21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2809 í B-deild Alþingistíðinda. (2101)
181. mál, stjórn fiskveiða
Frsm. 2. minni hl. sjútvn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. 2. minni hl. sjútvn. og les það, með leyfi forseta:
„Frumvarp þetta um stjórn fiskveiða á næstu árum tekur til viðamikilla þátta sem snerta daglegt líf og afkomu allra Íslendinga.
Auðlindirnar í hafinu umhverfis landið eru sameign allrar þjóðarinnar. Það er því ljóst að taka verður tillit til margra sjónarmiða þegar tekin er ákvörðun um svo veigamikið mál sem skipulag og stjórn á nýtingu þessarar dýrmætu auðlindar er. Síðast en ekki síst verður að líta til framtíðar, að hugsa til komandi kynslóða með því að taka aðeins vextina af auðlindinni en láta höfuðstólinn ósnertan.
Sú fiskveiðistjórn, sem hefur verið við lýði undanfarin fjögur ár, hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Heildarþorskafli hefur á hverju ári farið langt fram úr því hámarki sem fiskifræðingar hafa lagt til. Fiskiskipum hefur fjölgað og ný skip eru í flestum tilvikum stærri en þau sem úrelt eru.
Sjávaraflinn er ekki nógu vel nýttur og miklu af nýtilegu hráefni er kastað á glæ.
Kjör starfsfólks í sjávarútvegi eru óviðunandi. Einstaklingar hafa hagnast um hundruð milljóna á sölu kvóta sem þeir fengu úthlutað gefins, en um leið horfa íbúar ýmissa byggðarlaga oft á eftir einu atvinnu sinni án þess að fá rönd við reist.
Í ljósi þessa er augljóst að leita þarf nýrra leiða sem samrýmast betur þeim markmiðum sem stefnt er að með stjórn fiskveiða. Í stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir endurskoðun á fiskveiðistefnunni, m.a. með það fyrir augum að athuga hvort veiðiheimildir skuli eingöngu bundnar við skip og á hvern hátt megi taka meira tillit til byggðasjónaratiða. Þetta stendur á bls. 8 og 9 í stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Þessir tveir þættir hafa að mati 2. minni hl. alls ekki fengið þá umfjöllun sem nauðsynleg hefði verið og frv. gerir ekki ráð fyrir breytingum á þeim.
Reynslan sýnir að sú skipan að binda veiðiheimildir við skip í eigu einstaklinga eða útgerðarfélaga hefur valdið straumhvörfum í atvinnulífi margra byggðarlaga og jafnvel haft í för með sér mikla byggðaröskun.
Í 1. gr. frv. segir, með leyfi forseta: „Fiskistofnar á Íslandsmiðum eru sameign þjóðarinnar.“
Í stefnuskrá Kvennalistans segir svo, með leyfi forseta: „Lífríki hafsins er ein dýrmætasta auðlindin sem við Íslendingar höfum aðgang að. Þessa auðlind, sem er eign allrar þjóðarinnar, verðum við að umgangast þannig að ekki sé hætta á ofnýtingu.“
Kvennalistinn getur því vel tekið undir þá stefnumarkandi yfirlýsingu sem fram kemur í 1. gr. frv. Sú tilhögun að úthluta veiðiheimildum síðan gefins beint til einstaklinga og útgerðarfélaga, sem geta ráðskast með þær í eiginhagsmunaskyni, hlýtur hins vegar að vera í mótsögn við yfirlýsinguna um þjóðareign.
