19.12.1987
Neðri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2721 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Frsm. meiri hl, félmn. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Eins og fram kom fyrir nokkru hafði komið inn formgalli á þingskjali við afgreiðslu þessa máls frá deildinni til hv. Ed. og málið var meðhöndlað þannig að það var haft samráð við formann félmn. Ed. og beðið um að láta lagfæra þetta í meðferð hv. deildar. Í samræmi við þingsköp lýsi ég því hér með yfir fyrir hönd félmn. Nd. að nefndin er samþykk þeirri breytingu sem Ed. hefur gert á frv., þ.e. að niðurlag 1. mgr. 3. gr. orðist svo: „og skulu fyrrnefnd lán afgreidd í sömu röð og umsóknir berast þegar íbúðir verða veðhæfar“ en eins og áður hafði komið fram var þetta orðalag öðruvísi í afgreiðslu málsins héðan frá deildinni. Það var sett inn orðið „eða“ en þetta er sjálfsögð leiðrétting og félmn. Nd. leggur til að þetta verði samþykkt óbreytt.