19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2670 í B-deild Alþingistíðinda. (2045)

196. mál, söluskattur

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Júlíus Sólnes):

Virðulegur forseti. Ég held að það þurfi ekki að koma neinum á óvart þó við stjórnarandstöðuþm. í hv. Ed. reynum að fara nákvæmlega í gegnum það frv. til l. um breytingu á söluskattslögum, sem liggur fyrir deildinni, áður en það er afgreitt til Nd. Hér er, eins og hv. 7. þm. Reykv. gat um áðan, um að ræða eitt mesta tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs og það sem við samþykkjum hér og nú í hv. deild hefur kannski hvað mest að segja varðandi tekjuáætlun ríkisstjórnarinnar. Fyrir svo utan það að lögin um söluskattinn koma e.t.v. langverst við hinn almenna launþega í landinu. Hér verða örlög lágtekjufólksins ráðin á næstu klukkutímum. Þótt möguleiki sé fyrir hendi að þm. í hv. Nd. muni gera einhverjar breytingar á frv. eftir að meðferð okkar hér í hv. Ed. er lokið er ekki við því að búast að það verði neinar stórfelldar breytingar sem komi til með að skipta sköpum. Því finnst mér afar eðlilegt að við yfirgefum ekki frv. né ljúkum umræðum fyrr en við erum búin að fá svör við öllum spurningum og málin séu hrein og skýr.

Ég vil enn þá einu sinni leyfa mér að vitna til stuttrar blaðagreinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem haft er eftir hæstv. fjmrh. að aldrei hafi tekjuáætlun ríkissjóðs verið eins nákvæm og fullkomin og nú. Við stjórnarandstöðuþm. teljum okkur hins vegar ráða það af þeim skjölum sem hefur verið útbýtt og þeim upplýsingum sem við höfum fengið frá ýmsum embættismönnum fjmrn. og ríkiskerfisins að það sé þvert á móti hið gagnstæða sem sé staðreynd. Aldrei hafi tekjuöflun eða tekjuáætlun ríkissjóðs verið eins óviss og nú. Hún er óviss með þeim hætti, að mínu mati, eftir að hafa reynt að setja mig inn í fyrirliggjandi gögn eins vel og mér hefur verið framast unnt, að óvissan sé öll á plúshliðinni. Það er við því að búast að um stórfellda tekjuaukningu umfram tekjuáætlun verði að ræða á næsta ári.

Ég hef í höndunum vinnuskjal frá Þjóðhagsstofnun frá 4. des. 1987 og mig langar, með leyfi virðulegs forseta, að fá að lesa upp úr þessu vinnuskjali nokkrar tölur sem eru fróðlegar varðandi einmitt tekjuáætlun ríkissjóðs. Þar segir svo:

Heildartekjur skv, fjárlögum 1985 voru áætlaðar 25 milljarðar 335 millj. kr. Á árinu 1985 innheimtust hins vegar, þ.e. heildartekjur ríkissjóðs urðu, rúmlega 27 milljarðar 109 millj. kr. og þannig urðu heildartekjur ríkissjóðs á árinu 1985 7% meiri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Á árinu 1986 urðu þessar umframtekjur ekki mjög miklar. Þar kemur fram að heildartekjur skv. fjárlögum 1986 voru áætlaðar 37 milljarðar 854 millj. kr. en urðu 38 milljarðar 112,988 millj. kr. Hér er um að ræða 0,7% hækkun frá fjárlögum.

Það er hins vegar athyglisverðast að fjárlög 1987 gera ráð fyrir heildartekjum ríkissjóðs að upphæð 43 milljarðar 29 millj. kr. Skv. áætlun sem Þjóðhagsstofnun hefur gert í september munu innheimtast á árinu 1987 47 milljarðar 490 millj. kr. eða hækkun er 10,4%. Þetta er afar athyglisvert. Fyrir árið sem nú er að líða hafa heildartekjur ríkissjóðs orðið 10,4% hærri en áætlun skv. fjárlögum gerði ráð fyrir. Þetta er ekkert smáræði. Hér munar kannski mestu um þær gífurlegu álögur sem voru settar á allan almenning og fyrirtækin í landinu strax eftir að núv. hæstv. ríkisstjórn kom til valda 8. júlí sl. þannig að það hefur væntanlega gerst á seinni helmingi ársins 1987 að tekjurnar fara skyndilega að vaxa svona ört.

Með þeim veltubreytingum sem óhjákvæmilega verða á næsta ári er alveg ljóst að umframtekjur ríkissjóðs verða sennilega miklum mun hærri en hér er verið að tala um og kæmi mér ekki á óvart þó heildartekjur ríkissjóðs, þegar við stöndum upp fyrir jólin 1988 að ári liðnu, verði kannski um 15%. Mér kæmi ekki á óvart þó það nálgaðist 20% sem tekjur ríkissjóðs verða hærri en nemur áætlun skv. fjárlögum. Það endar líklega með því að hæstv. fjmrh. verður að grípa til svipaðra aðgerða og teiknimyndafígúran Jóakim von And, en aðalvandamál hans var það að „peningatankurinn“ hans var alltaf að rifna af því að hann troðfylltist svo af peningum. Það væri gaman að fá álit hæstv. fjmrh. á því hvað hann ætlar að gera við alla þá peninga sem koma í ríkissjóð umfram tekjuáætlunina þegar fólkið í landinu er farið að borga matarskatt af soðningu, hugsið þið ykkur, af soðningunni!

