18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)

196. mál, söluskattur

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Ég hef e.t.v. tekið of sterkt til orða, en ég ætlaði alls ekki að vega að starfsfólki þingsins og þykir leitt ef hv. þm. Eiður Guðnason hefur misskilið orð mín. Ég varpaði fram þeirri spurningu hvort það væri ábyrgt að ætla fólki að vinna á þeim hraða sem er kominn hér á öll mál. Það hafa verið villur í þskj. eins og menn vita, en ef ég hef tekið einum of stórt upp í mig biðst ég velvirðingar á því. Umræðu frestað.