21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2919 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)
181. mál, stjórn fiskveiða
Svavar Gestsson:
Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi hefur ekki komið fram hvort forusta deildarinnar er tilbúin að kveðja saman samráðsfund forustumanna flokkanna. Í öðru lagi verð ég að segja alveg eins og er út af ræðu hæstv. sjútvrh. og athugasemd áðan að það er alveg hárrétt að við höfum fjallað í dag og í nótt um mikilvægt mál og það er hárrétt líka, sem sagt hefur verið í umræðum fyrr, að ekkert gengur í þessu þjóðfélagi öðruvísi en að menn fiski. Hins vegar vill þannig til að jafnvel þó að þetta frv. hæstv. sjútvrh. yrði ekki afgreitt fyrr en 5. janúar eða svo gengur ekki neinn verulegur héraðsbrestur yfir þetta land. Hins vegar höfum við á undanförnum árum undirbúið staðgreiðslukerfi skatta og það er ljóst að ef ekki tekst að ganga frá því með eðlilegum hætti núna þýðir það frestun þess máls um mjög langan tíma. Er það vilji ríkisstjórnarinnar að þæfa þetta kvótamál frekar og taka áhættu varðandi staðgreiðslukerfið? Ef ríkisstjórnin vill taka þá áhættu er það hennar mál, en þá er líka best að liggi fyrir hver það er sem áhættuna tekur og á því ber ábyrgð. Ég óska eftir því, hæstv. forseti, ef ekki tekst að ná fram einhverjum samráðsfundi forustumanna flokkanna á hv. Alþingi, að hæstv. fjmrh. verði kallaður í salinn vegna þess að ég vil spyrja um hvort hann er reiðubúinn sem vörslumaður ríkissjóðs og fulltrúi skattgreiðenda að taka á sig þessa ábyrgð?