Kvennalistinn hefur lagt fram brtt. við 4.–15. gr. frv. svo og 17., 18. og 21. gr. Markmiðið með brtt. er fyrst og fremst að rjúfa það óeðlilega samband sem nú er á milli skips og veiðiheimildar og taka tillit til byggðasjónarmiða, að draga úr ofstjórn og miðstýringu, að efla rannsóknir, að hvetja til betri nýtingar og bættrar meðferðar sjávaraflans og búa betur að starfsfólki í sjávarútvegi.“
Herra forseti. Í upphafi máls míns vil ég byrja á því að þakka nefndarmönnum í sjútvn. í þessari hv. deild samstarfið í því annasama starfi sem við höfum staðið í undanfarnar vikur. Eins og fram hefur komið í ræðum þeirra hv. þm. sem hér hafa talað hefur það starf hvorki verið viðburðasnautt né heldur tilbreytingarlítið. En ég vil einnig þakka hæstv. sjútvrh. og hans starfsfólki fyrir þeirra þátt í því að greiða fyrir störfum nefndarinnar. Þó frv. hafi komið seint inn í sali Alþingis var þó reynt að kynna málið í þeim tveimur nefndum sem ráðherra skipaði í haust. Það tel ég góða viðleitni og tel rétt að taka það fram hér og nú þar sem ég hef á undanförnum dögum gagnrýnt þá fljótaskrift sem óneitanlega verður á meðferð margra mála í þeim önnum sem hér ríkja nú og sömuleiðis að mörg þeirra mála sem lögð eru fram á hinu háa Alþingi hafa verið í umfjöllun samtaka og hagsmunaaðila úti í bæ, en eru síðan lögð á borð okkar þm. nánast sama daginn og um þau á að fjalla.
Frv. þau sem eru sem óðast að verða að lögum þessa dagana eru að sjálfsögðu á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar, en ábyrgð stjórnarandstöðu er að mínu mati engu minni þegar hún tekur afstöðu til efnisatriða hinna ýmsu mála sem eru í senn viðamikil og flókin.
Þegar fyrirsjáanlegt var að óvenjulega naumur tími yrði til að afgreiða þessi stóru mál fyrir áramót hefðu fleiri hæstv. ráðherrar mátt taka sér hæstv. sjútvrh. til fyrirmyndar í þessum efnum. En það er svo auðvitað mat hvers og eins hversu mikið gagn hann eða hún hefur af slíkum upplýsingum og fer það trúlega einnig eftir þeirri þekkingu sem viðkomandi hafði í upphafi á því efni sem fjallað er um. Það er reyndar samt tilfinning mín að fundirnir mörgu væru e.t.v. fyrst og fremst haldnir til að kynna rækilega kosti frv. og ekki væri ætlast til að á því væru gerðar neinar grundvallarbreytingar, enda hefur reyndin orðið sú að ekki er útlit fyrir það í þeim gögnum sem nú liggja fyrir. En þessi ágæta kynning varð reyndar til þess að menn einblíndu á það kerfi sem gilt hefur sl. fjögur ár, festust í hjólförunum og komust alls ekki upp úr þeim.
Frv. er því aðeins lagfæring á helstu göllum þess kerfis sem við nú búum við og allmargir viðurkenna að hafði þegar gengið sér til húðar. Við kvennalistakonur teljum að í ljósi þessa hefðum við átt að nota vorblíðu haustsins til að rífa allt upp með rótum og gróðursetja upp á nýtt en reyta ekki bara arfann. Þess vegna lögðum við fram brtt. þegar við 1. umr. málsins sem reyndar mun ekki vera venjan á hinu háa Alþingi, en það gerðu einnig hv. þm. Alþb. og Borgarafl. vegna þess tímaskorts sem fyrirsjáanlegt var að mundi hrjá okkur síðustu starfsdaga þingsins á þessu ári.
