21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2922 í B-deild Alþingistíðinda. (2129)

181. mál, stjórn fiskveiða

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Áður en hlé var gert áðan var rætt um þann möguleika hvort það væri vilji til þess hjá hv. stjórnarsinnum að reyna að tryggja að frv. til l. um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt, sem lýtur að staðgreiðslukerfi skatta, yrði að lögum fyrir jól. Ég vildi kanna og heyra af því hver niðurstaðan hafi orðið á þessum fundi, ég vildi gjarnan heyra það af forsetastóli þannig að það megi liggja fyrir hvaða ákvarðanir hafa verið teknar í þessum efnum.