28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3207 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)
1. mál, fjárlög 1988
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Hér höfum við verið að greiða atkvæði um framlög til Íþróttasambands Íslands og till. um að fjárveitingar til þess verði óbreyttar að krónutölu miðað við síðustu fjárlög. Það er í samræmi við till. fjvn. til Ungmennasambands Íslands þar sem fjvn. gerir ráð fyrir óbreyttum framlögum frá síðustu fjárlögum. Það er því tvöfeldni sem hér er á ferð og greinilegt að það er vegið að íþróttahreyfingunni með ósmekklegum hætti. Sú fullyrðing að hún eigi nóg af peningum, sem kom fram hjá hv. þm. Alþfl. hér, er ekki rétt. Það er nú svo að rekstur hennar kostar jafnvel meira en 1 milljarð. Við erum með öruggar tölur um reksturinn á hreyfingunni þannig að þrátt fyrir þessi framlög og tekjur af lottói er þetta samtals innan við 10% af rekstri þeirra hreyfinga.
Ég tel að það hafi verið vegið mjög ósmekklega að formanni Borgarafl. áðan af hv. 3. þm. Vesturl. og hann ætti að kynna sér málin betur áður en hann fer upp og talar um það sem hann veit ekki nægjanlega mikið um. Við sem höfum staðið í forustu fyrir íþróttahreyfingunni (Forseti: Hvernig greiðir þm. atkvæði?) munum muna þetta og þm. segir já.