21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (204)
43. mál, leyfi til slátrunar
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Um það leyti sem umræða fór fram um þetta mál í gær barst Framleiðsluráði landbúnaðarins eftirfarandi skeyti, með leyfi forseta:
„Þar sem settur yfirdýralæknir hefur með bolabrögðum komið í veg fyrir að við gætum slátrað í okkar eigin húsi óskum við eftir því að Framleiðsluráð sjái um að útvega slátrun á því fé sem annars hefði verið lógað hér. Um er að ræða hér um bil 3000 fjár. Svar óskast hið bráðasta.
Sláturfélag Arnfirðinga, Bíldudal.“
Í morgun svaraði Framleiðsluráð með eftirfarandi skeyti til Sláturfélags Arnfirðinga:
„Skeyti frá í gær móttekið. Sláturhúsið á Patreksfirði stendur félaginu til boða til afnota við slátrun næstu daga. Leiga í samræmi við áætlun fimm manna nefndar. Hún ræðist við forstöðumann Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Flutningskostnaður yrði væntanlega greiddur af verðmiðlunarfé. Ari Ívarsson er hús- og vélgæslumaður á Patreksfirði. Slátrun mundi félagið sjálft fá leyfi til að annast og framkvæma á sína ábyrgð. Kjötskoðunarmaður fæst til starfa á Patreksfirði. Látið vita í dag.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.“
Framleiðsluráð brást þarna skjótt við þegar beiðni barst til þess. Þarna er um að ræða sláturhús sem er í eigu Stofnlánadeildar landbúnaðarins sem það bendir á að standi til boða með ekki meiri kostnaði en gert er ráð fyrir í verðlagningu á slátrunarkostnaði og slátrun geti þarna farið fram að fullu á ábyrgð Sláturfélags Arnfirðinga.
Þarna er bent á leið til að leysa vanda Arnfirðinga. Með frv. sem hér er flutt af átta hv. alþm. á þskj. 43 er hins vegar farið inn á aðra leið sem ég tel svo dýru verði keypta fyrir Arnfirðinga eins og aðra sauðfjárbændur að hún sé alls ekki fær.
Ég sagði það í gær, eins og hv. 1. þm. Vestf. vitnaði í áðan, að ekki væru lagaheimildir að veita sláturleyfi ef ekki fengist þar maður, dýralæknir eða trúnaðarmaður dýralæknis, til að taka ábyrgð á að slátrun gæti farið fram á viðunandi hátt. En ég sagði jafnframt að ég mundi ekki leggja til hvað snertir kröfur til heilbrigðismeðferðar á kindakjöti að lögum yrði breytt til þess að þær yrðu rýmkaðar. Það mikils met ég kindakjötið. En hér hafa þessir hv. átta alþm. lagt til að þegar dýralæknar telja sig ekki geta mælt með slátrun á grundvelli þeirra laga og reglna sem Alþingi hefur sett ákveði Alþingi að það álit heilbrigðisyfirvalda skuli að engu haft.
Ég vænti þess að flestum hv. alþm. sé kunnugt að það er grundvallaratriði við sölu allra matvæla að heilbrigði þeirra sé tryggt. Kröfur um slíkt hafa sífellt farið vaxandi, bæði vegna þess að við teljum að á því sviði séu sífelldar framfarir í okkar þjóðfélagi eins og öðrum og líka að það virðist vera að þörfin fyrir slíkt sé vaxandi vegna þess að smithætta verður meiri. Það hefur m.a. komið fram í sumar í sambandi við aðra kjöttegund, því miður. Þar var ráðið, sem bent var á til úrbóta, að herða kröfur til dýralækna um að fylgjast betur með.
Það er viðurkennd regla og lög í öllum löndum í kringum okkur að dýralæknum er falið að annast þetta í sambandi við kjöt. Og ef við ætlum að flytja út kjöt frá Íslandi er slíkt nauðsynlegt. Ef Alþingi ætlar að marka þá stefnu að það skuli ekki byggt á áliti dýralækna erum við þar með að kippa fótunum undan möguleikum til útflutnings. Innflutningur byggist á vottorðum frá yfirvöldum í viðkomandi landi. (Gripið fram í.) Á vissum tegundum. Það er alveg rétt, hv. alþm. En ég býst við að það ættu flestir að sjá hvernig væri komið fyrir sauðfjárræktinni í landinu ef núna yrði lokað fyrir útflutning algjörlega. Það hefur verið talað um það stundum að það hafi ekki verið unnið nægjanlega vel að útflutningi, en nú á að marka stefnu á Alþingi sem kippir algjörlega grundvellinum undan slíku.
Hér var í þessum mánuði á ferð dýralæknir frá Efnahagsbandalagi Evrópu. Hann var að skoða þrjú hús sem hafa fengið leyfi til útflutnings til landa bandalagsins. Hann benti á ýmis atriði sem betur þyrftu að fara og forráðamenn þessara sláturhúsa sögðu að margt mætti þar til sanns vegar færa. Þeir hafa ákveðið að reyna að bæta þarna úr til þess að við höldum opnum þessum möguleika. En hvernig eigum við að gera kröfur til þeirra húsa ef Alþingi markar þá stefnu að ekki þurfi að taka tillit til athugasemda dýralækna? — Ég held að þarna sé því farið út á svo hála braut fyrir íslenska sauðfjárrækt að ég vonast til þess að hv. alþm. hugsi sig vel um áður en þeir gera það.
Hv. 1. þm. Vestf. rakti greiðslur frá þessu sláturhúsi á sl. ári. Hann rakti hvernig þar hefði verið farið að mestu leyti virtist mér í samræmi við ákvæði búvörulaganna sem kveða á um hvernig greiðslur til bænda skuli fara fram. Ég veit ekki til þess að stórlega hafi verið vikið út frá því hjá öðrum sláturleyfishöfum í sambandi við afurðir frá si. hausti, a.m.k. hef ég ekki heyrt kvartanir um slíkt. Það er að sjálfsögðu alveg rétt að ef menn telja að valdi sé misbeitt og menn geri það sem rangt er fari fram rannsókn á slíku. Ég er sannfærður um að viðkomandi dýralæknar og dýralæknastéttin í heild munu vera því hlynnt að þetta sé rannsakað þannig að í ljós komi við hvaða rök þau stóryrði styðjast sem hér hafa fallið og sums staðar annars staðar líka til þeirra. En ég held við leysum ekki mál með slíkum málflutningi.
Eins og ég sagði í upphafi hefur Framleiðsluráð landbúnaðarins bent þarna á leið fyrir bændur í Arnarfirði til að koma fé sínu til slátrunar með ekki lakari kjörum en aðrir bændur í landinu og ég vonast til þess að með því sé leystur þeirra vandi og þá um leið það mál sem hér er til umræðu og við viljum öll að sjálfsögðu að leysist á sem farsælastan hátt, en ég ítreka að það má ekki vera of dýru verði keypt fyrir sauðfjárræktina í heild og íslenska landbúnaðinn.