Í 1. umr. um fiskveiðistefnuna kynnti ég allítarlega till. Kvennalistans um stjórn fiskveiða og mun því ekki fara út í þær í smáatriðum við þessa umræðu. Þar skilgreindi ég m.a. markmiðið með þeirri mannlegu stjórnun fiskveiða sem við hljótum að hafa sett okkur í upphafi. Það hlýtur að vera fyrsta markmiðið, yfirmarkmiðið yfir þessu öllu hlýtur að vera að hindra ofveiði, að vernda og byggja upp fiskistofna. En ef litið er á árangurinn er hægt að fullyrða að þetta markmið hefur engan veginn náðst. Heildarþorskaflinn fer á hverju ári langt fram úr þeim mörkum sem fiskifræðingar hafa talið ráðlegt og samanlagður umframafli þeirra fjögurra ára sem kvótakerfið hefur verið í gildi er um 366 þús. tonn og það mun samsvara heildarafla heils árs. Aukin sókn í ýmsar aðrar fisktegundir gerir það að verkum að sífellt fleiri tegundir þarf að setja undir kvóta.
Í öðru lagi hlýtur tilgangurinn með kvótakerfi að vera að auka hagkvæmni og minnka tilkostnað bæði við veiðar og vinnslu. Það má segja að þetta markmið hafi að hluta til náðst. Það má að einhverju rekja til kvótakerfis en lægra olíuverð og aðrar ytri aðstæður hafa haft sitt að segja. Eitthvað hefur þó dregið úr hagkvæmninni síðustu ár við meiri ásókn í sóknarmarkið sem hefur orðið hvati til aukinnar fjárfestingar. Og till. okkar gera reyndar ráð fyrir að leggja það með öllu af vegna þess að það er ein aðalorsök ofveiðinnar.
Flestir telja að stefna beri að því að fækka fiskiskipum og minnka flotann í heild. Þróunin hefur orðið á hinn veginn. Fiskiskipum hefur fjölgað og þau hafa stækkað. Ný skip eru í mörgum tilfellum stærri en þau sem hefur verið lagt til hliðar.
Í þriðja lagi hlýtur kvótakerfið að stefna að því að bæta meðferð sjávaraflans. Á síðustu árum má segja að hún hafi batnað nokkuð, en það er að þakka árangri aukinnar þekkingar og skilnings þeirra sem með aflann vinna. Það má vera að kvótaskiptingin geti átt þar hlut að máli þar sem magnið er gefinn hlutur en gæðin ráða tekjum. Hins vegar er ljóst að hér má bæta um betur.
Í fjórða lagi hljótum við að stefna að því að nýta sjávaraflann til fullnustu, en þar vantar enn þá mikið á. Miklu er kastað á glæ í orðsins fyllstu merkingu, bæði fisktegundum og fiskhlutum, svo sem lifur, hrognum og slógi. Nefna má sem dæmi um lifrina sem hent er að það væri hægt að markaðssetja hana án nokkurs tilkostnaðar því að lýsisframleiðendur bíða hreinlega eftir því sem þar er kastað og gætu sett það á markað án aukins tilkostnaðar.
Í fimmta lagi hljótum við að reyna að stuðla að bættum kjörum þeirra sem vinna í sjávarútvegi, bæta aðbúnað þeirra, auka öryggi og greiða hærri laun. Um þennan lið þarf ekki að fara mörgum orðum því það er öllum ljóst að kjör starfsfólks í fiskiðnaði eru alls óviðunandi.
Í sjötta lagi hljótum við að stefna að sanngjarnri dreifingu atvinnu og arðs eftir aðstæðum á hverjum stað. Það má deila um hvernig hér hefur til tekist. Mörg dæmi eru um það nú síðustu árin að illa stæðar útgerðir hafa getað selt skip sín á margföldu verði milli byggðarlaga og hagnast þannig um hundruð milljóna á meðan íbúar viðkomandi byggðarlags mega horfa á eftir atvinnu sinni og fá ekki rönd við reist.
Niðurstaða okkar hlýtur því að vera sú að leiðin sem valin hefur verið við stjórnun fiskveiða á undanförnum árum skilar alls ekki tilætluðum árangri og því ber að leita nýrra leiða sem samrýmast betur þeim markmiðum sem sett voru.
