarfunda á morgun og reynt að afgreiða það þá sem fyrst, en annars væri ákjósanlegt að við gætum lokið umræðum um vörugjald og söluskatt og komið þeim málum áleiðis til Nd. En ég tek undir þá ósk, sem hv. þm. Svavar Gestsson bar fram varðandi lánsfjárlögin, að sú umræða verður að fara fram á morgun.