18.12.1987
Neðri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2615 í B-deild Alþingistíðinda. (2007)
198. mál, tollalög
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Hér hefur verið lagt fram frv. til laga um breyt. á lögum nr. 55 frá 30. mars 1987, tollalögum. Eftir þessum breytingum hefur verið beðið lengi og það er ekki nokkurt vafamál að að meginhluta til er þetta til bóta og við fögnum því að frv. skuli vera lagt fram sem er mjög til bóta á margan hátt eins og rakið hefur verið. Það að tollskrá skuli samræmd öðrum ríkjum í Evópubandalaginu er mjög gott og þýðir að það léttir vinnu hér á landi til samræmis við verslun og viðskipti í Evrópu.
Það er hins vegar mjög slæmt að okkur skuli ætlað að fjalla um þetta mál á svo skömmum tíma. Við höfum farið yfir þetta eins vel og við höfum getað í Borgaraflokknum og fundið á því allmarga vankanta. Það er nokkuð ljóst að það hefði mátt búa frv. betur úr garði og komast hjá ósamræmi í nokkrum liðum sem ekki eru í samræmi við það sem er annars staðar í frv. Þá eru nokkrar vörur í því sem við teljum að hefðu heldur átt að vera í lægri tollum. Einnig er það rétt, eins og hv. 2. þm. Vestf. kom hér inn á, að það er ljóst að frv. hamlar gegn því að við getum nýtt okkur bestu kjör við Bandaríkin. Sérstaklega er þetta bagalegt meðan dollarinn er hagstæður og við gætum flutt inn vörur á hagkvæmu verði þaðan. En oft eru töluverðir tollar á vörum frá Bandaríkjunum og einnig frá Japan og Rússlandi reyndar eða sem sagt löndum utan Vestur-Evrópu. Við náum því ekki bestu viðskiptakjörum á hverjum tíma nema því aðeins að það séu samsvarandi tollar á öllum vörum.
Það hefur verið farið yfir þetta mál mjög vel og ítarlega. Hins vegar er fróðlegt að lesa grein í Morgunblaðinu fimmtudaginn 10. des. 1987 þar sem fram kemur að þetta er víst ekki frv. ríkisstjórnarinnar, heldur er þetta frv. iðnrekenda og þeir hafa bjargað stjórnarflokkunum um að þetta mál næði fram að ganga. Mig langar, með leyfi forseta, að vitna í greinina, en í henni segir:
„Í mörg ár hafa stjórnmálamenn, embættismenn og forsvarsmenn atvinnulífs séð í hillingum þann tíma þegar innleidd yrði hér ný og samræmd gjaldskrá aðflutningsgjalda sem tæki hliðsjón af ríkjandi tollafyrirkomulagi innan Evrópubandalagsins, Norðurlanda og GATT. Þessar fyrirætlanir hafa hins vegar jafnan strandað á því að menn þóttust sjá fram á verulegt tekjutap ríkisins samfara slíkum breytingum, m.a. vegna þess að þeim fylgdi óhjákvæmilega endurskoðun á vörugjaldinu sem ekki bætti stöðu ríkissjóðs. Því hafa menn hikað og síðan orðið frá að hverfa því að ekki fundu menn aðferð til að höggva á þennan gordíonshnút.
