19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Guðrún Agnarsdóttir:
Virðulegi forseti. Á borði forseta er bjalla. Hún er notuð til að setja og slíta fundum í deildinni. Á henni er þríhyrnt handfang og á handfanginu stendur letrað og blasir við forseta ef bjallan snýr á þann veg: Þing skal til þrifnaðar landi.
Þau frv. sem hér er verið að flýta í gegnum þingið tel ég ekki að séu til þrifnaðar landi, eins og komið hefur fram í máli mínu um þau, t.d. það frv. um breytingar á söluskatti sem felur í sér matarskatt á fjölskyldurnar í landinu. En ég mun ekki fjölyrða um það hér.
Sama gildir um áætlanir um lánsfjárlög og fjárlög. Þær eru þannig gerðar að þær eru ólíklegar til þess að standast tímans tönn. Í þeim eru tölur, áætlanir og spár sem eru í raun ómarktækar stærðir, enda hefur komið fram dag eftir dag að þessar stærðir eru stöðugt að breytast. Það koma nýjar tölur og það koma nýjar spár. Því hefur minni hl. fjh.- og viðskn. Ed. ákveðið að réttast sé að vísa þessu máli frá með rökstuddri dagskrá og fresta því þar til eftir áramót þannig að takast megi að gera það marktækara. Ég sat fundi nefndarinnar og er samþykk þessu áliti. Réttast væri að gera það sama við fjárlögin því að eins og okkur hefur margoft verið sagt hanga þessi tvö mál órjúfanlega saman.
Í þeim eru eins og í mörgum öðrum malum hér ýmis pennaglöp, en það sem verra er, í þeim eru hreinlega hugsanaglöp. Þar eru mistök og yfirsjónir sem koma til með að hafa alvarleg áhrif í þjóðfélaginu. Eins og kom fram í máli hæstv. viðskrh. er tíminn ekki nógur. Tíminn er ekki nógur fyrir okkur til að fjalla um eða kynna okkur t.d. það plagg sem kom frá Þjóðhagsstofnun. Það hefur enginn tími gefist fyrir þann þm. sem hér talar til að lesa það blað vegna þess að annríkið hefur verið svo mikið frá því að ég fékk það í hendurnar. Þess vegna hitta upplýsingarnar sem í plagginu standa ekki í mark. Þær gagnast mér ekkert vegna þess að meiningin er að þetta mál verði afgreitt úr deildinni í kvöld. Ég næ ekki að gaumgæfa þessar upplýsingar, sé eitthvað á þeim mark takandi, áður en málið verður afgreitt. Þessi vinnubrögð eru afar slæm.
Í 1. umr. um málið ræddi ég ýmsa þætti þess og mun ekki setja á almenna umræðu, hvorki um þetta frv. í sjálfu sér né um efnahagsmálin, eins og margir aðrir hafa gert á undan mér vegna þess að ég kýs ekki að tefja þetta mál í raun þó að ég sætti mig ekki við það að þurfa að sinna því illa. Það er kannski fyrst og fremst þess vegna sem ég tel ríka ástæðu til að vísa því frá.
Það eru flestir sem bera kvíðboga fyrir þróun efnahagsmála á næstunni og spár efnahagssérfræðinganna og reyndar ósamlyndi þeirra og afneitun stjórnvalda á sumum þeim spám og fullyrðingum, sem borin eru í fjölmiðla, svo og misvísandi staðhæfinga ýmissa ráðherra stjórnarinnar, allar vekja þær ótta og kvíðboga manna. Gengisfelling er þegar orðin, segja menn, og takturinn fyrir verðbólgudansinn hefur verið sleginn. Hún er rétt að byrja. Og við vitum vel að verðbólgan hefur vaxið á undanförnum mánuðum. Þetta hefur þegar verið rætt og ég ætla ekki að fjölyrða um það meir.
Hins vegar kom fram í máli hæstv. fjmrh., hann sagði og mér finnst það afskaplega alvarlegt: „Það skortir upplýsingar um meginþætti, um lykilatriði í peningamálum þjóðarinnar.“ Á þessum mögru staðreyndum sem fást, sem eru ekki nema hluti af fjármagni því sem er í veltu í landinu, eru allar áætlanir um búrekstur þjóðarbúsins byggðar. Hvers vegna er búið svo um hnútana því að þetta er ekki í fyrsta sinn? Á öllum þeim árum sem allir þessir menn hafa farið með fjármál ríkisins hefur þeim ekki tekist að skilgreina og fá upp á yfirborðið þær meginstærðir sem þarf að hafa í huga þegar áætlanir eru gerðar. Hvers vegna hafa menn ráðskast með þetta bú án þess að tryggja sér þetta upplýsingaflæði og hvernig treysta þeir sér til að gera áætlanir sem eru svo illa grundvallaðar?
