18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2571 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)

137. mál, launaskattur

Forseti (Jón Kristjánsson):

Um þetta atriði skal verða gengið úr skugga, en hitt vil ég geta um að ég hafði þrívegis í umræðunni mundað mig til, eins og hv. ræðumaður kemst að orði, að segja að umræðu væri lokið en hef ætíð gefið hv. þm. færi á að taka til máls við umræðuna. Að sjálfsögðu munu verða gerðar ráðstafanir til þess að 3. umr. þessa máls verði með eðlilegum hætti, það er ekki ætlunin að takmarka hana með neinum hætti, þannig að þau sjónarmið sem hv. þingdeildarmenn hafa komist á framfæri. Ég tel þetta fullkomlega eðlilega fundarstjórn og ítreka að 2. umr. er lokið, en ef upptaka sýnir annað mun að sjálfsögðu verða gefið færi á að halda áfram 2. umr.