21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

43. mál, leyfi til slátrunar

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Mér þykir rétt að skýra með nokkrum orðum hvers vegna Kvennalistinn fékkst ekki til að leggja nafn við þetta frv. enda þótt eftir því væri leitað. Afstaða okkar er einfaldlega sú að við teljum hér rangt að staðið, rangar forsendur og röng viðbrögð, og því betur og meira sem kafað er ofan í málið þeim mun vissari erum við um réttmæti þessarar afstöðu.

Flutningur þessa frv. er að okkar mati óeðlilegt viðbragð hv. alþm. sem að því standa við því vandamáli sem við er að etja á Bíldudal. Það vandamál á sér nokkra forsögu og þarf ekki að tíunda hér. Menn þekkja hana úr fjölmiðlafréttum, úr ræðuhöldum hv. þm. í gær, úr sláturhúsaskýrslunni sem út kom á sl. sumri og t.d. af yfirlýsingu yfirdýralæknis sem minnst var á áðan og ýmsir þm. hafa undir höndum.

Vandamál þessa tiltekna sláturhúss er ekki nýtilkomið og það er ekki neitt léttvægara né auðleystara vegna þess að jafnslæmir vinnustaðir í þessari starfsgrein kunni að vera víðar um landið. Þetta sláturhús hefur verið rekið á undanþágum árum saman og á því eru ófagrar lýsingar þar sem augljóst er að aðstæður eru ófullnægjandi þrátt fyrir tilraunir til að bæta þar úr.

Það vekur því furðu að fyrrverandi heilbrmrh. standi fyrir tillögu um að leysa málið með þessum hætti og nánast í bókstaflegri merkingu að draga heilbrigðiskröfur og heilbrigðiseftirlit niður í svaðið. Að okkar mati er þetta óvirðing við neytendur og reyndar bændur líka og þeir munu ekki þakka þm. þennan bjarnargreiða þegar frá líður. Alþingismönnum væri nær og sæmra að nota krafta sína til að tryggja bændum betri aðstöðu til slátrunar og gera þeim kleift að halda sjálfsögð lög um heilbrigðiseftirlit.

Dýralæknar og eftirlitsmenn hafa oft staðið í ströngu með að reyna að bæta eftirlit og hreinlæti við meðferð landbúnaðarafurða og eiga betra skilið að mínu viti en þær sendingar sem þeir nú fá úr ýmsum áttum og þó aðallega einni átt.

Í umræðum hefur verið látið að því liggja að þeir væru ekki sjálfráðir gerða sinna og undir hælnum á ofríkisaðilum. Ljótt er ef satt væri og væri ef til vill rétt og eðlilegt að fela hlutlausum aðilum að kanna hvað hæft er í slíkum ásökunum. Og ég tek undir það sem komið hefur fram hjá þeim sem áður hafa talað í þessu máli og lýst áhuga á að slík rannsókn fari fram. Ég held að það væri gott og nauðsynlegt.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem við kvennalistakonur höfum aflað okkur eru þessar ásakanir óréttmætar og ósanngjarnar og styðja engan veginn málstað þeirra sem vilja beita löggjafarvaldi í þessu máli. Það er einkennilegur skilningur á hlutverki Alþingis ef þm. telja það skyldu sína og við hæfi að hlaupa til og breyta lögum á þann hátt sem hér er lagt til ef fyrirgreiðslu vantar við einstaka aðila. Hér er um ótrúlega skammsýni að ræða og beinlínis hættulegt fordæmi ef á að vega á þennan hátt að því sem verið er að reyna að byggja upp. Það hefur mikið verið talað um nauðsyn þess að afla nýrra markaða fyrir afurðir bænda. Hvað erum við að gera þessari mikilvægu afurð sem við í öðru orðinu lofum sem ómengaða náttúruafurð og villibráð? Eigum við svo í hinu orðinu að samþykkja hvaða meðferð sem er á þessari afurð þegar að úrvinnslu er komið? Hvernig eigum við að geta kallað okkur matvælaframleiðendur og boðið framleiðslu okkar sem gæðavöru ef við treystum okkur ekki til að fullnægja þeim heilbrigðiskröfum sem gera verður og eru gerðar um meðferð matvæla?

Þessi atvinnugrein, landbúnaðurinn, hefur orðið fyrir ýmsum kárínum og orðið að berjast við sjúkdóma og ýmsa óáran. Í áraraðir hefur verið háð markviss barátta gegn útbreiðslu smitsjúkdóma í sauðfjárrækt og verður seint séð fyrir endann á þeirri baráttu.

Það þingmál, sem hér er til umræðu, er vægast sagt öfugsnúið innlegg í þá baráttu. Það er mikill ábyrgðarhluti að vilja brjóta niður það eftirlit sem reynt er að koma á. Ef af samþykkt þessa frv. yrði væri um fáránlegt fordæmi að ræða og löggjafarsamkundan sett á óhæfilega lágt plan. Hlutaðeigandi aðilar og hv. þm. hefðu átt að leysa þetta mál á hljóðlátari hátt og skaðlausari en hér er reynt.

Herra forseti. Ég vil að lokum vitna í ónafngreindan bónda á Vestfjörðum sem sagði við okkur: „Það er blettur á Alþingi að ætla að brjóta sín eigin lög og það fyrir 3000 lömb. Ég trúi ekki að það gerist.“

Eins og ljóst má vera þá styður þingflokkur Kvennalistans ekki þetta frv. Því má raunar bæta við að einn hvatamanna að flutningi þessa frv, sagði við mig í gær: „Þið verðið að viðundri ef þið verðið ekki með á þessu frv.“ Í dag er ekki spurning í mínum huga að við tókum rétta afstöðu. Það er kannski spurning hverjir eigi fremur skilið slíka einkunn sem okkur var gefin þá.