19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2709 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Þetta var vafalaust rétt athugasemd hjá hæstv. forseta áðan þó að það hafi staðið yfir stjórnarmyndunarviðræður á miðju þessu ári við fulltrúa Kvennalistans sem hefðu getað endað með því að þær hefðu orðið „herrar“, þ.e. ráðherrar, nema lögum um Stjórnarráð Íslands hefði verið breytt sem má auðvitað gera.
Varðandi frv. til lánsfjárlaga, sem hér er óneitanlega til umræðu, vil ég að það komi fram að við munum greiða atkvæði gegn 11. gr. frv. sem lýtur að skerðingu á Framkvæmdasjóði fatlaðra. Í hann vantar 20 millj. kr., ef notuð er hin knappa skilgreining fjmrn., en 90 millj. ef notaðir eru þeir útreikningar sem félmrn. styðst við í þessu efni. Í samræmi við fyrri afstöðu okkar alþýðubandalagsmanna í þessu sambandi munum við leggjast gegn skerðingarákvæðinu á Framkvæmdasjóði fatlaðra sem felst í 11. gr. frv.
Hið sama er að segja um 20. gr. þar sem gert er ráð fyrir að skerða framlag ríkissjóðs til Atvinnuleysistryggingasjóðs. Það hefur tvisvar sinnum verið gert að skerða Atvinnuleysistryggingasjóð, byrjað á því í tíð fráfarandi ríkisstjórnar, og þeim leik er haldið áfram í lánsfjárlagafrv. núv. ríkisstjórnar. Gallinn við það er auðvitað ekki sá að Atvinnuleysistryggingasjóður hafi svo miklar byrðar af atvinnuleysisbótum um þessar mundir, sem betur fer, heldur hefur hann ýmsar aðrar byrðar lögbundnar. M.a. er honum gert að greiða talsverðan hluta af eftirlaunum aldraðra skv. lögum sem sett voru um það leyti sem samið var um hið svokallaða nýja lífeyriskerfi.
Þá vil ég einnig geta þess að við munum leggjast gegn 21. gr. frv. sem gerir ráð fyrir að afnema tekjur Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum. Á þessu ári hefði Ríkisútvarpið átt að fá 300 millj. kr. í tekjur af aðflutningsgjöldum. Ríkisútvarpið stendur mjög illa fjárhagslega. Það er slæmt til þess að vita að meðan hin nýju útvarpslög eru í framkvæmd á fyrstu árum sínum skuli vera þrengt svo mjög að Ríkisútvarpinu sem raun ber vitni um. Það er þáttur sem við getum ekki sætt okkur við.
Ég vil þessu næst, virðulegi forseti, víkja aðeins að þeim umræðum sem fram hafa farið hér og byrja á að þakka hæstv. forseta fyrir að hafa tryggt að nokkrir ráðherrar hafa verið viðstaddir í deildinni í dag til að ræða almennt um efnahagsmál.
Áður en ég kem að því vil ég kannski nefna það meðan ég man sem hv. 2. þm. Norðurl. e. nefndi. Ég vona að mín orð hafi ekki í neinn tíma verið skilin þannig að ég telji að embættismenn hafi tregðast við að gefa upplýsingar þegar um það hefur verið beðið. Ég er óánægður með hversu seint forsendur breytinga milli 1987 og 1988 hafa borist okkur frá Þjóðhagsstofnun, en mér er ljóst að Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki eiga í miklum vanda þar sem afstaða ríkisstjórnarinnar, annars vegar við framlagningu fjárlagafrv. og hins vegar nú, að því er varðar grunnforsendur virðist ekki ríma. En ég tek undir það með hv. 2. þm. Norðurl. e. að þeir embættismenn sem við höfum rætt við í fjh.- og viðskn. þessarar deildar hafa reynt að greiða okkar götu svo sem kostur hefur verið og iðulega lagt á sig mikla vinnu í þeim efnum.