Í starfsáætlun og stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar segir svo á bls. 8 og 9, með leyfi forseta: „Fiskveiðistefnan verði endurskoðuð og stefna mörkuð sem taki gildi þegar í upphafi næsta árs.“ Þá eru í stefnuyfirlýsingunni og starfsáætluninni ákvæði um skipan nefndar sem fjalla skal um málið, m.a. með tilliti til eftirfarandi atriða, með leyfi forseta: „Hvernig og hverjum veiðiheimildir skuli veittar. M.a. verði athugað hvort veiðiheimildir verði eingöngu bundnar við skip. Hvernig taka megi meira tillit til byggðasjónarmiða við mótun fiskveiðistefnu, auka athafnafrelsi og svigrúm til endurnýjunar í sjávarútvegi. Hvers konar reglur skuli setja um færslu veiðiheimilda milli aðila.“
Ekkert þessara atriða hefur hlotið ítarlega umfjöllun í þeim nefndum sem hafa verið að störfum og því ekki að sjá að niðurstaðan hljóði upp á neinar stórfelldar breytingar, en breytinga hefði svo sannarlega verið þörf, eins og best sést á því að frá stjórnarandstöðuflokkunum öllum liggja fyrir brtt. um grundvallaratriði. Það hafa einnig heyrst margar og afar mismunandi skoðanir meðal stjórnarliða á atriðum sem varða þetta mál. E.t.v. hefur það þó oft viljað vera þrándur í götu að umræðan um málið hefur snúist um eiginhagsmuni, en það sýnir svo ekki verður um villst að þetta eru hagsmunir okkar allra, þetta eru hagsmunir allrar þjóðarinnar, hvort sem um er að ræða stórfellda fjármuni, eins og t.d. það að úthluta veiðiheimildum á skipin, eða afkomu einstakra fjölskyldna eða byggðarlaga sem draga lífsbjörg sína úr sjó á trillum.
Helsta vandamálið við fiskveiðarnar á Íslandsmiðum hefur hingað til verið óskilgreindur eignarréttur á auðlindinni. Nú hefur sá eignarréttur hins vegar verið skilgreindur í því frv. sem hér er til umræðu, en í því segir í 1. gr., með leyfi forseta: „Fiskistofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“
Þessa stefnumarkandi yfirlýsingu getum við kvennalistakonur svo sannarlega tekið undir, enda höfum við ætíð litið á þessa auðlind sem sameign allra Íslendinga. Við viðurkennum jafnframt nauðsyn mannlegrar stjórnunar á nýtingu auðlindarinnar með hliðsjón af þeim rannsóknum sem vísindamenn gera og þeim ráðleggingum sem þeir gefa stjórnmálamönnum þegar meta skal hversu mikið má nýta hverju sinni. Við viðurkennum líka að með aukinni tækni og þróun verða niðurstöður vísindamanna æ öruggari og því er erfitt að sniðganga þær tillögur sem sérfræðingar eru að gera hverju sinni.
Hitt vefst fyrir okkur kvennalistakonum og eflaust fleirum hvernig þessi yfirlýsing í 1. gr. frv. samræmist þeim greinum sem á eftir koma í frv. Í þeim er alls staðar gengið út frá því að veiðiheimildum sé úthlutað til einstaklinga eða útgerðarfyrirtækja án endurgjalds. Þetta er gert án þess að eigandinn, þ.e. þjóðin, sé að einu eða öðru leyti hafður með í ráðum. Það er viðurkennd staðreynd að veiðiheimildir, þegar þær eru bundnar við skipin, kosta ákveðna upphæð. Hið svimandi háa verð skipa stafar ekki einungis af því að ekki er leyfilegt að stækka flotann með því að kaupa ný skip. Þar hefur kvótinn einnig mikið að segja, enda er algengt að heyra eða sjá auglýsingar um að tiltekið magn af kvóta sé til sölu sem þýðir að hann gengur kaupum og sölum á tilteknu markaðsverði.
