28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3211 í B-deild Alþingistíðinda. (2289)

1. mál, fjárlög 1988

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Verð á raforku til húshitunar hefur farið ört hækkandi, á yfirstandandi ári samanlagt um nær 45% og almennir taxtar hafa hækkað um 36,5% hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Þetta eru mun meiri hækkanir en orðið hafa hjá samsvarandi veitum á höfuðborgarsvæðinu og munurinn á orkuverði hefur þannig farið vaxandi á landsbyggðinni og á Reykjavíkursvæðinu. Til ljósa og eldunar er verðmunurinn nú nær 36%, en var kominn niður undir 20% í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem ég sat í síðast. Hér er lagt til að lækka þá upphæð sem varið skal til niðurgreiðslna á rafhitun um 30 millj. kr. í krónutölu frá því sem var á síðasta ári. Sú aðgerð ein leiðir til 40% hækkunar á raforkuverði til húshitunar. Þar breyta engin hugsuð meðaltöl varðandi næsta ár. Ég segi já, herra forseti, við þessari tillögu.