19.12.1987
Neðri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

194. mál, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Hér er til 2. umr. í þessari deild býsna stórt og viðamikið mál sem reyndar á sér langa sögu og hefur mikið verið rætt í grundvallaratriðunum, þ.e. sú grunnhugsun að færa verkefni og vald frá miðstjórnarvaldinu, ríkinu, til sveitarfélaganna eða einhverra samstarfsvettvang sveitarfélaganna. Það á sér langa sögu að menn hafa rætt um slíkt á Íslandi en minna hefur orðið úr framkvæmdum.

Hér er vissulega gerð tilraun til þess að stíga skref í þessa átt og því er við því að búast að margir horfi til frv. með nokkurri eftirvæntingu í ljósi þessarar miklu umræðu en ég held að það skref sem hér er lagt til og þó kannski sérstaklega hvernig að því er staðið sé ekki það vænlega upphaf á slíkri uppstokkun verkefnaskipta milli ríkis og sveitarfélaga sem margir höfðu vonast eftir.

Ég vil í fyrsta lagi segja að ég held að tímasetningin sé óraunhæf. Ég held að það sé bráðræði að ætla að hefja þessa uppstokkun og þennan fyrirhugaða verkefnatilflutning nú þegar við næstu áramót. Ég vek athygli á því að það starf sem unnið hefur verið á vegum ríkisins og samstarfsaðila sveitarfélaganna eða sambandsstjórnar sveitarfélaganna og sveitarstjórnarmanna hefur, til skamms tíma a.m.k., verið miðað við það að verkefnatilflutningurinn ætti sér stað í fyrsta lagi við áramótin 1988–1989.

Álit verkaskiptanefndar, eða hvað hún nú skyldi heita sem fjallað er um í þykkri skýrslu sem við nefndarmenn í félmn. og þeir sem í þeirri nefnd hafa starfað eru orðnir sæmilega kunnugir, gengur út á að þær tillögur í heild sinni, sem einn pakki, verði látnar koma til framkvæmda ekki núna við þessi áramót, heldur að rúmu ári liðnu og það breytir auðvitað mjög miklu hvort menn í fyrsta lagi hafa ár til viðbótar til að undirbúa verkefnið og í öðru lagi hvort það gerist allt í heild sinni eða einungis lítill hluti þess núna. Það nægir að benda á þá augljósu staðreynd í þessu sambandi að í þeim takmarkaða hluta verkefna sem hér er ráðgert að færa til er nánast um einhliða færslu að ræða, þ.e. eingöngu frá ríkinu til sveitarfélaganna. Það er ekkert tekið í staðinn sem tekur því að nefna og flutt af herðum sveitarfélaganna yfir á ríkið. Og í ljósi þess að veiki bletturinn á öllum þessum hugmyndum, lausi endinn má segja sem alls staðar stendur út af, er fjármögnunin, er spurningin um það hver greiðir kostnaðinn og hvernig, er það auðvitað ekki traustvekjandi að ríkið skuli ekki taka yfir til sín verkefni eða útgjöld í sama mæli og það færir yfir á sveitarfélögin. Ég á hér ekki við Jöfnunarsjóðinn eða minni skerðingu hans sérstaklega. Það er óhjákvæmilegt að spyrja hæstv. ráðherra, hæstv. félmrh. og e.t.v. ætti hæstv. fjmrh. að svara þar einnig: Hvers vegna var ekki valin sú leið að bæta sveitarfélögunum upp þau útgjöld sem þau sjáanlega verða fyrir af því að axla þessar byrðar með því t.d. að taka sambærilegan kostnað af sjúkrasamlögum eða tannlækningakostnað á móti og færa hann af sveitarfélögum yfir til ríkis?

Nú gengur álit nefndarinnar út á það að liðir eins og tannlæknakostnaður og sjúkrasamlög, ef ég man rétt, útgjöld af þessum toga, færist frá sveitarfélögunum eða þeim verði létt af sveitarfélögunum og tekin upp af ríkinu þegar verkefnaskiptin í heild sinni, allur pakkinn er genginn í gegn. Ég held að nauðsynlegt sé að fá þessu svarað strax í upphafi því að það skiptir auðvitað miklu máli að gagnkvæmt trúnaðartraust ríki milli aðila þegar þessi verkefnafærsla á sér stað, hvort sem það er einhver hluti hennar eða verkefnafærslan í heild.

