18.12.1987
Neðri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2649 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

198. mál, tollalög

Níels Árni Lund:

Herra forseti. Það sem ég vildi segja í þessari umræðu er það að almenningur á Íslandi krefst þess að meira réttlæti verði í skattheimtu en verið hefur á undanförnum árum, jafnvel áratugum. Þar hefur viðgengist hróplegt misrétti á margan máta. Ég tel að það frv., sem hér er til umræðu, um ný tollalög sé í áttina að því að bæta það. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt fyrir okkur að styðja þetta frv. og ég fullyrði að það getur vart verið verra en það er í dag. Fólk er yfir sig gáttað yfir því skattamisrétti sem viðgengst. Ekki því að margur hver fárast yfir sínum eigin skatti heldur miklu fremur því ef það lítur á hvað nágranninn borgar sem það veit að á að borga miklu meira. Ég hef þá trú að þessi tollalög komi kannski til með að leiðrétta þetta eitthvað. Það getur varla verra verið og því mun ég styðja þetta frv. heils hugar.