21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í B-deild Alþingistíðinda. (207)
43. mál, leyfi til slátrunar
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Frv. það sem er til umræðu á þskj. 43 er vissulega ekki mjög venjulegt. Ég get tekið undir það, sem fram hefur komið í ræðum manna, að nokkru um það efni. Það er þó ekkert óvenjulegt að því leyti að með því sé verið að breyta eða skýra nánar lög sem eru í gildi og reglugerðir sem settar hafa verið.
Hverju sinni sem við hv. alþm. fjöllum um lagabreytingar og frv. til nýrra laga erum við að breyta eldri lögum. Þá erum við að kveða skýrar á um einhver lagaákvæði eða setja inn ný ákvæði sem verða til þess að koma þeim málum í horf svo okkur þyki rétt stefna.
Nú tek ég undir það með 1. flm. þessa frv. að það hefði verið okkur flm. miklu meira að skapi að til þess hefði ekki þurft að koma að slíkt frv. væri flutt. Og það var hlutverk framkvæmdarvaldsins að leysa þetta mál án þess að það þyrfti að koma til kasta Alþingis. En hvers vegna skyldi vera flutt frv. eins og þetta, frv. sem aðeins fjallar um að kveða á um skýra heimild til landbrh. um að veita sláturleyfi eitt sinn, á einum stað á landinu á þessu ári? Það hefur ekki annað fordæmisgildi, það hefur ekki nein ákvæði í för með sér en eins og orðanna hljóðan segir til um í frv. sjálfu. Það er vitaskuld vegna þess að flm. frv. telja að framkvæmd á þessum málum hafi farið a þann máta að réttlætanlegt sé og óverjandi annað en að Alþingi grípi inn í. Við viljum ekki sætta okkur við að þessu máli ljúki á þann máta sem það horfir í án þess að Alþingi segi sitt orð um málið.
Hér væri ástæða til þess, þó það hafi verið gert, að rifja upp örfá atriði sem sýna þá atburðarás sem gengið hefur. Það fyrsta sem skiptir máli er að á síðasta hausti var slátrað í þessu húsi á sjöunda þúsund fjár án þess að fundið væri að aðbúnaði í húsinu eða meðferð kjötsins. Þeir sem þarna standa fyrir málum, heimamenn í Sláturfélagi Arnarfjarðar, töldu sig þegar af þeirri ástæðu mega vænta þess að sláturleyfi yrði framlengt. Síðan gerist það að húsið er skoðað eins og til er ætlast af dýralækni á sl. sumri, fundið er að því sem þar er talið ábótavant í aðbúnaði í húsinu og möguleikum til hreinlætis við sláturstörf, og að flestu leyti er tjáð að orðið hafi verið við því sem þar er farið fram á. Þeir sem standa að þessu húsi leggja í kostnað til þess að það komist fram að bæta úr því sem talið hefur verið áfátt. Sagt er, án þess að ég hafi kannað það af eigin raun, að enn sé því áfátt að ekki hafi verið sett upp girðing umhverfis sláturhúsið og ekki hafi verið komið upp svefnskála enn við húsið, en ég vænti þess að flestir þeir sem þar starfa muni sofa heima hjá sér. Ég ætla ekki að orðlengja það sem hér kom fram í gær um notkun vatns í húsinu sem notað er sem neysluvatn í byggðarlaginu og við aðra matvælavinnslu.
Eftir að svo hefur gengið að heimamenn hafa lagt í þennan kostnað virðist svo sem það hafi verið gefið í skyn af hæstv. ráðherra að leyfi mundi fást til slátrunar ef dýralæknir fengist til að stimpla og skoða kjötið. Hæstv. ráðherra hefur ítrekað vikið að þessu efni í ræðum sínum bæði í gær og dag. Til að mynda sagði hæstv. ráðherra í gær í síðari ræðu sinni svo, með leyfi forseta:
„En það þýðir ekkert fyrir Bílddælinga að gefið sé út leyfi nema einhver vilji skoða kjötið. Það ætlum við að gera. Ef einhver fengist til að skoða kjötið mundi leyfið verða gefið út.“
Hæstv. ráðherra segir skýrt og skorinort: Ef einhver fengist til að skoða kjötið mundi leyfið verða gefið út. — Ég hef auðvitað ekkert fyrir mér í því hvað hann hefur sagt við forráðamenn Sláturfélags Arnfirðinga, en það virðist svo sem þeir hafi a.m.k. getað staðið í þeirri góðu trú að ef starfsmaður fengist til að skoða kjötið, annast heilbrigðisskoðun og merkingu svo sem lög kveða á um að dýralæknir eða annar aðili annist yrði leyfið veitt. En vitaskuld fer enginn starfsmaður vestur á Bíldudal þessara erinda nema leyfið hafi áður verið veitt. Þar liggur allur galdurinn. Ef hæstv. ráðherra hefði veitt þetta leyfi trúi ég ekki öðru en því að fengist hefði maður til að skoða þetta kjöt. Það er þess vegna að fara hringinn í kringum þetta mál þegar hæstv. ráðherra ber það fyrir sig sem forsendu fyrir því að leyfi er ekki veitt að áður hafi ekki fengist maður til að skoða kjötið. Í þessu liggur heila málið. Ef ekki hefði fengist dýralæknir, sem ég trúi að hefði fengist, kveða lög á um að heimilt sé að ráða lækni til starfans eða annan mann sem hafi reynslu og þekkingu til þess að fást við þetta starf. Þar sem segir í lagatexta í þessu frv. að „landbrh. skipar hæfan mann“, sem hér var gerð af hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur athugasemd við í athugasemdum um þingsköp, er vitaskuld átt við hæfan mann að dómi hæstv. landbrh. í samræmi við það sem lög kveða á um. Ég veit til þess að slíkir menn hafa verið ráðnir til starfa, þó að æskilegt sé að það séu dýralæknar. Mér dettur ekki í hug að segja eitt einasta orð til hnjóðs dýralæknum í landinu og þykja fremur miður þau svigurmæli sem fallið hafa í þeim ummælum í garð manna sem hér eru ekki til að standa fyrir sínu máli eða bera af sér sakir. Ég trúi því að það hefði ekki reynst vandkvæðum bundið að fá mann í þetta starf ef leyfið hefði verið veitt.