Ég vil þessu næst víkja að orðum þeirra ráðherra sem hér hafa talað og ég vona að mér fyrirgefist þó ég tali almennt um efnahagsmál. Ég ætla mér ekki að vera lengi að því samt. Ég byrja á því sem hæstv. utanrrh. sagði.
Hann sagðist hafa litlu við það að bæta sem fram kom í viðtali í Tímanum í dag þar sem hann telur að núverandi vaxtastefna eigi í réttu lagi að heita raunvaxtaokur. Mér fannst athyglisvert að þrátt fyrir þetta liggja engar tillögur fyrir frá Framsfl. í ríkisstjórninni um að ná þessu raunvaxtaokri niður.
Enn fremur upplýsti hæstv. forsrh. að engar tillögur lægju fyrir frá Seðlabankanum í þessu efni. Hæstv. forsrh. lagði á það áherslu að það skipti miklu máli að ríkið væri rekið á jöfnuði á árinu 1988. Það væri liður í því að treysta stöðu efnahagslífsins. Er allt gott um það að segja út af fyrir sig. Deilur eru uppi um hvaða aðferðir eru notaðar í þeim efnum, en ég tel þó að þetta sé markmið út af fyrir sig. En það sem ég hef verið að reyna að segja er að það gerir enga stoð, jöfnuður í ríkisútgjöldum, ef útflutningsatvinnuvegirnir eru reknir með halla á sama tíma. Ef verulegur viðskiptahalli er, ef lagður er á skattur eins og matarskatturinn, sem efnir til úlfúðar gagnvart samtökum launafólks, og ef iðkað er raunvaxtaokur eins og hæstv. utanrrh. hefur orðað það veikir þetta allt saman áhrifin af því að ríkið sé rekið í jöfnuði á árinu 1988.
Hæstv. forsrh. og utanrrh. ræddu nokkuð um gengisforsendurnar. Ég vil aðeins varðandi það mál segja: Það er alveg rétt sem hæstv. forsrh. sagði. Gengisfelling leysir engan vanda vegna þess að hún er í besta falli skammgóður vermir, þ.e. hún getur hjálpað til í augnabliki, þangað til kostnaðarhækkanirnar innan lands, sem hljótast af gengislækkuninni, eru komnar í hús á ný. Þá stendur útflutningsatvinnuvegurinn nákvæmlega eins og hann stóð í upphafi. Þess vegna leysir gengisbreyting engan vanda.
Hvað á þá að gera? Til þess eru einhver ráð. Ein leiðin er sú að skera niður kostnaðarþætti útflutningsatvinnuveganna þannig að það þurfi ekki að fjölga krónum í útflutningsmyntunum til að standa undir kostnaðinum. Í þeim efnum er eðlilega horft á meginkostnaðarþætti útflutningsatvinnuveganna. Hverjir eru þeir? Það eru auðvitað laun. Það er meginkostnaðarþáttur útflutningsatvinnuveganna. Það er alveg ljóst að eftir það sem á undan er gengið hljóta menn að vera frekar uppi með kröfur um launahækkanir en launalækkanir til að vega upp á móti þeim skattahækkunum sem hafa átt sér stað. Þannig er engin forsenda til þess af neinu tagi að taka niður þann kostnaðarþátt sem heitir laun. Næsti kostnaðarþáttur í útflutningsatvinnuvegunum eru vextir. Og hvaða leiðir eru til þess að taka niður vexti hjá útflutningsatvinnuvegunum? Þær eru í grófum dráttum tvær. Fyrsta leiðin er sú að gera það með opinberri ákvörðun ofan frá og segja sem svo: Það er bannað að fjármagn beri meira en 2% raunvexti eða 3% raunvexti. Allt sem er þar umfram skal heita okur og dæmast sem slíkt. — Þetta er hægt að gera. Vandinn er hins vegar sá að ef um peningaskort er að ræða í kerfinu á sama tíma leitar sá skortur útrásar á svörtum markaði sem þýðir aftur hærri vexti þar, okur, kannski einmitt hjá þeim sem síst skyldi, sem komast ekki inn í bankakerfið, sem komast ekki inn í sjóðina og verða að leita sér að fjárhagslegri fyrirgreiðslu á svarta markaðnum.
