21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)
181. mál, stjórn fiskveiða
Júlíus Sólnes:
Hæstv. forseti. Ég og aðrir þm. Borgarafl. höfum alla tíð lýst því yfir að okkur er ekkert að vanbúnaði að taka þátt í umræðum og stuðla að því að þau verkefni sem liggja fyrir þinginu fái eðlilega afgreiðslu, en um leið áskiljum við okkur að sjálfsögðu fullan rétt til að taka hér þátt í umræðum á málefnalegan og skipulegan hátt.
Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að við erum búin að tala nú um kvótakerfið í líklega um 15 klukkutíma með hléum. Ég hef ekki reiknað það nákvæmlega út, enda skiptir það ekki orðið öllu máli. Ég hlýt þó að taka undir orð hv. 7. þm. Reykv. að það er meira en lítið undarlegt að hv. þm. stjórnarflokkanna skuli hafa litlar áhyggjur af því að það á að fara að greiða út laun 1. janúar á forsendum tekju- og eignarskattslaga sem ekki hafa verið samþykkt á Alþingi. Ég vil fyrir okkar leyti boða brtt. við frv. til l. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt. M.a. erum við alls ekki sáttir við frádráttarliði, þ.e. persónuafsláttinn, né heldur skattprósentuna. Ég er ekki að segja að við fáum slíkar tillögur samþykktar, en það getur vel verið að við með rökum gætum fengið menn til að ganga til liðs við okkur. Og hvað vilja menn? Vilja menn að það sé byrjað að borga laun út á algerlega fölskum forsendum? Ef þm. stjórnarflokkanna vilja það, þá þeir um það. Mér finnst skynsamlega boðið af hálfu okkar í stjórnarandstöðunni að við erum reiðubúin að fallast á að hér verði ein umræða um frv. til l. um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt og við sjáum ekki nauðsyn þess að ljúka umræðu um fiskveiðistefnuna. Það er nógur tími til að klára það mál milli jóla og nýárs.
Ég verð að taka undir það, sem hér hefur komið fram, að ég fæ ekki séð að landið fari á hvolf eða sökkvi í sæ þó að það yrði róið í nokkra daga eftir áramót án þess að skömmtunarstefna hæstv. sjútvrh. nái fram að ganga. Satt að segja held ég að það væri þjóðinni fyrir bestu að hún tefðist sem allra lengst, helst eitthvað fram á vorið. En látum það vera. Ég geri nú ráð fyrir því og reyndar er staðreyndin sú að stjórnarflokkarnir hafa mjög öflugan meiri hluta á þingi. Og það er meira en lítið furðulegt að velta þeirri staðreynd fyrir sér að hér skuli allt vera komið í harðan hnút með þennan mikla meiri hluta. Við erum um það bil 1/3 af þingliðinu sem erum að reyna að halda uppi málefnalegum umræðum og þetta gengur þannig að málin eru hlaupin í harðan hnút. En ég verð að segja eins og er að þetta er að mínu mati vel boðið og ég hvet eindregið til þess að þessi samráðsfundur eigi sér stað svo að stjórnarliðar geti áttað sig á því hvert ástandið er nú.