19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2687 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

196. mál, söluskattur

Júlíus Sólnes:

Virðulegi forseti. Hér er runnin upp úrslitastund í sögu íslensku þjóðarinnar. Hér er verið að reyna að forða okkur frá því slysi að það verði settur söluskattur á undirstöðufæðutegund þjóðarinnar, fisk. Ég vona að þm. beri gæfu til að forða þjóðinni frá þessu slysi. Ég segi já.