18.12.1987
Neðri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2619 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

198. mál, tollalög

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. hélt hér stutta ræðu og er það út af fyrir sig ágætt. Það frv. sem hér liggur fyrir um tollalög, um breyt. á lögum nr. 55 frá 30. mars 1987, hefur verið mjög lengi í undirbúningi og þó að frv. hafi heldur versnað við afskipti utanaðkomandi aðila er þetta nauðsynlegt frv. og ég fagna því að það skuli vera komið fram. Ég hefði viljað sjá það fullunnið í höndum fagmanna en ekki brenglað og afvegaleitt eins og það virðist hafa verið af þeim sem hér hefur verið nefndur úr þessum ræðustól af öðrum en mér eins konar yfirráðherra Sjálfstfl. í skattamálum því að Sjálfstfl. er ekki ábyrgur fyrir þessum málaflokki lengur.

Hér er því miður öðruvísi að farið en til var stofnað á sínum tíma því að þegar frv. var unnið ásamt öðrum tekjuöflunarfrv. þann tíma sem ég var í fjmrn. stóð til að tekjur lækkuðu verulega á móti niðurskurði í útgjöldum og prósentur bæði í vörugjaldi og tollum lækkuðu að sama skapi. Þetta var liður í því að halda niðri verðbólgunni og halda niðri verðlagi í landinu.

Ég harma það að hæstv. fjmrh. stendur í þeirri meiningu að við þær aðgerðir sem lagt er til að verði samþykktar muni, eins og hann orðaði það, tollar standast samanburð við vöruverð erlendis. Ég held að það sé langt frá því að vera rétt, ég held að það sé eins rangt og hægt er að hafa nokkuð rangt. Það eru engir tollar á flestu erlendis, engir, og sér í lagi þar sem við verslum hvað helst, bæði England, Frakkland og meginlandið fá yfirleitt vörur frá löndum sem eru í samveldissamningum við viðkomandi lönd eins og t.d. Frakkland og England, þannig að það eru engir tollar þar á milli. Það segir að tollar séu aðallega felldir niður af matvörum. Hv. talsmaður Borgarafl. í þessum málaflokki, 5. þm. Vesturl., vék að því máli þannig að ég tel ekki ástæðu til að ítreka það en vil þó segja að það er alrangt að á mörgum þeim vöruflokkum sem flokkast undir matvæli séu enn þá gjöld.

Ég veit ekki hvað hæstv. fjmrh. meinar þegar hann segir að tollar lækki um 20—40% og stuðli þar með að því að verslunin flytjist inn í landið. Ég veit að það eru ýmsar vörutegundir sem flytjast inn í landið, ekki bara frá útlöndum heldur flytjast þær inn í verslunina frá Keflavíkurflugvelli, og á ég þar við rafmagnsvörurnar sem hæstv. ráðherra gat hér um. Lækkunin frá vöruverðinu í Keflavík er kannski meiri en lækkunin frá útsölu í verslunum erlendis. Í sumum tilfellum hefur það tollfrjálsa verið dýrara í rafmagnsvörum á Keflavíkurflugvelli heldur en út úr verslunum sums staðar erlendis.

Ég hef ekki trú á því meðan vörugjald er 17,5% og söluskattur 25% að vörusalan flytjist til landsins. Eins og kom fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. er ástandið t.d. þannig varðandi fatnað að við lesum um það svo til daglega að við bætast nýjar verksmiðjur, ný fyrirtæki sem loka sinni starfsemi. Og fleiri tugir manna verða atvinnulaus vegna þess að markaðurinn er ekki lengur fyrir hendi til að bera starfsemina á sama tíma og fólk fer til útlanda og kaupir framleiðslu sem er ekkert betri en það sem framleitt er hér heima. Má þá benda á sem dæmi að bæði sú verksmiðja sem nú síðast lokaði, þ.e. Hennes á Akranesi, og sama fyrirtæki á Selfossi, hafa flutt sína framleiðsluvöru til útlanda. Um tíma var verðið fyllilega sambærilegt og gæðin líka. Og ég verð að segja sem gamall knattspyrnumaður að ég var mjög stoltur af því þegar ég sá myndir frá enskum 1. deildar liðum í knattspyrnu sem voru klæddir fötum saumuðum hér heima af fyrirtækinu Henson sem nú var að loka og hætta sinni starfsemi.