Það er því ekki óeðlilegt að fleiri sem sjávarútvegi tengjast vilji gjarnan fá sinn hlut í kvótanum, eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson segir reyndar í síðasta hefti Sjávarfrétta þar sem hann fjallar m.a. um nauðsyn þess að skera milli skips og kvóta. Hann segir m.a., með leyfi forseta: „Þetta er úthlutun verðmæta svo mönnum þarf ekki að koma á óvart þó aðrir, svo sem fiskvinnslan, sækist eftir að fá hlutdeild.“
Með till. okkar um að úthluta veiðiheimildum til byggðarlaga vildum við kvennalistakonur í fyrsta lagi undirstrika nauðsyn þess að rjúfa sambandið milli skips og kvóta, afhenda fólkinu sjálfu aðgöngumiðann að þessari sameiginlegu auðlind okkar, taka meira tillit til byggðasjónamiða og draga úr þeirri ofstjórn og miðstýringu sem ríkt hefur í sjávarútveginum og margfaldlega hefur verið gagnrýnd hér í hverri einustu ræðu sem hér hefur verið flutt í dag held ég mér sé óhætt að segja.
Á sl. árum hefur þessi ofstjórn leitt til þess m.a. að skip hafa gengið kaupum og sölum á milli byggðarlaga án þess að íbúarnir hafi neitt getað gert og hafa mátt horfa á eftir atvinnu sinni. Með því að flytja ákvörðunarréttinn um úthlutun veiðiheimilda til fólksins erum við einnig trúar hugmyndum okkar um raunverulega valddreifingu sem við viljum reyndar færa út á öll svið þjóðfélagsins. En við teljum það í raun valddreifingu að gefa íbúunum í hinum ýmsu byggðarlögum tækifæri til að taka sínar eigin ákvarðanir og bera ábyrgð á þeim. Það teljum við hina einu sönnu valddreifingu sem losar fólk úr viðjum alls kyns skrifborðsákvarðana sem teknar eru í stofnunum fjarri fólkinu sjálfu.
Hér á hinu háa Alþingi er þessa dagana til umfjöllunar frv. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem við nánari yfirlestur kemur í ljós að er einungis fólgið í því að færa til fjármuni en ekki nein raunveruleg völd. Þessi till. okkar byggir á því að valdinu verði í raun og veru dreift út til fólksins í landinu. Eins og fram hefur komið í máli hv. þm. telja þeir hæstv. sjútvrh. og hans ráðuneyti hafa haft of mikil völd í þessu máli og ættu því væntanlega að geta tekið undir þær hugmyndir okkar.
Það kerfi sem við bjóðum upp á gefur líka tækifæri til að betur megi taka tillit til þeirra aðstæðna sem fyrir hendi eru á hverjum stað. Öll höfum við átt mörg og löng viðtöl við trillukarla og fengið frá þeim mörg bréf þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum aðallega vegna afkomu þeirra byggðarlaga sem af ýmsum ástæðum hafa lífsviðurværi sitt af smábátaútgerð eða einstaklinga sem hafa stundað sjómennsku hjá öðrum alla sína tíð en hafa nýlega fest kaup á trillum til að gerast eigin húsbændur seinni hluta starfsævinnar. Við höfum líka átt samskipti við menn sem hafa misst báta sína en ekki fengið leyfi til endurnýjunar. Mér þykir hins vegar undarlegt hversu lítið heyrist frá hinum svokallaða útgerðaraðli, sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson kallar reyndar „lénsherra“ í því viðtali sem ég vitnaði til í síðasta tölublaði Sjávarfrétta. Sitja þeir nú heima saddir og sælir og bíða þess að jólahátíðin gangi í garð? Það er greinilegt að þótt ekki hafi náðst samstaða í sjútvn. innan Alþingis hefur náðst afar náin og góð samstaða og samstarf á milli lénsherranna svokölluðu og ráðuneytisins sem virðast vera mjög samstiga í þessu máli.
