21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2796 í B-deild Alþingistíðinda. (2099)
181. mál, stjórn fiskveiða
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir þann skilning sem hann sýnir á næringarástandi alþm. Einkum á þessum síðustu dögum ársins áður en matarskatturinn verður lagður á er skynsamlegt að reyna að taka til sín sem mesta ódýra næringu áður en nýi skatturinn rennur í garð á nýársdag.