21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)
181. mál, stjórn fiskveiða
Frsm. 1. minni hl. sjútvn. (Skúli Alexandersson):
Virðulegi forseti. Ef hæstv. sjútvrh. hefur skilið orð mín þannig að ég væri að óska eftir því að hann frestaði sinni ræðu á annan hátt en þann að það yrði beðið eftir því að hv. 7. þm. Reykn. kæmi hér, þá er það hinn mesti misskilningur. Ég held að það hljóti að vera ósk þingdeildarmanna að ráðherra taki þátt í umræðunni nú við 2. umr. og fresti ekki sínum upplýsingum til 3. umr., en það hlýtur jafnframt að vera eðlileg og sjálfsögð ósk þess þm. sem fór fram á það að fundi yrði frestað að hann fái að fylgjast með því sem hæstv. ráðherra segir og ég sé ekki að það geti breytt mjög miklu í störfum þingsins þó fundi verði frestað í eitthvað 5–10 mínútur eða svo.