21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)

181. mál, stjórn fiskveiða

Frsm. 1. minni hl. sjútvn. (Skúli Alexandersson):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka þá ósk sem hér kom fram hjá hv. þm. Guðmundi Ágústssyni frá 7. þm. Reykn. sem er nú á fundi með forseta og þingflokksformönnum að skipuleggja störf þingsins á næstu klukkutímum eða svo. Ég tel og veit reyndar að hv. þm. hefur fullan áhuga á því að fá að heyra það sem hæstv. sjútvrh. kann að segja í ræðu sinni hér á eftir sem getur að vissu leyti haft áhrif á hans málflutning þegar hann kemur hér til starfa í deildinni. Mér finnst öll rök mæla með því að það verði orðið við ósk hv. þm. um það að fresta fundi, það getur varla tekið svo langan tíma, að fundi verði frestað hér í deildinni þar til forsetafundur og fundur með formönnum þingflokkanna er búinn.