Nú síðustu dagana hefur sjútvn. þessarar hv. deildar ítrekað reynt að koma frv. þessu til 2. umr., en eins og frá upphafi var ljóst eru skoðanir manna svo skiptar að úrslit málsins urðu fjögur nál. og a.m.k. fjórar nýjar brtt. til viðbótar við þær þrjár sem fyrir lágu. Það er á þessari stundu vandséð hvernig hægt er að koma þessu máli frá áður en núgildandi lög falla úr gildi og langt frá því að stjórnarliðar séu jafnsammála innbyrðis eins og hæstv. ráðherra og útvegsmenn virðast greinilega vera. Maður sér stundum þessa dagana fyrir sér einhverja mynd af föngum sem er búið að hlekkja um ökklann og þeir verða allir að ganga í sama takti til þess að standa uppréttir.
Fyrir liggja till. varðandi skiptingu landsins í tvö veiðisvæði, en þetta er mál sem er afar umdeilt eins og fram kom fyrr á þingtímanum og teygja deilur um þetta sig þvert í alla flokka á þinginu. Í desemberhefti Sjávarfrétta er viðtal við tvo hv. þm. sem báðir hafa gegnt embætti sjútvrh., hv. þm. Kjartan Jóhannsson, sem ég hef fyrr í máli mínu vitnað í, svo og hv. þm. Matthías Bjarnason. Þó þeir séu ekki sömu skoðunar varðandi fiskveiðistefnuna og fyrirkomulag hennar má þar finna sameiginlega punkta sem snerta reyndar þau grundvallaratriði sem við kvennalistakonur höfum lagt fram brtt. um.
Hv. þm. Kjartan Jóhannsson segir svo um úthlutun veiðiheimilda, með leyfi forseta: „Núverandi fyrirkomulag er eins konar lénsskipulag. Ákveðnum aðilum eru afhent veiðiréttindin.“
Um sama atriðið segir hv. þm. Matthías Bjarnason, með leyfi forseta: „Í þriðja lagi get ég ekki fellt mig við að ákveðnir einstaklingar fái þau forréttindi að eiga tiltekið magn af fiski í sjónum og geti selt það öðrum.“
Um tengsl veiðiheimilda og atvinnuöryggis í tilteknum byggðarlögum hafa þessir tveir sömu hv. þm. eftirfarandi að segja.
Hv. þm. Kjartan Jóhannsson segir, með leyfi forsefa: „Ég vil að kvótinn fylgi ekki skipi við sölu út af atvinnusvæði nema þá að takmörkuðum hluta heldur komi kvótinn til endurúthlutunar innan sama svæðis.“
Um sama atriði segir hv. þm. Matthías Bjarnason, með leyfi forseta: „Í öðru lagi er það ákaflega alvarlegt mál þegar staðir missa rétt til veiða við það að fiskiskip er selt burt.“
Nú er spurningin sem hlýtur að vakna meðal okkar: Ætla þessir hv. þm. að greiða því frv. sem hér um ræðir atkvæði sitt þar sem ekkert tillit er tekið til þessara þátta sem eru algjör grundvallaratriði? Við úthlutun veiðiheimilda árið 1983 fór fram einhver mesta tekjustýring og verðmætaúthlutun sem átt hefur sér stað. Sú úthlutun var endurtekin þegjandi tveimur árum seinna og nú stöndum við frammi fyrir spurningunni: Skal þetta endurtekið enn einu sinni og kerfið þar með fest í sessi? Ætlum við enn og aftur að úthluta þessum sameiginlegu verðmætum þjóðarinnar til einstakra aðila og gefa þeim tækifæri til að kaupa og selja eftir eigin lund?
