18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2543 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)
Uppprentun þingskjala
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Mér sýnist það liggja nokkuð ljóst fyrir að lagatexta verður ekki breytt eftir á. Þingdeildin afgreiðir mál eins og þau liggja fyrir. Þar breytir engu þó að einhver vilji leiðrétta þegar búið er að afgreiða mál út úr deildinni. Þess vegna verða menn að átta sig á alvöru þess mals, hvort þeir eru að tala um lagatexta eða frv. sem ekki er búið að greiða atkvæði um og svo skýlaust sem þetta hlýtur að vera tel ég að forseti þurfi að gá að sér með að láta það ekki henda aftur. Það verður þá að taka mál upp að nýju ef slíkur hraði er orðinn á vinnubrögðum hér að ekki er hægt að hafa reiður á því hvað nefndir leggja til.