Ég ætla ekki að fara nánar út í þá sálma en það er áberandi hvernig aðrar verksmiðjur geta haldið áfram árum saman og ausið út hundruðum milljóna árlega í taprekstur án þess að það líði nokkuð sérstakt fyrir að starfsemin gengur illa vegna þess að ríkissjóður borgar. Á ég þar náttúrlega alveg sérstaklega við Álafoss. Pólarprjón á Blönduósi er hætt þannig að markaðurinn vegna innanlandsáhrifa frá bæði tollskrá, vörugjöldum og öðrum gjöldum, opinberum gjöldum, á starfsemina er að sliga þessi fyrirtæki öll nema þau sem ganga óáreitt í ríkiskassann.

Ég tek undir athugasemd hv. 10. þm. Reykn. Kristínar Halldórsdóttur þegar hún gerir athugasemdir við það og segir réttilega að það sé óeðlilegt að þegar skuli vera farið að halda námskeið í ósamþykktum lögum. Það út af fyrir sig er óskiljanlegt vegna þess að það er svo mikil storkun í því og það sýnir hug meiri hlutans eins og hann er samansettur í dag til stjórnarandstöðunnar. Það skiptir ekki nokkru máli hvort stjórnarandstaðan á eftir að gera einhverjar athugasemdir, það heitir bara að röfla eða tefja eða vera með málþóf. En í mínum huga heitir þetta að afl hins sterka skal ráða en alls ekki undir neinum kringumstæðum skynsemin ef hún skyldi koma annars staðar frá heldur en frá meiri hlutanum. Hnefinn skal falla á stjórnarandstöðuna, jafnvel þó lög séu ekki samþykkt. Þetta er náttúrlega furðulegt.

Ég þekki nokkuð vel til vinnubragða og þess fólks sem hefur unnið af mikilli samviskusemi í fjmrn. að gerð þeirra tillagna sem hér eru kynntar í þessu frv. til laga um breyting á lögum nr. 55 frá 30. mars 1987, sem eru tollalög, og ég veit að þetta var vel unnið plagg. Og ég ítreka það að utanaðkomandi aðilar skuli hafa komið þar að á því stigi sem frv. er í vinnslu í ráðuneyti, en hefði talið eðlilegra að þessir sömu aðilar hefðu fengið tækifæri til þess að segja sitt í nefnd Alþingis eftir að Alþingi hefði fjallað um frv. eins og það hefði komið frá ríkisstjórninni. Að sjálfsögðu tek ég undir það með þeim kvennalistakonum eins og óskin var flutt af talsmanni þeirra, hv. 10. þm. Reykn., og einnig talsmanni Alþb., hv. 4. þm. Norðurl. e., að þeir aðilar sem eiga að fá að segja sitt, eins og Neytendasamtökin, verði kallaðir á nefndarfund og þeim kynnt málið og það rætt. Við skulum ekki gera of lítið úr Neytendasamtökunum.

Það var talað um það, ég man nú ekki hver sagði það hér úr ræðustóli í dag, að þau samtök væru veik og það svona lá í orðunum að vegna þess að þau væru veik þá ætti ekkert að vera að kalla á þau, það ætti ekki að láta þau tefja þingmál. Sem sagt: Við erum hinir sterku — það er það sem meiri hlutinn sýnir allan tímann. Við erum hinir sterku og þurfum ekki að tala við þann veika jafnvel þó hann sé skynsamur. Ég held að Neytendasamtökin þurfi að vera sterk og þau þurfi að vera áhrifamikil, en þau verða það ekki nema við gefum þeim afl, að þau fái kraft, að þau fái þrek og úthald frá okkur sem höfum notið trausts fólksins í landinu því þau eru að vinna fyrir fólkið í landinu alveg eins og við og að sama markmiði.