Núv. ríkisstjórn einsetti sér aftur á móti í starfsáætlun sinni strax í byrjun að koma þessari kerfisbreytingu á koppinn og að hún kæmi til framkvæmda á árinu 1988. Í lok síðustu viku gátu foringjar stjórnarflokkanna svo tilkynnt hátíðlega að samstaða væri orðin innan ríkisstjórnarinnar um hvernig staðið skyldi að kerfisbreytingunni og um leið small saman tekjuhlið og útgjaldahlið fjárlagafrv. sem segja má að hafi verið heldur götótt fram að þeim tíma.“
Svo heldur þessi grein áfram og þá kemur í ljós að þetta er ekki ríkisstjórninni að þakka og segir í umræddri grein: „Reyndar þurfti hún utanaðkomandi hjálp til að ná landi því að það voru forustumenn iðnrekenda sem skutu til hennar líflínu sem dugði, þeirri hugmynd að hverfa frá lækkun sölugjaldsins og taka upp eitt samræmt og tiltölulega hátt vörugjald og að hleypa tollkerfisbreytingunni í gegn.“
Þá vitum við það. Það voru sem sagt iðnrekendur sem bjuggu frv. til en ekki hæstv. ríkisstjórn, og þeir hafa lagt það hér fram og útkoman er auðvitað sú að iðnrekendur hafa fengið öll sín mál í gegn en ýmsir aðrir hafa ekki fengið það með sama hætti og þeir. Það er nokkuð ljóst að þessi breyting hefur orðið til með þessum óvenjulega hætti. Það er og spurning sem hefði verið gaman að fá svarað hér hvort menn eru ánægðir með þessi vinnubrögð. Í frv., eins og réttilega hefur komið fram, hefur einn liður orðið sérstaklega út undan. Það eru matvæli eins og kornvara og það eru heimilistæki. Það er fróðlegt að lesa úr grg. með tollskrá frá 1973, en þar segir, með leyfi forseta:
„Oft ræður hending því hvaða vörur eru framleiddar hér á landi og þá um leið hvort vara telst verndarvara eða ekki. Þannig eru t.d. rafmagnseldavélar verndarvara og lækkar tollur af þeim í áföngum fram til 1980. Önnur heimilistæki, svo sem ísskápar, straujárn, brauðristar o.fl. eru hins vegar í 80% tolli og helst tollur á þessum vörum óbreyttur enn sem komið er. Segja má að tilviljanakenndur tollur af þessu tagi sé afar óeðlilegur þar sem um mjög hliðstæðar vörur er að ræða.“
Eins og hefur komið fram áður er þetta einmitt það sem hefur gerst við gerð þessarar tollskrár hér. Áfram ráða þessi tilviljunarkenndu vinnubrögð og í flokkinum þar sem um heimilistæki er að ræða er ekki samræmi. Menn hafa reynt að skýra það með alllangsóttum rökum sem eiga kannski ekki við í þessu tilfelli, en sannleikurinn er sá að hér hefði þurft að gæta samræmis. Eins er það — og ég mun vitna aftur í þessa grg. með tollskrá frá 1973, en þar segir:
„Eins og áður er að vikið hefur tilhneiging verið í þá átt að munaðarvara skyldi tolluð hátt, þegar almenningur bjó við mun knappari kjör en nú almennt gerist og var mun auðveldara að koma slíkri mismunun við. Bætt lífskjör hafa hins vegar raskað hefðbundnu gildismati hvað þetta snertir svo að mun erfiðara er í dag en áður fyrr að kveða upp úr um það hvaða vara skuli teljast munaðarvara og hvaða vara ekki. Verður því t.d. varla lengur haldið fram að algengustu heimilistæki séu munaðarvara. Verður því að telja að forsendur séu ekki lengur fyrir hendi til jafnhárra tolla á slíkum vörum eins og hingað til hafa gilt.“
Ég vil gera þetta að mínum rökum og skjóta því til hv. nefndar þegar hún fær þetta til umfjöllunar hvort ekki væri rétt að leiðrétta þetta og samræma við aðra tollaflokka. Við í Borgaraflokknum fluttum allnokkrar brtt. í Ed. sem við töldum til bóta og getum fært rök fyrir því. Þær breytingar voru allar felldar, enda virðist aðallega um það að ræða að það mun ekki vera saman hvaðan þær koma. Það var m.a. svo að við fluttum brtt. um matvælakorn, kassa og töskur til skyndihjálpar, neyðarmerki viðurkennd af Siglingamálastofnun ríkisins, hanska til skurðlækninga, sláttuvélar fyrir útivistarsvæði og íþróttavelli, varahluti í þvottavélar, hluti í ryksugur og hrærivélar, straujárn til heimilisnota, rafmagnshitamótstöður í tæki, eyrnatól, heyrnartól og sambyggða hljóðnema, hátalarasett, plötuspilara og snælduspilara, varahluti, símsvara, segulbandstæki fyrir snældur, útvarpstæki og sambyggð útvarps- og hljóðupptökutæki, bretti, töflur og stjórnborð, tannbursta, önnur rafmagnsheimilistæki. Ég ætla ekki að þreyta menn á löngum talningum og röksemdum fyrir þessu, en þær breytingar sem við fluttum í Ed. voru að okkar dómi mjög til bóta. Ég held að það ætti að skoða og tel raunar mjög mikilvægt að menn skoði þessi atriði, þannig að samræmis gæti í allri tollskránni.
