21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

Frumvarp um leyfi til slátrunar

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég furða mig á ræðu hv. þm. Þetta mál er flutt með þinglegum hætti og flm. eru átta þm. í þessari hv. deild. Hér er um mál að ræða sem þolir enga bið og verður að skera úr um hvort það er þingstyrkur fyrir þessu máli eða ekki. Þess vegna mótmæli ég því að tekin verði til greina sú krafa hv. þm. að þessu máli verði frestað. Það er búið að reyna allar hugsanlegar leiðir og ef þm. hefði verið hér viðstaddur í gær (GHelg: Ég var það.) hefði hún kannski orðið betur vísari um það sem hér hefur verið að gerast. Hér er aðeins verið að reyna að sporna enn við fæti.