Ég er ekki sammála því, sem kom aðallega fram hjá hæstv. fjmrh., að með þessum breytingum á tollalögum sé verið að létta undir með, ja við skulum segja heimilunum, og þá á kostnað ríkissjóðs. Það er talað fyrir þessu frv. í þeim anda að verið sé að lækka tolla til að lækka vöruverð. Það er verið að minnka tekjur ríkissjóðs. Það svona felst í orðunum sem sögð eru þegar staðreyndin er sú að ríkissjóður er að taka að sumra mati um 10 milljarða umfram það sem hann áður gerði í innheimtu opinberra gjalda á öllum sviðum. Þannig að þetta er bara liður í nýju kerfi. Þetta er breytt aðferð til að ná inn peningum með blekkingum sem gefa ríkissjóði meira en ríkissjóður fékk áður. Það er ekki verið að létta undir með heimilunum á kostnað ríkissjóðs með þessari svokölluðu kerfisbreytingu. Það er verið að færa tekjuöflunina frá hefðbundnum innheimtuaðferðum yfir til heimilanna og atvinnuveganna. Það er verið að færa tap og hallarekstur ríkissjóðs yfir á heimilin. Þannig að þegar talað er eins og ríkisstjórnin sé að gera hér eitthvað fyrir fólkið, einhverjar mildandi aðgerðir, þá er ríkisstjórnin hinn eiginlegi refsivöndur á fólkið. Hún er hinn eiginlegi refsivöndur. Og við skulum þá bara vita það og taka því með opnum augum.

Ég hefði haft gaman af að fjalla svolítið um aðferðir til að flytja inn vörur vegna þess að það kom greinilega fram í máli hv. 2. þm. Vestf. að hann væri ekki alveg nógu inni í málinu, gangi mála til þess að vita eins vel og hann hefði þurft að vita hvernig innflutningur á sér stað. En ég ætla að sleppa því, ég kem svolítið að því þegar ég tek undir það sem kom fram hjá talsmanni Borgarafl., hv. 5. þm. Vesturl., þegar hann talaði um hagræðinguna í breytingunni. Það fer ekkert á milli mála að það sem verið er að kynna hér er til mikilla bóta á margan hátt og Borgarafl., eins og kom fram hjá hv. 5. þm. Vesturl., mun styðja þetta frv. þó það gangi ekki eins langt og við hefðum viljað.

En þegar við tölum um hagræðingu þá er það því miður að ráðstafanir eins og afnám bankastimplunar, það missir marks. Ég hugsa að það sé vegna þess að ráðamenn átta sig ekki á því hvers vegna bankastimplunin var lögð niður. Hún var lögð niður samkvæmt umræðum sem fram fóru í ríkisstjórn þeirri sem ég sat í og kennd var við Steingrím Hermannsson. Þar var skilningurinn sá að það væri óþarfi að þjóðfélagið, og þá bankakerfið íslenska, væri eins konar barnapía fyrir erlenda aðila á íslenska viðskiptaaðila þeirra, að það væri eðlilegra að menn gætu haft viðskipti á milli landa, þó að þeir töluðu ekki sama tungumálið, á nákvæmlega sama hátt og menn gera sín á milli hérlendis. Það dettur engum í hug að bankar fari að skylda þann sem kaupir frá verksmiðju á Akureyri — þar er svo stórt verksmiðjuhverfi — til Reykjavíkur, að bankar fari að skylda kaupandann hér í Reykjavík til að greiða fyrir vöruna inn í banka áður en hann fær hana afhenta í Reykjavík. Menn hljóta að geta ætlast til þess að viðskipti verði nokkurn veginn frjáls á milli aðila og þessir aðilar taka sjálfir ábyrgð á því sem þeir gera og alveg óþarfi að bankar komi þar inn á milli. Satt að segja hafði ég ekki hugmynd um, og ég efast um að nokkur af mínum samráðherrum hafi haft hugmynd um það að Seðlabankinn mundi koma þarna inn í myndina til að eyðileggja, eftir þeim upplýsingum sem hér hafa komið fram og ég heyri í fyrsta sinn, möguleikana á að þessi samskipti manna sem tala ólík tungumál geti verið jafneðlileg og þeirra sem tala sama málið og eiga samskipti innan lands.

