18.12.1987
Neðri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2639 í B-deild Alþingistíðinda. (2012)

198. mál, tollalög

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Hæstv. forseti. Það eru aðeins örfá orð af því að til mín var beint fyrirspurnum sem ég vil og tel mér skylt að svara. Reyndar hefur hæstv. fjmrh. farið ítarlega yfir málið og dregið fram þau sjónarmið sem auðvitað hafa verið ofarlega og ríkt í umfjöllun um endurskoðunina á tollalögunum og tollskránni og reyndar þeim frumvörpum öðrum sem hafa verið til meðferðar í hv. Alþingi og fjalla um ýmsar mikilvægar neysluvörur og ráða eða stjórna að verulegu leyti verði á þeim.

Endurskoðunin á tollalögunum eða tollskránni er ekki ný. Hún er búin að vera í gangi lengi, í mörg ár, og ég held að allir hafi verið sammála um að það var virkilega þörf á því að taka þetta mál til endurskoðunar og til einföldunar og aðalástæðan fyrir þessum breytingum, svo og breytingum á söluskattskerfinu og vörugjaldinu, er fyrst og fremst sú að gera það einfaldara og skilvirkara. Það er í raun það sem er grundvallaratriðið í þessu máli öllu saman og það er forsenda þess að við teljum nauðsynlegt að leggja þessi frv. fram og fá þessar breytingar í gegn. Ég er fylgjandi þessum breytingum.

Mér er það auðvitað alveg ljóst að það er ekki allt eins og menn hefðu kannski helst viljað eða helst kosið. Við því verður ekki gert. Það er svo að það er auðvelt að tína út úr einstök atriði, benda á það að einstakir vöruflokkar hækki og aðrir lækki og þetta eða hitt sé óeðlilegt. Ég tel að það sé vegna þess að þessi einföldun og þessi samræming var nauðsynleg og hún dregur þetta fram en það segir okkur ekkert um það að það kerfi sem við erum að breyta hafi verið betra en það sem við erum að taka upp. Þetta eru hins vegar bara þær staðreyndir sem koma út úr þessum breytingum og þeim leiðréttingum sem hér er verið að gera. Ég tel þessa einföldun nauðsynlega til þess að fá fram skilvirkara tolla- og skattakerfi.

Ég vil taka undir það með hæstv. fjmrh. að söluskattskerfið, sem hefur ríkt, var orðið ónýtt. Það var nauðsynlegt að lagfæra það og ég hygg að það hafi verið nákvæmlega það sama sem átti við um tollskrá og tollalöggjöf.

Það kann líka að vera að það sé hægt að draga það fram að einstaka breytingar, sem hér eru gerðar, samrýmist ekki svokallaðri manneldisstefnu, en ég vil leggja á það áherslu að það er fleira manneldisstefna en mataræði þó að mataræði sé auðvitað mikilvægt þar líka. Það eru ýmis önnur atriði í heilbrigðissjónarmiðum, heilbrigðisstefnu, sem þarna koma fram sem þarf að taka tillit til þegar rætt er um manneldisstefnu. Það er margs konar önnur neysla og það er margs konar hegðun, það eru hollir lifnaðarhættir, það er útivist, það eru íþróttir og það er margt fleira slíkt sem er ástæða til að benda á.

Hv. 4. þm. Norðurl. e. spurði um afstöðu t.d. landlæknis og hugsanlega embættismanna eða starfsmanna ráðuneytis og stofnana sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið. Mér er auðvitað kunnugt um hana og er sjálfsagt og skylt að segja frá því hér að landlæknir hefur gert athugasemdir við einstaka þætti í þessum breytingum og talið að það væri erfitt að sætta sig við þær og áhrifin á einstaka neysluvörur. Ég tel hins vegar að þau meginmarkmið, að einfalda kerfið, gera það skilvirkara og auðveldara í framkvæmd og þar með auðveldara í eftirliti og skatta og tolla auðveldari í innheimtu, verði að sitja þarna í fyrirrúmi. Það er ekki alltaf auðvelt að þjóna tveimur herrum. Ef líkja má því saman við þetta mál sem við erum að framkvæma hljóta að koma upp í þessu álitaefni, mál sem kunna að stangast á. Við erum að reyna að ná fram ákveðnum áherslum, ákveðnum breytingum, og við verðum þá líka að sætta okkur við það þó að það kunni að koma niður á öðrum atriðum.

Við höfum í þessu sambandi lagt áherslu á það að halda niðri vöruverði á ýmsum mikilvægum neysluvörum sem hækka lítið eða ekki neitt, eins og t.d. mjólk, skyri, smjöri, kjöti, svo að eitthvað sé upp talið. Við höfum á hinn bóginn samþykkt að það komi tollar á t.d. grænmeti vegna þess að við erum þar að gæta að öðrum hagsmunum eins og hagsmunum þess fólks sem vinnur við framleiðslu á innlendu grænmeti. Við erum þar að vernda ákveðna hagsmuni og þannig hlýtur þetta oft að geta farið að við náum ekki fram öllu sem við viljum og einstakir efnisþættir kunna að rekast á. Við höfum lagt til að lagt sé sérstakt vörugjald á ýmsa vöruflokka sem eru taldir miður hollir, eins og sælgæti, kex, öl, gosdrykki, safa og ég hefði gjarnan — ég vil láta það koma fram hér — ég hefði gjarnan viljað að það væru líka tollar eða vörugjald á sykri, en um það hefur ekki náðst samkomulag og það er svo, eins og ég hef reyndar áður sagt hér, að menn verða stundum að sætta sig við hluti þó að þeir séu ekki alveg nákvæmlega eins og maður hefði helst viljað hafa þá.

Ég vona að þetta hafi að einhverju leyti svarað þeim fsp. sem hv. 4. þm. Norðurl. e. beindi til mín varðandi þessi mál. Ég ætla ekki að orðlengja um það frekar en tel að verið sé að reyna að koma fram svo mikilvægum breytingum á tollalöggjöf og skattamálum að menn verði að sætta sig við það þó að það kunni að vera hliðarverkanir ýmsar sem maður hefði gjarnan viljað hafa öðruvísi en við fáum ekki við ráðið.