18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2552 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

137. mál, launaskattur

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. athugaði frv. um launaskatt. Stjórnarliðarnir í nefndinni leggja til að frv. verði samþykkt. Undir það álit rita auk mín Geir H. Haarde, Matthías Bjarnason, Kjartan Jóhannsson og Guðmundur G. Þórarinsson.