Árið 1957 eða 1958 byrjaði ég ásamt öðrum að berjast fyrir því að hér kæmi tollvörugeymsla. Það var ekki fyrr en 1962 að hægt var að stofna tollvörugeymslu vegna vantrúar á að viðskiptin gætu gengið eðlilega fyrir sig undir nýju kerfi. En tollvörugeymslan hefur löngu sannað sitt ágæti og gert miklu meira en það sem þeir, sem unnu að tilvist hennar, sögðu að hún mundi gera því að til viðbótar við annað hefur hún verið eins konar öryggisventill um vörulager, lager að vörum í landinu komi eitthvað fyrir, eins og fríhöfnin í Kaupmannahöfn reyndist Danmörku þegar heimsstyrjöldin síðari skall á. Þá lifðu Kaupmannahafnarbúar og meiri hlutinn af Dönum í fleiri mánuði á þeim vörubirgðum sem til voru á lager í fríhöfninni þegar styrjöldin skall á, fyrir utan annað, að hér er alltaf til lager sem hægt er að fá afgreiðslu frá, vörur, fyrirvaralítið, í staðinn fyrir að bíða kannski í fleiri daga eða fleiri vikur eftir afgreiðslu erlendis frá.

Það er þetta, þegar eitthvað nýtt kemur upp, þá er eins og Íslendingurinn sé lokaður fyrir nýjungum, hræddur við það sem nýtt er. Svo ég tali nú ekki um að á sama tíma, 1957–1958, þá var byrjað að tala um tvennt annað en tollvörugeymslu, bankastarfsemi í sambandi við tollvörugeymsluna sem er komin á núna, kom 22 árum eftir að var byrjað að tala um það. En við erum enn þá að tala um fríhöfn. Og þó að skilningur hafi komið fram tímabundið hjá ríkisstjórninni og fríhöfn sé það besta sem getur komið í staðinn fyrir það tollabákn og má segja tollfyrirkomulag eða afgreiðslumáta eins og þau eru hjá okkur í dag hefur það ekki enn þá fengið skilning. Hvað er það? Það eru 30 ár sem sú barátta er búin að standa yfir og það voru aðeins tveir menn í ríkisstjórn sem um tíma voru reiðubúnir að vinna að því að breyta tollafyrirkomulagi, breyta starfsemi tollþjónustunnar og breyta tollskránni þá um leið. Það voru Magnús heitinn Kjartansson og Halldór E. Sigurðsson. Aðrir ráðherrar, sem ég hef haft tal af í þessi 30 ár, hafa ekki skilið málið. Það þokaðist pínulítið áfram þegar ég var fjmrh., en mér er sagt að það sé búið að breyta aftur í fyrra horf.

Það var reiknað út þegar ég var fjmrh. hve söluskattsprósentan þyrfti að vera há ef hún legðist á allar vörutegundir. Mig minnir að hún hefði þurft að vera 18% og var jafnvel talað um 17%. Ég minnist þess ekki að það hafi verið talað um 22% eða svo háa tölu. Munurinn á þeim tölum sem ég hef í huga og 25% söluskattinum sem nú er, svo ég tali nú ekki um þá blekkingu sem er í vörugjaldinu, er ekkert annað en nýjar álögur á fólkið í landinu sem undirstrikar það sem ég hef sagt: það er verið að færa tap ríkissjóðs frá ríkissjóði yfir á heimilin.

Það er annað sem er athygli vert. Það er sú blekking sem er í prósentutölu þegar ríkisstjórnaraðilar tala um 14% vörugjald sem við erum allir sammála nú um að er 17,5% vegna þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að heildsöluálagning skuli lögleidd 25% sem er sú langhæsta sem ég hef nokkurn tímann heyrt um á Íslandi. Ég hef aldrei heyrt getið um 25% heildsöluálagningu. En nú er hún lögleidd þannig að það eru 3,5% til viðbótar þessum 14% sem koma þar sem keðjuverkandi áhrif vegna þess að álagningargrunnurinn er hækkaður.