Ein leiðin í þessu efni er aftur á móti sú sem hæstv. viðskrh. talar fyrir, gæti verið sú að reyna að láta allt hagkerfið virka saman í þá veru að vextir að lokum skili sér lágir. En forsendan fyrir því er aftur á móti sú að allir þættir hagkerfisins séu í tiltölulega góðu lagi, allir þættir hagkerfisins í einu. Mér finnst hæstv. viðskrh. stundum tala eins og hann sé staddur í þjóðfélagi 100 millj. manna eða svo, þjóðfélagi þar sem um er að ræða mjög þróað markaðshagkerfi. Þó að ég telji mig vera til vinstri í stjórnmálum lít ég þannig á að þróað markaðshagkerfi getið skilað skikkanlegri verðlagsþróun og jafnvel skikkanlegu vaxtastigi. Munurinn á þessu þjóðfélagi og okkar er sá að við erum kvartmilljón en ekki 100 millj. Það er æðimikill munur á því. Ég held að ríkisstjórninni og hæstv. viðskrh. gleymist það.
Við höfum búið í þjóðfélagi þar sem hefur verið gífurlegur peningaskortur um langt skeið. Atvinnuvegir hafa byggt sig upp á lánum og dýrum lánum. Þegar vextir hækka er það ekki þannig að þessir atvinnuvegir geti dregið úr sinni eftirspurn eftir lánsfé. Þeir auka eftirspurnina til að fjármagna háu vextina af lánunum sem þeir tóku á undan. Þannig verður þetta vítahringur og endar með því að þessir atvinnuvegir eiga enga peninga eftir og geta ekki borgað kaup. Dæmið gengur ekki upp. Ég sagði við hæstv. viðskrh. áðan: Sú messa sem hann flutti áðan er ágæt út af fyrir sig, en það gleymist að ef það tapast 80 íbúðir á ári á nauðungaruppboðum er stefnan hrunin og þeir sem ekki átta sig á því gleyma því sem stundum er kallað mannlegi þátturinn í pólitíkinni. Það verður gerð uppreisn gegn svona stefnu. Hæstv. utanrrh., svo klókur sem hann er, finnur auðvitað að það er sjóðandi andúð á þessari stefnu í þjóðfélaginu þó að hann beri á þessu talsverða ábyrgð og vill gjarnan bjarga Framsfl. fyrir horn með því að segja rétt fyrir jól: Heyrðu, það verður að stoppa raunvaxtaokrið.
Ég held að út af fyrir sig sé hæstv. viðskrh. — ég dreg það ekkert í efa — mjög vel að sér um efnahagslegt ferli, en inni í hinu efnahagslega ferli er fólk og það er oft með tilfinningar og þær verða sérstaklega mjög heitar þegar þetta fólk fer að missa eignirnar sínar, íbúðirnar á nauðungaruppboðum eða fyrirtækin sín á nauðungaruppboðum. Þess vegna gengur þessi stefna ekki upp að mínu mati eins og sakir standa. Ég hefði þess vegna viljað sjá að það yrði reynt að taka á öllum þessum þáttum í einu.
Það er alveg rétt hjá hæstv. viðskrh. að þó ég sé rómsterkur get ég ekki hrópað niður vexti. Það getur heldur ekki hæstv. utanrrh. Þó að Tíminn eigi stórletur dugir það ekki til að hrópa niður vexti. Það er ljóst. En ég hygg að ef við næðum því að taka utan um alla þessa þætti í senn, ef það yrði til í landinu ríkisstjórn sem færi yfir allt sviðið, væri unnt að ná niður vöxtum með óbeinum aðgerðum af ýmsu tagi. Hvaða þættir eru þetta? Ég ætla ekki að lengja mál mitt allt of mikið, en ég ætla að segja hverjir þeir eru.
