28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3205 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)

1. mál, fjárlög 1988

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það er órökstutt með öllu og algerlega úr lausu lofti gripið að Alþingi hafi nokkru sinni haft kynskiptan hugsunarhátt þegar þeir listamenn hafa verið valdir sem Alþingi hefur þótt rétt að heiðra sérstaklega með ákvörðun hér á Alþingi. Að gefa slíkt í skyn er í senn ósmekklegt og óviðeigandi og ég harma að það skuli hafa gerst. Ég segi nei við þessari tillögu.