18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2585 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
195. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Á þeirri tíð, þegar þessi skattur var lagður á, man ég það gerla að Sjálfstfl. barðist mjög hatramlega gegn honum og urðu hér heitar umræður. Nú er öldin önnur og sjálfstæðismenn eru nú orðnir aðaltalsmenn þess að leggja á skatta. Við sáum nýlega að skattahlutfall af vergum þjóðartekjum er komið upp í 26% með öllum þeim sköttum sem á að leggja á og mun aðeins einu sinni áður hafa verið svo hátt hlutfall af þjóðartekjum, en það var 1982 þegar ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens var við völd. En sá munur var á að nú er eitthvert mesta góðæri sem um getur í sögunni. Það hefur verið hátt verð á okkar útflutningsafurðum, sjávarafurðum. Það hafa verið hagstæð skilyrði að því leyti til að það hefur verið mikill afii, sá mesti í sögunni. Og það hefur verið lágt olíuverð. Allt var þetta með öðrum hætti 1982. Þá voru 26% miklu minni tekjur en er í dag því að miklu minna var þá af að taka.
Það hefur verið sagt að margt smátt geri eitt stórt og við höfum orðið vitni að því að hvert skattafrv. hefur verið lagt fram af öðru, en hefði þó mátt vænta að í þessu góðæri hefði mátt lina á skattlagningu. Hæstv. fjmrh. hefur margoft lýst yfir því að skattakerfið eigi að vera einfaldara, skilvirkara og réttlátara. Ef það ætti að taka mark á honum hefði átt að leggja samsvarandi skatt á allar atvinnugreinar til einföldunar. En ég er að sjálfsögðu á móti því eins og ég er á móti því að leggja þennan skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Það er makalaust að þessi hugmynd kemur alltaf upp ef menn sjá eitthvað upp úr jörðinni. Hugmyndir manna um skattlagningu virðast aðallega bundnar við að ef þeir sjá eitthvað rísa upp úr jörðinni halda þeir að það sé skattstofn. Það var heppilegt að hér áður fyrr voru bara torfkofar og þeir voru grænir og líktust jörðinni þannig að á þeim tíma voru þeir ekki skattlagðir. En eftir að menn fóru að byggja varanleg hús og úr varanlegum efnum hafa menn komið auga á að þetta var alveg upplagður skattstofn.
Sjálfstfl. hefur nú gengið frá sinni fyrri stefnu í þessu og virðist ganga inn á þá steinrunnu stefnu Alþfl. og fleiri að skattleggja hús. Ég á von á því að þeir eigi eftir að skattleggja t.d. trén, því að þau vaxa líka upp úr jörðinni, og fari að telja tré í görðum hér því að nýlega lögðu þeir skatta á bíla sem sjást líka. Þetta er allt saman gert í mesta góðærinu á landinu. Og þó er í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sagt að tryggja eigi eðlilega samkeppni og það eigi að vera sem minnst ríkisafskipti. Allir þessir skattar benda í sömu átt. Þeir benda á það að ríkið vill ná meiru undir sig, þeir sem eru í ríkisstjórn vilja síðan skammta til baka.
Það er sorglegt að vita til þess að Sjálfstfl. hafi gengið svo langt frá fyrri stefnu. En við sem erum nú í Borgarafl. munum halda uppi því merki sem áður var haldið hér af Sjálfstfl. og við munum mæla gegn þessu því að við teljum að þessi skattlagning sé ekki réttlát. Sú stefna sem birtist hér á hverjum degi í frv. hæstv. fjmrh. gengur yfir þjóðina eins og holskefla af illum og vondum lögum.
Það verður gaman á næsta ári að sjá hvernig þeir ætla að taka á málunum þegar búið verður að skattleggja atvinnuvegina þannig að þeir munu sigla í strand í mesta góðæri sem komið hefur yfir þjóðina.
Hér áðan var farið inn á gengismálin og stefnu ríkisstjórnarinnar í því sambandi og hæstv. iðnrh. gaf í skyn að það væri mjög líklegt að gengisfelling væri í vændum þegar þingið væri sent heim.
Ég vona að menn hugsi sig um áður en þeir leggja á þennan skatt, en við í Borgarafl. munum leggjast gegn honum. — Ég hef ekki meira um þetta að segja.