Það er í fyrsta lagi hin almenna peningamálastjórn. Það er í öðru lagi ríkissjóður. Það er í þriðja lagi afkoma atvinnuveganna. Hún verður að vera skikkanleg. Annars leita þeir út í háu vextina. Í fjórða lagi er það t.d. þáttur eins og húsnæðismálin. Ég er alveg sannfærður um það fyrir mitt leyti að húsnæðiskerfið hefur ekki stuðlað að lágum vöxtum heldur háum. Í fimmta lagi er það hin almenna verðlagsþróun í landinu. Og í sjötta lagi er það hinn stórkostlegi vaxtamunur sem stafar af því hvað bankakerfið á Íslandi er dýrt. Vaxtamunurinn hér er 7–9% hefur mér skilist meðan hann í grannlöndum okkar er helmingurinn af því. Ef við getum náð saman á þessu þingi þjóðarinnar um efnahagsstefnu þar sem tekið er á öllum þessum þáttum í einu getum við séð tiltölulega góða tíma bæði fyrir fólk og atvinnuvegi. En það leysir engan vanda að taka einn þáttinn og segja: Ríkissjóður er í jöfnuði og allt er í fínu lagi, hókus pókus. Það verður ekki þannig. Það þarf fleira til því að ríkið er ekki eitt í heiminum. Það er fólkið sem kostar rekstur ríkisins.
Þetta veit ég að er öllum hv. þm. ljóst. En ég vildi draga þessa þætti fram og svo segja að lokum: Þegar búið er að auka kostnað heimilanna þannig að menn verða að lyfta kaupinu, þegar búið er að hækka vextina svona rosalega á atvinnuvegunum og engin samstaða er í ríkisstjórninni um að taka vextina niður, það er niðurstaðan af þessum umræðum í dag að það er engin samstaða í ríkisstjórninni, spyr ég: Hvað er eftir varðandi það að koma í veg fyrir gengislækkun? Jú, það er eitt. Það er gamalt ráð sem við kunnum, við Lúðvík. Það er millifærslan. Það er millifærsla á fjármunum í samfélaginu. Ég get vel ímyndað mér að þeir framsóknarmenn, ef ég þekki þá rétt vegna þess að þeir eru ýmsu vanir og kalla ekki allt ömmu sína, gætu vel tekið þátt í einhverjum millifærsluaðgerðum, enda geta þær oft verið skynsamlegar, og ég ímynda mér að þeir sem eru ekki alveg háorthodox í Alþfl. gætu tekið þátt í þessu líka. Þá erum við hins vegar komin að hjartanu í Sjálfstfl. Sjálfstfl. hefur aldrei þolað millifærsluaðgerðir síðan 1960 að afnumið var það kerfi mismunandi gengis sem var í vinstri stjórninni 1956–1958 og viðreisnarstjórnin afnam.
M.ö.o., virðulegi forseti: Ég held að ríkisstjórnin sé upp við vegg og eigi ekki margra kosta völ. Ef hún aðhefst ekki neitt er það ljóst að útflutningsatvinnuvegirnir standast þetta ekki og, eins og hæstv. utanrrh. hefur orðað það svo varlega eða hitt þó heldur, leyfi ég mér að segja, annað hvert fyrirtæki fer á hausinn. Valið verður þarna á milli fyrir hæstv. ríkisstjórn. Ég hygg að góðar kenningar og ræður um raunvaxtastefnuna og jafnvægi markaðarins geri enga stoð þegar fyrirtækin fara að loka hvert af öðru og fólkið fer að ganga um atvinnulaust.