21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)
181. mál, stjórn fiskveiða
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstv. sjútvrh. hafði beðið um orðið og ég hefði talið að það væri ekkert á móti því að leyfa hæstv. ráðherra að nota tímann ef ekki koma athugasemdir við það. En að sjálfsögðu fær hv. 7. þm. Reykn. tækifæri til að flytja sitt mál þegar fundi er lokið með forsetum og þingflokksformönnum.