18.12.1987
Efri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)
128. mál, sóknargjöld
Guðmundur Ágústsson:
Hæstv. forseti. Ég gerði fyrirvara fyrir mitt leyti á þessu frv. og ætla nú að gera grein fyrir því að hverju þessi fyrirvari beinist.
Við eigum ekki fulltrúa í menntmn. Nd. og við höfum haft mjög lítinn tíma til að ræða þessi mál, en ég hef að sjálfsögðu litið yfir þetta o geri ekki beinar athugasemdir við efni þessa frv. Ég ætlaði að kalla til aðila, þar á meðal frá ráðuneytinu og frá Biskupsstofu, en taldi ekki ástæðu til þess síðar þegar mikil áhersla var lögð á það að þetta gengi fljótt í gegnum þingið til þess að við værum ekki vændir um það að tefja mál hér. Þessi fyrirvari var sem sagt aðallega gerður að því leytinu til, en efnislega þykir mér ekki ástæða til þess að fjalla nánar um frv. eða gera á því breytingar.