18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)

137. mál, launaskattur

Forseti (Jón Kristjánsson):

Í þessu sambandi vil ég taka fram að að sjálfsögðu er ekki ætlunin af hálfu stjórnar þingsins að knýja þetta mál fram athugunar- eða umræðulaust. Og 3. umr. málsins er að sjálfsögðu eftir þó að 2. umr. ljúki.