Virðulegur forseti. Það er ýmislegt hér. Ég ætla ekki að gera að umræðuefni neitt af því sem menn nefna til að fá aðra þm. til að hlæja, eins og handsprengjur og skriðdreka og slík leikföng stóru strákanna sem ég sé ekki af hverju eru í tollskrá yfir innflutning til Íslands. Við höfum aldrei haft menn sem kunna að nota sér slík tæki né hafa ástæðu til að flytja slíka vöru inn. En það er annað sem við flytjum mikið inn af, t.d. eins og viður og vörur úr viði, viðarkol o.fl. Og þetta, sem ég tek sem dæmi, er víða í skránni. Svo ég fari bara á bls. 130, en þar er talað um ýmis eflaust þekkt hráefni, en á útlendum málum sem mér er ekki nokkur leið að skilja. Mér er ekki nokkur leið að skilja þó svo að sum af þessum orðum, eins og Acajou d'Afrique, séu franska. Ég veit að það er eitthvað sem kemur frá Afríku. En hvað er Okoumé eða Obeche eða Sapelli, Sipo, Makoré, Iroko, Tiama, (SJS: Verður ekki að fá þetta þýtt?) Mansonia, Dibétou? Mér finnst það vera eitthvað allt annað en ég held að það sé. Ég get farið yfir þessar tvær síður. Hér er talað um á mörgum stöðum dökkrauðan Meranti, Ijósrauðan Meranti, Meranti Bakau, hvítan Lauan, hvítan Meranti, hvítan Seraya á tveimur eða þremur stöðum, Okoumé, Obeche, Sapelli, Sipo, Acajou d'Afrique á tveimur, þremur stöðum. Og svo kemur hérna: Viðurinn ef hann er sagaður eða höggvinn eftir endilöngu. Það er ekki sama hvort hann er klofinn eftir endilöngu eða þversum.

Ég skil þetta ekki og er ég þó búinn að vera áður en ég varð þm. nokkuð lengi í innflutningi og handfjatlaði þessar skrár nokkuð reglulega. En ég bendi ekki á þetta til þess að menn hlæi að þessu. Ég bendi á þetta til þess að vita hvort það er hægt að fá þetta íslenskað, ef það eru til íslensk orð yfir þetta, en a.m.k. að fagmenn á þessum tungumálum reyni að finna íslenskuna á þessi orð. Þetta er svo víða í bókinni. Og ég er alveg viss um að það eru ákaflega fáir, það gætu hugsanlega verið einhverjir iðnaðarmenn eða fagmenn, sem hafa einhverja hugmund um hvað þetta þýðir. (lBA: Tollstjóraembættið krefst íslenskra nafna á tollskýrslur.) Já, tollstjóraembættið krefst íslenskra nafna á tollskýrslur og ég var kannski með það í huga þó að ég hafi ekki tekið það fram vegna þess að ég gleymdi að geta þess að tollstjóraembættið krefst þess að tollskýrsla sé fyllt út á íslensku. Það er ekki auðvelt með þessum heitum — nema þetta séu talin íslensk nöfn, en ég skal ekkert um það segja því að ég þekki það ekki.

En hæstv. forseti. Nema ráðherra gefi sérstakt tilefni til hef ég lokið máli mínu. Í aðalatriðum fagna ég framkomu frv. Það er búið að vera lengi á leiðinni. Mér tókst ekki sem fjmrh. að koma því til afgreiðslu Alþingis á sínum tíma. En ég harma að það skuli vera verr úr garði gert en efni stóðu til, eingöngu vegna þess að utanaðkomandi aðilar, sem hefðu átt að eiga aðgang að þingnefnd þar sem fulltrúar allra þeirra sem eru kjörnir í nefndirnar gátu rætt við þá og hlustað á þeirra rök, fengu að hafa slíkt forskot og áhrif á þetta frv. að það er verra en það var orðið á sínum tíma áður en þeir komu nálægt því.