Það er afar fróðlegt að lesa dagblöðin þessa dagana og sjá yfirlýsingar hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni stangast á hverja við aðra. Einn segir að raunvaxtaokrinu verði að linna, en það er einmitt sá ráðherrann sem hefur verið í litlum takt við efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Hann hefur því miður verið það mikið fjarverandi að hann hefur lítið getað fylgst með hvað blessaðir hæstv. ráðherrar efnahagsmála eru að bjástra hér á hólmanum meðan hæstv. utanrrh., sem hér er átt við, hefur verið í útlöndum mestallan þingtímann frá því þing hófst hér 10. október. Þannig er ekki von að hann sé alveg í takt við það sem hæstv. ráðherra efnahagsmála er að gera. Leikur grunur á að hann muni geta notfært sér fjarveru sína þegar farið verður að tala um hinar óvinsælu efnahagsráðstafanir núv. hæstv. ríkisstjórnar við næstu kosningar. Það verður gaman að taka þátt í þeirri kosningabaráttu og fylgjast með því þegar hæstv. ráðherrar bæði Sjálfstfl. og Framsfl. í núv. hæstv. ríkisstjórn munu bera þetta allt af sér og bera því annaðhvort við að þeir hafi verið fjarverandi eða þeir hafi orðið að láta hæstv. ráðherra Alþfl. komast upp með þetta til að halda ríkisstjórninni saman. Ég er ekki í nokkrum vafa um hver fær sökina a.m.k. þegar svo langt verður komið.

En það er enn fremur mjög fróðlegt að velta fyrir sér hugmyndum hinna ýmsu ráðgjafarstofnana hæstv. ríkisstjórnar, Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka m.a., sem virðast nú vera komnar í hár saman um hver verði þróun efnahagsmála á næsta ári. Ég held að ég hafi aldrei lesið eins vitlaust plagg og þegar Seðlabankinn lét það frá sér fara að verðbólgan yrði hugsanlega komin niður í 5% undir árslok 1988. Það hefði frekar átt heima í þeirri teiknimyndaseríu sem ég var að vitna til áðan, í teiknimyndaseríunni vinsælu um Jóakim von And. Hún hefði betur átt heima þar, þessi spá.

Dettur nokkrum í hug að alþýða þessa lands og allt launafólk muni taka því þegjandi og hljóðalaust að helstu nauðsynjavörur heimilanna verði settar undir 25% söluskatt? Ég hef oft áður í umræðunum um söluskattsfrv. vikið að því óréttlæti að helstu nauðsynjavörur heimilanna verði nú með 25% söluskatti. Ég hef enga trú á því, þó svo að Íslendingar séu upp til hópa löghlýðið fólk og láti yfirleitt alla óáran yfir sig ganga, að þeir taki henni með jafnaðargeði og reyni síðan að standa árásirnar af sér eins og best verður gert. Eins og ég segi hef ég oft bent á að við höfum ekki þann blóðhita sem fylgir Suður-Evrópuþjóðunum sem fyrir löngu væru komnar út á göturnar. Það mætti segja mér að uppreisnin væri nánast hafin ef svona skattaálögur hefðu verið settar á í löndum Suður-Evrópu. En alþýða manna hér uppi á Íslandi lætur þetta yfir sig ganga. Hún mun beita öðrum aðferðum til að verja sig. Ég hygg að þær aðferðir verði fyrst og fremst þær að í komandi kjarasamningum verði barist hart við samningaborðið. Og það er ekki nokkur vafi á því að launafólkið mun krefjast þess að kaupmátturinn haldist. Það mun reyna að beita vörnum við þeim hækkunum sem nú blasa við á helstu nauðsynjavörum og matvörum heimilanna. Það er því alveg ljóst að það verða settar fram gífurlegar kaupkröfur á næstunni þegar kjarasamningarnir fara virkilega á skrið. Þá verður gaman að sjá hvað verður um verðbólguspá þeirra seðlabankamanna sem voru svo bjartsýnir að þeir spáðu 5% verðbólgu hér við lok ársins.

En að lokum hefði ég gaman af því að fá svör við þeirri spurningu: Hvað áætlar hæstv. fjmrh. að umframtekjur ríkissjóðs á árinu 1988 verði miklar? Verða þær 10% eins og virðist stefna í með umframtekjur ríkissjóðs fyrir árið 1987 eða verða þær nær 20% sem mér kæmi ekki á óvart?