Ég hef ekki hugsað mér að fara mjög náið út í einstakar greinar þess frv. sem fyrir liggur, en vil reyndar taka undir till., sem fram er komin frá hv. þm. Karvel Pálmasyni, um að hér verði skipuð sérstök þingmannanefnd til að fjalla um endurskoðun fiskveiðistefnunnar vegna þess að ég tel það vera einn megingallann, sem hefur verið núna í haust, að við höfum ekki fengið nægan tíma. Þó við höfum byrjað fyrr í þessu nefndarstarfi en í mörgum öðrum nefndum á þinginu hefur ekki náðst sú umræða sem hefði þurft að verða, þ.e. að ræða grundvallaratriðin og reyna að sjá upp úr því kerfi sem við erum sokkin til botns í að því að mér sýnist.
Það var líka galli að í nefndum komu ekki fram hreinar línur fyrr en á allra síðustu stundu og það sýnir og undirstrikar hversu mikið ágreiningsmál þetta er. En ég ítreka að sú till., sem hv. þm. Karvel Pálmason hefur hér lagt fram, um sérstaka nefnd, sem mundi ræða þessi mál og gera úttekt á þeim án þess að vera í tímaþröng, væri til mikilla bóta og er alveg nauðsynlegt að þar eigi allir flokkar sína fulltrúa vegna þess að það getur háttað svo til að í dag er einn í stjórn og annar á morgun.
En það kemur líka fram í brtt. að gildistíminn verði styttur miðað við það sem upphaflega var ætlað. Það er slæmt fyrir þá sem í útgerð standa og þurfa að skipuleggja sinn rekstur, en ég held að það sé samt nauðsynlegt vegna þess að eins og ég hef ítrekað sagt hér í máli mínu hefur ekki gefist nægur tími til að fjalla um nýjar hliðar á þessu máli.
Það er þó eitt sem ég vildi tala um að lokum. Það er varðandi 4. gr. frv. sem nú liggur fyrir. Ég held að með því að setja mannlega stjórn á fiskveiðar verðum við að hafa það fyrst og fremst fyrir augum að draga úr ofveiði og vinna að uppbyggingu fiskistofnanna. Því tel ég hæpið það sem segir í 4. gr., með leyfi forseta: „Ráðherra getur ákveðið að fiskur undir ákveðinni stærð eða fiskur sem veiðist á línu skuli ekki eða aðeins að hluta til talinn með í aflamarki eða sóknarmarki fiskiskips.“
Hér er verið að ýta undir það sem kallað er smáfiskadráp. Það hefur komið fram í umræðunni að meðalþyngd á þorski undanfarin ár er rétt rúm 2 kg, en var um 5 kg fyrir átta árum, þannig að ég held að hér sé þörf á að gæta vel að. Það segir einhvers staðar að betri sé smár fiskur en tómur diskur, en ég held að við ættum ekki að láta diskinn tæmast og við verðum að grípa til aukins veiðieftirlits. Það er einn af göllunum að það er ekki gert ráð fyrir neinu auknu veiðieftirliti hér í þessu frv. en það þyrfti svo sannarlega að vera vegna þess að sjómenn viðurkenna jafnvel sjálfir að þeir hendi svo og svo miklu í sjóinn.
Það hefur líka verið rætt um í sambandi við rækjuveiðar að þar eru uppi ákveðnar hugmyndir um að skipta kvóta á veiðar og vinnslu. Það er ákveðin krafa uppi um það frá verksmiðjum að þær fái sína hlutdeild í kvótanum og það er spurning: Er hér ekki að koma upp það, sem við höfum verið að tala um, að kvótinn eigi ekki einungis að vera bundinn við fiskiskipin? Ef hægt er að skipta milli veiða og vinnslu rækjuafla hlýtur það að vera hægt líka varðandi aðrar fisktegundir. En ég vildi segja, vegna þess að ég talaði um ofveiði og smáfiskadráp allra síðast, að mér þykir líka heldur kæruleysislega farið með áætlaðar rækjuveiðar upp á 36 000 tonn, en fiskifræðingar hafa mælt með 30 000 tonna ársveiði. Ég tel vafasamt að fara út í að gera út á rækju í þeirri von einni að það uppgötvist ný rækjumið einhvers staðar hér í hafinu í kring.