21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
43. mál, leyfi til slátrunar
Guðni Ágústsson:
Forseti. Hér er búið að segja mörg orð í þessu máli. Ég tek undir með þeim hv. alþm. sem telja að virðingu Alþingis sé stefnt í voða með flutningi þessa lagafrv. Til hvers eru lög sett? Þau eiga að vera heildarrammi en ekki sett í þágu sérhópa. Það er öðrum falið að framfylgja lögunum. Hvers vegna skyldi Alþingi setja lög, sérlög, um slátrun á Bíldudal? Það væri fáránlegt. Hvaða gáttir eru menn að opna á hinu háa Alþingi? Ég fæ ekki séð að það bæti framkvæmd laga að landbrh. fái heimild til að ganga gegn vilja þeirra sem eiga að bera samkvæmt lögunum ábyrgð á heilbrigðiseftirliti, bera ábyrgð á þeirri vöru sem fer á markað til neytenda, eru nokkurs konar öryggisverðir á milli bændanna og neytenda. Ég er undrandi á hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni fyrrv. heilbrmrh. Hverju er hann að bjóða heim? Látum vera þó að ungliðar í liði þm. láti plata sig inn á að flytja slíkt frv., en einn elsti og reyndasti þm. þessarar samkomu flytur slíkt frv. og hv. þm. og fyrrv. landbrh. lætur hafa sig í að skrifa nafn sitt á þetta plagg.
Ég vil enn fremur segja að hv. þm. Matthías Bjarnason hefur verið mikill baráttumaður heilbrigðismála. Hann hefur verið sá maður sem hefur leitt Hollustuvernd ríkisins af stað og þar jafnan staðið í fylkingarbrjósti til að verja hagsmuni neytenda og verið prýði að honum í því starfi. Því harma ég það að í hita leiksins skyldi þessi ógæfa henda hv. þm.
Það kann að vera að einstakir embættismenn í störfum hjá ríkinu gerist brotlegir í störfum sínum. Ég ætla ekki að fullyrða neitt um það í þessu deilumáli. En sé hægt að sanna að slíkt eigi sé stað á að sækja slíka embættismenn til saka eftir réttum leiðum en ekki setja lög til þess að komast fram hjá þeim.
Landbúnaðurinn og bændastéttin auka ekki líkur á sölu á afurðum sínum, eins og hér hefur verið sagt, fari stéttin sem slík að standa í slag við heilbrigðisyfirvöld í hverju máli. Við skulum minnast þess að það háa Alþingi sem sat 1966 samþykkti þau lög sem hér er starfað eftir hvað slátrun varðar. Þá var landbrh. Ingólfur heitinn Jónsson. Ég hygg að hv. þm. Matthías Bjarnason hafi stutt þessa lagasetningu þá. Þeir lögðu það enn fremur til að næstu 16 árin hefðu menn tækifæri til að laga og endurbyggja öll sín sláturhús. Þeim voru gefin 16 ár til að byggja sláturhúsin upp og aðlaga þau að þeim kröfum sem þessi stofnun lagði til. Þeir gáfu þeim 16 ár. Nú eru fimm ár síðan allar undanþágur áttu að vera úr sögunni, en á hverju sumri hefur framkvæmdarvaldið gefið undanþágur á þetta hús og fleiri og það hefur verið veitt. Til hvers er lagastofnun ef hún starfar með þessum hætti?
Ég tel að þessum „Eyjólfshúsum“ beri að fækka og ég hvet landbrh. til þess að í heild sinni verði tekið a þessu mali og ég tek undir þau ummæli að það eigi að liggja fyrir hinn 1. september ár hvert og eigi síðar hvaða hús megi slátra sauðfé.
Ég vil, hv. þm., eins og margir aðrir vara við þessu frv. og hvet menn til að opna ekki þær gáttir sem þeir hafa hér gert tilraunir með. Þetta þing á að minnast þess og það á að vera nokkurs konar bjölluhljómur löggjafarsamkomunnar. Ef við slítum í sundur lögin, þá munum við og slíta í sundur friðinn. Ég tel þess vegna að menn eigi ekki í þessu máli að fara svona að heldur eigum við að hverfa frá þessari umræðu og hvetja til að þetta mál fái þá farsælu úrlausn sem kom fram í máli hæstv. landbrh. í dag. Ég tel að Alþingi eigi að láta linna þeim umræðum sem hér hafa verið í gangi, tel að það hafi ekki verið löggjafarstarfinu til sóma og harma þær umræður.