Hæstv. fjmrh. talaði líka um hólfaðan peningamarkað og það vakti með mér hugsun um hve öll sú ákvarðanataka, sem hér fer fram, bæði inni á þinginu og trúlega í ráðuneytunum líka, byggist á hólfaðri hugsun. Í hverju hólfi snýst hugsunin í kringum ákvörðunina um þann ákveðna málaflokk og það vantar illilega heildarsýnina og tenginguna á milli málaflokkanna til þess að útkoman geti komið sér vel fyrir fjölskyldurnar í landinu og fólkið, eins og hv. 7. þm. Reykv. sagði, sem er inni í efnahagsferlinum, stærðirnar, tölurnar á blöðum fræðinganna og þeirra sem taka ákvarðanirnar. Getur verið að þessu hafi verið leyft að viðgangast af því að það hentar þeim sem stjórna vegna þeirra hagsmunatengsla sem þeir hafa? Og hollusta við hvern er það?
Dæmi um hólfaða hugsun, sem mig langar til þess að taka vegna þess að það varðar mál sem er minnst á í þessu frv., er dæmið um Ríkisútvarpið. Með annarri hendinni berjast menn fyrir því að gera fjölmiðlunina frjálsa. Með hinni hendinni reyna þeir að hlúa að menningu og tungu þessa lands. Og þeir skrifa, þeir geyma tilfinningarnar fyrir tungunni og menningunni í einhverju litlu hólfi. Ég veit ekki hvar það er. Kannski er það í hjartanu þeirra. Og þeir skrifa langlokur, þeir skrifa bréf í blöðin sín sem ná yfir báðar síður á sunnudögum. Og þeir skrifa leiðara og þeir láta þjóðina vita hversu annt þeim er um íslenska tungu og íslenska menningu og hversu vel við þurfum öll að gæta hennar. En hvað gera þeir? Þeir berjast fyrir því að samþykkja lög, lög sem renna um rætur tungunnar þannig að þær rotna. Þeir berjast fyrir veðrum, fjölmiðlaveðrum sem leika um jurtina, sem er íslensk tunga og íslensk menning, þannig að hún er svo viðkvæm og hún er svo smá að hún þolir það ekki. Hún er næstum því orðin úti í þessum stormi sem mennirnir hafa búið til sjálfir. Hverju á maður að trúa og hvernig á maður að skilja það á sama tíma og sá fjölmiðill, sem berst í bökkum og er einn af sterkustu miðlum íslenskrar tungu, getur ekki einu sinni vegna fjármagnsskorts eða vegna rangrar forgangsröðunar séð um að íslensk börn, sem eru þau sem eiga að taka við þessari tungu og þessari menningu, fái efni við sitt hæfi sem þau skilja, eins og kom fram í svari við fsp. um daginn.
Það var verið að spyrjast fyrir um hve mikið væri af barnaefni í Ríkisútvarpinu og þá sjónvarpinu með, sundurliðað, hve mikið af því væri á íslenskri tungu. Tveir menntamálaráðherrar komu upp, annar fyrrverandi og hinn núverandi, og lýstu yfir áhyggjum sínum. En hafa þeir engin tök á því, mennirnir, að útvega þessum mikilvæga fjölmiðli, sem ber margfalt meiri skyldur og ábyrgð en hinir svokölluðu frjálsú fjölmiðlar, hafa þeir engin ítök í þeirri stjórn sem þeir voru í eða eru í að útvega fjármagn til að tryggja að þessi tunga lifi af? Það þýðir ekkert að halda hátíðarsamkomur fyrir fullorðið fólk í Þjóðleikhúsinu. Tungan lifir ekki þannig. Hún lifir á því að næra rætur hennar og hlúa að þeim sem eiga að tala hana og gefa þeim tækifæri til að vera með foreldrum sínum og forsjáraðilum sínum þannig að þau geti talað saman, að minnka vinnuálagið með þjóðinni og greiða þau laun að fólki gefist tækifæri til að vera saman og tala saman. Þess vegna uni ég því ekki frekar en mörgu öðru í þessu frv. að það skuli skornar niður þær tekjur sem hafa verið megintekjur Ríkisútvarpsins, aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum, á meðan í öðru frv., sem fer næstum samstiga í gegnum þetta, þing, er verið að fella niður gjöld af afruglurum. Það er sterkasti samkeppnisaðili Ríkisútvarpsins sem nýtur góðs af því á sama tíma og gífurleg undirboð eiga sér stað og auglýsingaprútt sem er önnur tekjulind Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hefur í raun fengið þverrandi auglýsingatekjur á undanförnum mánuðum og árum. Hvernig stendur á því að mennirnir í fyrsta lagi hegða sér svona? Meina þeir ekki það sem þeir segja? Og í öðru lagi: Hvernig dettur þeim í hug að nokkur trúi þeim þegar þeir hegða sér svona?