Ég hef, herra forseti, lagt fram brtt. á þskj. 381 og sú brtt. er mjög einföld. Hún er ein grein, svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Við 29. gr. Í stað „1. janúar 1988“ komi: 1. janúar 1989.“

Þessa brtt. ber að skoða sem varatillögu. Þó að það komi ekki fram í heiti tillögunnar er hún varatillaga eðli málsins samkvæmt vegna þess að ræðumaður styður álit minni hl. félmn. sem leggur til að málinu í heild verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Ég teldi það eðlilegustu málsmeðferðina að Alþingi segði við hæstv. ríkisstjórn: Gott og vel. Við viljum gjarnan að þessi mál séu skoðuð. Í því felst ekki að Alþingi taki neikvæða afstöðu nema síður sé til þess að haldið verði áfram á þessari braut og haldið verði áfram að vinna að þessum málum. En allt og sumt sem Alþingi segir er: Við viljum að hæstv. ríkisstjórn undirbúi þetta mál betur. Það tel ég í ljósi allra aðstæðna mjög skynsamlega málsmeðferð og styð því, eins og ég hef þegar tekið fram, álit minni hl. félmn. enda kemur það fram aftast í nál.

En fari svo að meiri hl. hv. alþm. fallist ekki á þessa tilhögun og felli það að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar þá hef ég lagt fram við þessa umræðu brtt. þess efnis að öll verkefnafærslan frestist um eitt ár. Ég vil fá það, herra forseti, fram við þessa umræðu, við 2. umr. hér í deildinni, hvort meiri hl. alþm. hlustar hvorki á röksemdir stjórnarandstæðinga og annarra þeirra sem komið hafa til að mynda til viðræðna við hv. þingnefnd um nauðsyn þess að binda betur lausa enda í þessu máli og ef svo fer að hv. stjórnarliðar og þeir sem styðja ríkisstjórnina stundum og stundum ekki fallist ekki á það og ekki heldur að fresta gildistöku breytinganna um eitt ár, þá vil ég að það liggi ljóst fyrir þegar eftir 2. umr. málsins hér í þessari deild, þannig að enn sé þá eftir ein umr., 3. umr., þar sem menn geti rætt málin út frá þeirri niðurstöðu atkvæðagreiðslu ef svo færi að ríkisstjórnin ætlaði að knýja allar þessar breytingar á þegar við næstu áramót og sé ekki til viðtals um það að fresta gildistöku breytinganna. Þá kemur auðvitað til greina að ræða það og láta á það reyna hvort eitthvert samkomulag sé til um að fresta gildistöku tiltekinna hluta þeirrar færslu sem hér er lögð til.

Hæstv. ríkisstjórn er reyndar þegar á undanhaldi með einn þátt þess máls þar sem eru tónlistarskólarnir. Ég hef skilið það svo, a.m.k. í félmn., að það sé væntanleg, ef ekki þegar komin fram, brtt. um að fresta gildistöku þess að tónlistarfræðslan færist yfir á sveitarfélögin a.m.k. um missiri. (Gripið fram í.) Fram til 1. sept. 1989. Þá er það upplýst. Þakka fyrir. Þetta sýnir auðvitað að hæstv. stjórnarliðum er ekki alls varnað. Þeir hafa áttað sig á því að það mætir mikilli andstöðu að flytja þetta verkefni einhliða yfir á sveitarfélögin. Það er talið óskynsamlegt af ýmsum faglegum ástæðum. Það gengur í raun þvert á dóm reynslunnar sem segir okkur að fátt hafi orðið jafnmikil lyftistöng tónlistarfræðslunni og það þegar ríkið tók upp að greiða hluta af kostnaði því samfara.

