19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2673 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)
196. mál, söluskattur
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég ætlaði satt að segja ekki að tala í þessari umræðu, en kemst varla, held ég, hjá því að segja örfá orð einkum og sér í lagi þar sem svo vel ber í veiði að bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. eru í deildinni okkur til ánægju og heiðurs. En fyrst vil ég taka fram að ég ætla ekki neitt frekar að ganga eftir upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun eða öðrum. Ég hef margsagt að það sé mjög erfitt að áætla tekjur t.d. í því frv. sem hér er til umræðu. Ég er sannfærður um að þær verða miklu meiri en þar um getur, en ég get ekki sannað það frekar en hinir embættismennirnir geti sannað að svo muni ekki verða. En mér finnst hitt þó óviðkunnanlegt að forstjóri Þjóðhagsstofnunar skuli ekki svara hæstv. fjmrh. bréfi sem hann ritar strax að umræðu lokinni hér um miðja nótt og forstjórinn hefur þá haft undir höndum í tvo eða þrjá sólarhringa, að hann skuli ekki svara að hann geti ekki upplýst málið. Það er allt í lagi að svara því. En láta ráðherrann þurfa að koma hér og segjast ekki hafa fengið neitt svar frá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar, það finnst mér óviðkunnanlegt. (SvG: Ég er sammála.) Kannski hefur bréfinu bara verið hent beint í ruslakörfuna án þess að opna það. Ég veit ekki um það.
En hæstv. fjmrh. hefur í tvígang hafið almenna efnahagsmálaumræðu og það á þessum sama næturfundi. Ég sagði þá að hér væri staður en ekki stund til að ræða almennt um efnahagsmálin. Hér er vissulega staður til þess einmitt í þessari hv. þingdeild þar sem yfirleitt fara fram málefnalegar umræður og menn reyna að varast að vera með a.m.k. of mikið af skætingi eða útúrsnúningum. En þar að auki bætist við að hæstv. utanrrh. tekur heldur betur upp í sig í blaði sínu, Tímanum. Því miður er hann ekki hér í húsinu. Ég hefði gjarnan viljað að svo væri. En ég hygg að sjaldan hafi einn ráðherra ráðist harkalegar að öðrum í samsteypustjórnum en gert er í þessu viðtali við hæstv. utanrrh. Hann segir t.d., með leyfi forseta:
Þá held ég að menn hljóti nú að fara að viðurkenna að svona getur ekki gengið. Þetta mun ríða fjölmörgum fyrirtækjum að fullu og getur ekki gert annað en blása mjög á glóðir verðbólgunnar.“
Út af fyrir sig er ég sammála þessu og skal skýra frá mínum rökum á eftir.
„Ég er því ósammála því, sem kom fram hjá viðskrh. Jóni Sigurðssyni, að menn ættu að bíða og sjá hvort þetta markaðslögmál virki. Ég er ansi hræddur um að menn bíði of lengi og skaðinn verði orðinn of mikill“ o.s.frv. o.s.frv.
Ég verð að rifja aðeins upp forsögu, en vil fyrst benda á að hæstv. utanrrh. talar um að einhver frjálshyggja ríki í peningamálum á Íslandi. Frjálshyggja þýðir í mínum orðabókum ekkert annað en fríhyggja eða trúleysi. En ef hann á við frjálsræði eða frjálslyndi, það sé frjálslynd stefna í peningamálum, þá er það argasta öfugmæli. Á Íslandi er mesta stjórnlyndi í peningamálum sem þekkist í lýðræðisríki. Það fullyrði ég. Svona fyrirbæri er hvergi nokkurs staðar í veröldinni til, allt það stjórnleysi, ofstjórnarbrjálæði í peningamálum. Það eina sem ekki er hægt að skammta eru peningar. Það er óleyfilegt. Það er ekki hægt að mismuna mönnum eins og gert var hér á verðbólgutímanum þegar vextir voru kannski upp í 40% neikvæðir og peningunum svo mokað til vildarvina, en alþýðan auðvitað sat fyrir utan.
Ég verð að rifja aðeins upp söguna. Það gerðist hér nefnilega einu sinni að næturlagi að það var smeygt inn í bandorm ríkisstjórnarinnar heimild til Seðlabankans að hækka bindiskyldu úr 28% í 38. Hver skyldi hafa gert það? Veit hæstv. viðskrh. hver gerði það? Ég fékk að vita þetta um hálfátta um morguninn þegar átti að leggja frv. fram og búið var að prenta það og sagt að það hefði ekki náðst til mín. Auðvitað greiddi ég atkvæði gegn þessu ofbeldi, að ætla að frysta fólk í hel, svelta það í hel með því að loka öllum peningastofnunum. Það kom í minn hlut, kannski hefur það aldrei gerst áður á Alþingi, að ég talaði bæði fyrir áliti meiri hl. nefndarinnar, nefndarinnar allrar og síðan fyrir séráliti mínu, allt í sömu ræðunni og sumt af því sem var í þessum bandormi samþykkti ég með hangandi hendi. Ég held ég hafi rétt upp vinstri höndina einstaka sinnum. En það tókst þó að þrýsta þessari bindiskyldu úr 28 niður í 18.