Þetta er dæmi um tvískinnung sem á sér stað í hverju málinu á fætur öðru. Ég tek þetta dæmi svo ítarlega vegna þess að þetta er svo algengt. Það er svo algengt að horfa upp á þennan tvískinnung. Og það er svo erfitt að trúa mönnum sem hegða sér svona, mönnum sem hafa haft aðgang að peningum og völdum og fara með þau á þennan hátt.
Eins og kom fram í máli hv. 7. þm. Reykv. eru líka ýmis atriði sem við kvennalistaþingkonur munum greiða atkvæði á móti. Við unum því illa hvernig farið er með Framkvæmdasjóð fatlaðra, sömuleiðis með Atvinnuleysistryggingasjóð. Ég gerði mér að gamni áðan þegar ég sat þarna að reikna hækkanirnar á brtt. meiri hl. því að þær eru orðnar drjúgar, þeir sem hafa sérstaklega fréttatilkynningu aftast í frv. um erlendar lántökur sem þeir vilja helst ekki hækka.
Ég ætla ekki að tefja umræður. Þess vegna ætla ég ekki að krefjast þess að ég fái svörin áður en umfjöllun um þetta mál lýkur. Það er nóg að fá það í Nd. Nú er ekki hæstv. fjmrh. hér, en hann þarf ég að spyrja. Þess vegna fer ég fram á að hann komi hingað, fjmrh. (Forseti: Það hafa verið gerðar ráðstafanir til að ná í fjmrh.)
Hitt er annað að það hafa verið gerðar ýmsar breytingar á þessu frv. M.a. hefur verið sett inn hækkun til Iðnlánasjóðs sem átti í raun að skera talsvert niður. Ég gat þess við 1. umr. að mér þætti það óviðunandi miðað við það hve mörgum skyldum hann þarf að gegna við ýmsa vaxtarbrodda í iðnaði í landinu.
En ég vildi beina spurningu til hæstv. fjmrh. vegna þeirra brtt. sem koma fram frá meiri hl. fjh.og viðskn. Ég var að leika mér að því að leggja það saman. Það var ekki nema við sumar þessar brtt. sem kom fram að þar væri um að ræða erlent fjármagn. Hve mikil hækkun verður á erlendum lántökum vegna þessara brtt.? Hve mikil hækkun verður á innlendri lánsfjáröflun vegna breytinganna? Síðan langar mig til þess að spyrja sérstaklega um þá grein sem í frv. er 25. gr. Þessa grein á að fella niður. Það eru 2 milljarðar 850 þús. kr. til vegagerðar. Þ.e. framlag ríkissjóðs til vegamála skal eigi fara fram úr þessari upphæð. Hvað verður um þetta fé? Fer það ekki til vegagerðar í gegnum neina aðra farvegi? Er hreinlega ætlað að fella þetta alveg út? Á það að mæta þeim kostnaði sem verður við hækkun? (Gripið fram í.) Já, ég vil fá svar við þessu frá ráðherra.
Að öðru leyti ætla ég ekki að lengja mál mitt. Ég gæti þess vegna á vissan hátt endurtekið talsverðan hluta þeirrar ræðu sem ég hélt hér í fyrra við lánsfjárlög því að útkoman er að sumu leyti sú sama. En ég óska þess að þessu verði svarað, ekki endilega við afgreiðslu málanna hér heldur að svarið berist í Nd. Og ég legg mikla áherslu á það sem ég sagði um fjárhag Ríkisútvarpsins. Ég ber verulegar áhyggjur vegna þess og ég tel að það verði menningarlegt slys ef Ríkisútvarpinu verður sniðinn svo þröngur stakkur að það geti ekki lifað af og alls enginn tekur við skyldunum og ábyrgðinni sem Ríkisútvarpið hefur gagnvart íslenskri tungu og íslenskri menningu.