18.12.1987
Efri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2540 í B-deild Alþingistíðinda. (1937)
47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Guðmundur Ágústsson:
Hæstv. forseti. Mig langar í framhaldi af því sem samflokksmaður minn Júlíus Sólnes sagði áðan að vekja athygli á því nál. sem kom frá meiri hl. félmn. og þá sérstaklega nokkrum greinum þess og leyfi mér að lesa upp nokkrar setningar. Þar segir í upphafi:
„Með frv. eru ekki gerðar grundvallarbreytingar á húsnæðislánakerfi því sem komið var á vorið 1986. Þó er tekið fyrsta skrefið til að koma því jafnvægi á í húsnæðiskerfinu sem að er stefnt í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.“
Það er sem sagt álit meiri hl. félmn. að þarna sé aðeins um minni háttar breytingu að ræða. Þá kemur fram undir lok þessa nál. það sem við þm. Borgarafl. höfum verið að leggja áherslu á í þeirri umræðu sem verið hefur, en þar segir:
„Í fyrsta lagi ber að nefna nauðsyn þess að tryggja fjárhagsstöðu húsnæðislánakerfisins til frambúðar þar sem nú er sýnt að vaxtamunur er orðinn meiri en talið hefur verið að kerfið þyldi.“
Þetta er annað þeirra meginatriða sem við höfum lagt áherslu á og sem leyst er með þeirri brtt. sem við lögðum hér fram og erum búnir að draga til baka.
Seinna atriðið er að kanna hvort grundvöllur geti verið fyrir því að flytja hluta verkefna Húsnæðisstofnunar yfir í bankakerfið með samningum við lífeyrissjóði og bankastofnanir. Þarna kemur að öðru meginatriði í okkar till. og verð ég að segja hér að ég fagna þessu nál. og vona svo sannarlega, þegar við leggjum fram þær brtt. sem við gerðum á vorþingi, að það verði það sama uppi á teningnum og að þessar tillögur okkar fái skjóta afgreiðslu í þinginu og verði að lögum fyrir lok þessa þings.