Síðan gerist það í þessari hv. deild í aprílmánuði 1986 undir þinglok að hér er samþykkt að færa bindiheimild Seðlabankans í upprunalegt horf sem var 10%. Það var samþykkt með talsverðum atkvæðamun. Auðvitað átti málið þá að ganga til Nd. Ég féllst á að gera sátt við seðlabankastjóra og hún var bókuð í fundagerðarbók fjh.- viðskn. 21. apríl 1986, svohljóðandi með leyfi forseta, en seðlabankastjórarnir komu á fund með skriflega bókun og hún er orðuð svona:
„Peningamarkaðurinn hefur verið að þróast ört í frjálsræðisátt hér á landi undanfarin tvö ár. Þetta gefur færi á að draga úr beinum hömlum á útlánastarfsemi bankanna, svo sem innlánsbindingu, sem þegar hefur verið lækkuð úr 28% í 18%. Bankastjórn Seðlabankans mun leggja áherslu á að þessi þróun haldi áfram svo ört sem markaðsaðstæður og ytri skilyrði leyfa. Væntanlega verður unnt að taka umtalsvert skref til lækkunar á innlánsbindingu síðar á árinu.“ — Punktur, amen.
Þetta var auðvitað aldrei gert. Og þegar það loksins var gert að forminu til var það tekið til baka og rúmlega allt með því að heimta einhverja svokallaða lausafjárstöðu bankanna. Það er alltaf verið að búa til allra handa kenningar. Núna er bindiskyldan í raun 21% en ekki 10% eins og þessi deild samþykkti og Alþingi hefði vafalaust samþykkt hefði ég ekki verið sá asni að láta mér nægja þessa bókun.
Og nú er talað um að frysta meir. Það er talað um að það vanti yfirsýn, vanti meiri stjórn peningamála. Hver á að stjórna peningamálum á Íslandi? Hvað gera seðlabankar t.d. erlendis? Þeir hafa heimild til að ráða sínum forvöxtum og hækka þá og lækka um 1%, um 1/2% var núna verið að lækka í Þýskalandi o.s.frv. Og vextir á alþjóðamarkaði eru mjög lágir. Ég hygg að það sé rétt, sem hæstv. utanrrh. segir, að raunvextir á Íslandi séu helmingi hærri en annars staðar. Hvers vegna? Liggur það ekki í augum uppi? Ef það eru frjálsir vextir, þá verða líka að vera frjálsir peningar. Þá verður ríkisvaldið að sinna þeirri frumskyldu sinni að sjá til þess að eðlilegt peningamagn sé í umferð. Það getur ekki fryst peninga og svelt markaðinn og haldið svo að vextirnir lækki. Auðvitað verða okurvextir í því þjóðfélagi.
Ég hef skrifað svo mikið og rætt svo mikið um þessi mál að allir sem nenna að kynna sér það geta gert það. Ég ætla ekki að tefja tímann hér. Það var samkomulag um að reyna að ljúka öðrum málum en kvótanum svokallaða fyrir hálffjögur og ég stend að því samkomulagi. En ég komst ekki hjá að vekja aðeins athygli á þessu, að auðvitað gengur engin stefna neinnar ríkisstjórnar upp ef á að frysta alla peninga og maska fjármálakerfi þjóðarinnar. Þá er alveg sama hvað skattar eru miklir, háir eða lágir. Þetta er röng stefna í peningamálum, þetta er kreppustefna og það hafa verið kreppustjórar hér síðasta hálfan annan áratuginn, sem hafa ætlað sér að ráða öllu í þessu þjóðfélagi, öllu peningavaldi. Nú vill raunar svo til að þeir hafa ekki ráðið öllu vegna þess að í heiminum eru peningar að hverfa úr umferð. Þetta er allt að fara í tölvur og telex og ávísanir fram og til baka og þeir geta ekki fylgst með hverri einustu athöfn sem betur fer. Annars væri hér allt komið á hvínandi, hvínandi hausinn.
Ég vona bara að ráðherrarnir hugsi nú sitt ráð. Hvers vegna er þetta allt saman svona hjá okkur? Er það vegna þess að það vanti fleiri „apparöt“, fleiri þjóðhagsstofnanir, fleiri seðlabanka, það vanti meiri yfirstjórn, meiri samræmingu, meiri upplýsingar?
Það vantar frjálsræði. Þetta er stjórnlynd stefna en ekki frjálslynd.