19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2695 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Utanríkisráðherra (Steingrímur Hermannsson):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir lestur hans úr Tímanum. Hann las vel og vandlega með sinni ljúfu og blíðu raust. Ég hef ákaflega litlu við það að bæta sem hann las þar. Mín skoðun á stjórn peningamála hefur iðulega komið fram. Ég gerði m.a. grein fyrir henni í umræðum um stefnuræðu forsrh. á þessu þingi.

Ég vil hins vegar leiðrétta hv. þm. þegar hann telur að þessi stefna hafi ríkt allt frá 1971. Það er misskilningur. Við samþykktum á hinu háa Alþingi nokkur lög á síðustu tveimur árum, m.a. lög um viðskiptabanka þar sem ákvörðun um vexti var færð til viðskiptabankanna og bankaráðanna. Í öðru lagi lög um Seðlabanka Íslands þar sem Seðlabanka Íslands er m.a. falið, það er sérstaklega tekið fram, að gæta þess að raunvextir hér séu svipaðir og í helstu viðskiptalöndum okkar og í öðru lagi að vaxtamunur sé hóflegur. Við samþykktum einnig lög um svokallaðan verðbréfamarkað þar sem gert er ráð fyrir að bankaeftirlitið hafi eftirlit með þeim markaði og ýmsar kvaðir settar á verðbréfamarkaðinn sem áttu að gera þeim sem með eftirlit í peningamálum fara kleift að fylgjast með og gera ráðstafanir ef nauðsynlegt væri gagnvart þeim markaði ekki síður en ríkisbönkunum.

Ég hef sagt hvað eftir annað að ég tel að því miður hafi þetta eftirlit, sem Seðlabanka og bankaeftirliti hefur verið falið með þessum lögum, brugðist. Ég get einnig vísað til ágætrar ræðu eins af okkar bestu bankamönnum, Tryggva Pálssonar, þar sem hann rekur á mjög skýran máta að ekki hafi verið haft nauðsynlegt eftirlit með t.d. kaupleigu, verðbréfamarkaði og fleira nefnir hann. Ég er Tryggva sammála. Ég lít svo á að Seðlabankanum beri skv. lögum sem ég hef nefnt að gera tillögur til ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir til að draga úr raunvöxtum sem hér eru nú sannanlega í sumum tilfellum a.m.k. tvöfalt, og ég hygg í einu tilfelli, þegar borið er saman við Japan, þrefalt hærri en þar.

Ég þarf ekki að endurtaka það sem ég segi í viðtali við Tímann. Ég tel að engin fyrirtæki, hvorki hér á landi né erlendis, geti til lengdar þolað slíka raunvexti. Ég verð því miður að segja að ég er ósammála því að rétt sé að bíða og sjá hvort lögmálið um vexti og verðbólgu, sem oft hefur verið rakið af þeim sem flytja þann boðskap, sýni sig verka hér á landi. Við töldum að með þeim lögum sem samþykkt voru á síðasta þingi væri í fyrsta lagi gert ráð fyrir nauðsynlegu eftirliti, en í öðru lagi með minnkandi verðbólgu óhætt að nálgast að hafa meira frelsi á peningamarkaði. Ég er þeirrar skoðunar að svo lengi sem íslenskt efnahagslíf er í svo miklu jafnvægisleysi sem það augljóslega er séum við á hálum ís. Mætti vitanlega nefna ótal dæmi um hluti sem gerast í íslenskum peningamálum, bæði af einstaklinga hálfu og fyrirtækja. Ég hygg að hvergi nokkurs staðar tíðkist sala á alls konar reikningum og skuldbindingum á okurvöxtum til þeirra sem stunda slík kaup.

Ég heyrði t.d. um daginn sagt frá einum ágætum fiskvinnslumanni sem tók þann kostinn að selja fimm fiskvinnsluvélar og taka þær allar aftur á kaupleigu og borga þar með 18% raunvexti. Ég held að það hljóti hver einasti maður að sjá að slíkt gengur ekki. Staðreyndin er sú að hér hefur ríkt, því miður, meira kapp en forsjá. Það á eflaust við okkur öll og fyrirtækin líka. Með batnandi afkomu í sjávarútvegi og meira fjármagni, sem streymt hefur hér inn í íslenskt efnahagslíf, hafa menn, við skulum segja af stórhug, viljað gera ansi mikla hluti. Margt af því er gott, en of hratt farið. Ég er þeirrar skoðunar að þetta verði að stöðva, en það eigi að gera með öðrum leiðum en háum vöxtum.

Ég spurði einn bankastjóra að því um daginn hvort hann gæti sagt mér hve margir sem til hans kæmu spyrðu um vexti. Hann hugsaði sig stutt um og hann sagðist ekki muna eftir neinum sem spyrði um vexti heldur bara hvort hann fengi lán.

Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég er sannfærður um það og veit það reyndar að ríkisstjórnin mun fjalla um þessi mál mjög ítarlega á næstu dögum og þá verða peningamálin ásamt öðrum þáttum efnahagsmála mjög til umræðu.