Þá er það spurningin: Hvað er það sem er svo athugavert í þessari málsmeðferð að leiðir til þess að við átta hv. alþm. úr öllum flokkum Alþingis utan einum flytjum frv. til þess að leitast við að leysa þetta mál? Orsökin er vitaskuld sú að við teljum að þarna hafi verið farið að í þessum efnum þannig að það sé í raun óviðunandi.
Nú má vel vera að það eigi að synja um leyfi til slátrunar í einhverju sláturhúsi, en það á ekki að byrja á að teyma menn til þess í fyrsta lagi að leggja í kostnað við lagfæringar á sláturhúsi sínu og að því er virðist halda þeim í óvissu í tiltekinni von um að leyfi kunni að verða veitt, ef einhver dýralæknir skyldi nú fást til að fara vestur á Bíldudal, alveg fram undir veturnætur og herða svo að þeim hengingarólina. Ef það var staðfastur ásetningur hæstv. ráðherra og þeirra aðila annarra sem um þessi mál fjalla að þarna skyldi leyfi ekki veitt átti vitaskuld að segja það hreint út þegar á miðju sumri, ekki síðar. En með þessum vinnubrögðum er í fyrsta lagi búið að teygja menn til þess að leggja í kostnað við lagfæringar á húsi sem kannski hefur aldrei verið ætlunin að fengi leyfi á þessu hausti og í öðru lagi að halda mönnum þannig uppi á snakki að þeir fresta því fram undir veturnætur að slátra fé sínu. Það þekkja a.m.k. ýmsir að því getur fylgt tjón og erfiðleikar sem ómældir kunna að vera. Þessi málsmeðferð er með þeim hætti að mér sýnist að tilefni sé til að flytja nokkuð óvenjulegt frv. á hv. Alþingi.
Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það sem hér hefur verið sagt í umræðum. Það hefur verið m.a. af hæstv. ráðherra að því vikið að við þurfum að vanda meðferð sláturafurða og eigum mikið í húfi fyrir okkar markað o.s.frv. og allt er það út af fyrir sig rétt. En það er nokkuð langt seilst þegar látið er að því liggja að við eigum á hættu að kollvarpa erlendum markaði, jafnvel innlendum, við það að veita leyfi fyrir slátrun á 3000 kindum vestur á Bíldudal. Og að þau sem mér sýnist að kynnu að vera um 50 tonn hjá húsi sem að sjálfsögðu hefur ekki útflutningsleyfi hafi einhver áhrif á erlendan markað fyrir dilkakjöt, það er hrein fásinna. Ræðuhöld um þetta efni eru auðvitað bara til að æfa sig á, en hafa ekkert hagnýtt gildi annað. Þess vegna þarf hæstv. ráðherra ekkert að segja okkur frekar um þessa hluti. Það er líka rangt að með þessu sé verið að stilla upp einhverju sérstöku fordæmi í lagasetningu á hv. Alþingi. Með þessu er aðeins verið að víkja að meðferð þessa tiltekna máls og leitast við að leysa vanda þess fólks sem sætt hefur þeirri meðferð af hálfu framkvæmdarvaldsins sem ég hef hér rakið og var rakið af mörgum ræðumönnum í gær.
Ég ætla að láta hjá líða að gera heiður eða skömm Kvennalistans að umtalsefni, sbr. ræðu hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur áðan. Kvennalistinn hlýtur vitaskuld að ráða sínum málflutningi. En við sem erum ýmsir hverjir búnir að vera hér langa tíð og teljum okkur vera fulltrúa strjálbýlla héraða, fólks, sem stundum á í erfiðleikum með að sækja undir framkvæmdarvaldið og embættismenn þess, munum ekki skammast okkar fyrir að taka upp hanskann í slíku máli og leitast við að fá í þessu máli í þetta skipti úrslit sem leysa vanda þess fólks sem þarna býr og sem þarna þarf að slátra sínu fé.
Hæstv. ráðherra sagði í dag að tiltekin lausn væri möguleg. Ég skal ekkert um það mál segja. En hvers vegna gat slík lausn þá ekki verið til staðar fyrir löngu og hvers vegna gat ekki slík lausn verið til reiðu á miðju sumri áður en þeir Bílddælingar fóru að leggja í kostnað við það að lagfæra sitt sláturhús?
Ég held, herra forseti, að ég hafi þessi orð ekki fleiri. Ég vísa á bug fordæmisgildi um almenna lagasetningu sem hér hefur verið haldið fram að þetta frv. væri. Ég vísa því einnig á bug að hér sé um óeðlileg vinnubrögð að ræða. Ég segi það sem mín lokaorð að orsök þessa frv., sem auðvitað hefði verið æskilegt að komast hjá að flutt væri, hefur verið meðferð framkvæmdarvaldsins á þessu máli sem hefur komið niður á því fólki sem þarna á hlut að máli.