Það hefur verið nokkuð rætt um að vöruverð muni lækka við þessa tollabreytingu. Það er rétt svo langt sem það nær. Ef tollarnir væru aðeins reiknaðir mundi auðvitað vera um verulega lækkun á vörum að ræða, en þegar litið er til vörugjalds sem er áætlað 17,5% af vörum verður ekki sú raunin á og það mun eftir sem áður vera hagstæðara að kaupa ýmsar vörur erlendis. Við höfum reiknað út — það var raunar áður en við vissum að það var 17,5% vörugjald, við reiknuðum aðeins með 14% vörugjaldi — að ef við lítum á meginland Evrópu sem er með innkaupsverð 105 kr. á vöru tekur ríkið þar 12,95% af því vöruverði. Á Íslandi er samsvarandi vöruverð, ef við göngum út frá sömu álagningarprósentu og er þar, komið upp í 383 kr. eða 42,5% hærri álagning ríkisins en er í Evrópu. Í heild er þá vöruverðið orðið 98,4% hærra hér en í Evrópu og þó er innkaupsverðið það sama og þá reiknað með 30% vörugjaldi. Þegar um 14% vörugjald er að ræða er varan orðin á 43% hærra verði en í Evrópu og þá tekur ríkið 31,9% til sín a móti 12,95% í Evrópu. Við sjáum því að þrátt fyrir það að tollar eru lækkaðir er varan svo hátt gjaldtekin hér að vöruverð verður þrátt fyrir þetta hærra hér áfram en á meginlandi Evrópu. Þannig er hægt að setja upp ótal dæmi varðandi þetta og útkoman verður alltaf sú sama að meðan við erum með vörugjaldið eru tollarnir í rauninni ekki lækkaðir, heldur er hér um raunverulega blekkingu að ræða: Þó að tollar lækki er vörugjaldið áfram og hið háa sölugjald.
Ég hef í máli mínu stiklað á nokkrum atriðum hér. Ég gæti farið miklu víðar yfir þetta. Ég er með ýmsar staðreyndir úr frv. sem er náttúrlega mjög viðamikið og það hefði verið æskilegt að ekki hefði verið fjallað um það núna í aðaljólaönnunum. Það hefði vel verið hægt að afgreiða það í byrjun þings eftir áramótin og þá með betri vinnubrögðum. Ég hefði talið mjög æskilegt að í nefndum hefði verið farið mjög rækilega í gegnum frv. og lagfærðir þessir augljósu annmarkar sem eru á því og það gert þannig úr garði að allir gætu sætt sig við það.
Það er hins vegar ljóst að að meginefni til er frv. til bóta og ég tel að hér hafi þó verið stigið framfaraspor og er mjög ánægður með að frv. skuli koma fram loksins eftir, að ég held, 20 ár. Ég man að alla tíð hefur verið sagt að frv. væri í endurskoðun og ég er ánægður með að það skuli nú vera hér til afgreiðslu. Hitt er annað mál að það vekur ýmsar spurningar um vinnubrögð. Það hefði verið betra að það hefði verið staðið ögn betur að þessu. En þrátt fyrir allt er ég í heildina ánægður.