Ég tel t.d. að það sé annar liður inni í þessu frv. sem nákvæmlega sama máli gegni um og það er rekstur byggða- og minjasafna. Ég tel það órökrétt, nánast hvernig sem á það mál er litið, að ætla að færa það verkefni alfarið yfir á sveitarfélögin. Ég hefði talið meiri hl. félmn. menn að meiri ef þeir hefðu líka lagt til að a.m.k. fresta færslu þess verkefnisþáttar vegna þess að það háttar svo til um báða þessa málaflokka sérstaklega að endurskoðun, annaðhvort á heildarlögum um þá eða endurskoðun annarra hluta sem tengjast þessum verkefnum, er í bígerð. Ég á hér við heildarendurskoðun laga um þjóðminjavörslu. Og ég á við það að grunnskólalög og færslu grunnskólanna yfir til sveitarfélaganna verður auðvitað að skoða í samhengi við tónlistarfræðsluna. Á það hefur einmitt verið bent af mörgum sveitarstjórnarmönnum að það sé með öllu órökrétt að tónlistarfræðslan sæti annarri meðferð en önnur almenn fræðsla. Ef það verður niðurstaðan, hvort sem það verður að ári liðnu eða einhvern tímann seinna, að verkefni á sviði grunnskóla skiptist þannig upp milli ríkis og sveitarfélaga að sveitarfélögin annist rekstur en ríkið greiði laun, þá spyr maður og ég spyr hæstv. félmrh.: Hver eru rökin fyrir því að hafa ekki nákvæmlega sama hátt á í tónlistarskólunum, tónlistarskólum á grunnskólastigi, eða tónlistarfræðslu fyrir börn og unglinga? Ég spyr: Hver eru rökin? Hvað er það í tónlistarskólum, þar sem verið er að kenna börnum tónmennt, sem er öðruvísi en í grunnskólum þar sem verið er að kenna ýmis önnur fræði? Hvað er það sem rökstyður það að sveitarfélögin eigi ein að bera allan kostnað af fræðslu á þessu sviði en ekki annars staðar? Ég held að þarna væri verið að búa til ósamræmi sem væri óskynsamlegt og þarna væri verið að brjóta niður ákveðna frjóanga menningarstarfsemi sem hafa verið að blómgast víða um landið á undanförnum árum.

Ég vil því í fyrsta lagi að hæstv. félmrh. — og ég geri ráð fyrir að hann tali fyrir hönd allrar ríkisstjórnarinnar í þessum efnum þó maður efist nú stundum um það að hve miklu leyti einstakir ráðherrar tjá sig fyrir hönd allrar ríkisstjórnarinnar þegar maður hlustar á umræður og les ummæli þeirra í blöðum þessa dagana — ég vil að hæstv. ráðherra byrji á því að svara til um það: Er einhver samkomulagsflötur í þessu máli af því tagi að gildistöku breytinganna verði frestað? Annaðhvort með því að hæstv. ríkisstjórn taki málið til sín aftur eins og lagt er til í nál. minni hl. eða með samkomulagi um að fresta gildistöku laganna þannig að a.m.k. eitt ár líði til þess númer eitt, númer tvö og númer þrjú að endurskoða lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, setja þar lög og láta þeim fylgja reglugerðir þar sem alveg morgunljóst er hvernig á að jafna út aðstöðumun sveitarfélaganna í þessu sambandi, hverjar verða tekjur Jöfnunarsjóðs í tengslum við þær skattkerfisbreytingar sem nú eru að ganga yfir. Nú er það svo, eins og menn vita, í lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga að hann hefur tekjur úr tveimur áttum, annars vegar af söluskatti og hins vegar verðtollstekjur. Báðum þessum tekjustofnum er nú verið að gerbreyta og hér eru opin frv. á hinu háa Alþingi um þetta tvennt. (Forseti: Ég vil beina því til ræðumanns hvort hann eigi langt eftir af ræðu sinni þar sem nú er ákveðið að hafa hlé á fundinum. ) Já, herra forseti, ég hygg að ég geti lokið ræðu minni á tveimur mínútum ef það leyfist. (Forseti: Já, þá mun það leyft.)

Ég vil gjarnan, herra forseti, hafa þessi orð ekki miklu fleiri að sinni vegna þess að ég vil gefa hæstv. ráðherra kost á því að svara hér sem fyrst og hann gerir það þá vonandi í upphafi þess að við höldum fundinum áfram. Ég tel nauðsynlegt fyrir umræðuna að það fáist strax fram hvaða möguleikar eru á einhverju samkomulagi um þetta mál. Það má öllum ljóst vera að það á eftir langa og stranga vegferð hér í gegnum þingið ef hæstv. ríkisstjórn er ekki til nokkurs samkomulags um meðferð þess. Ég held að ósk stjórnarandstöðunnar um að þessi mál verði tekin til betri skoðunar og þá varatillögur um það að gildistöku breytinganna verði frestað séu sanngjarnar óskir. Þær eru studdar efnislegum rökum og ég vil þá a.m.k. fá að heyra frá hæstv. ráðherra og öðrum talsmönnum ríkisstjórnarinnar hvað það er sem gerir það að verkum ef svo er að ríkisstjórnin treysti sér ekki til að ræða a.m.k. um slíka möguleika. — [Fundarhlé.]