22.10.1987
Sameinað þing: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (229)

Framlagning stjórnarfrumvarpa

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Undir yfirskini umræðna um þingsköp hafa hv. þm. Alþb. haft hér uppi útúrsnúninga og rangfærslur. Hæstv. forsrh. hefur tekið af öll tvímæli í þessu máli, hafi þau einhver verið, og gert skilmerkilega grein fyrir því að hér er auðvitað um stjfrv. að ræða enda þótt einstakir þm. kunni að hafa þar einhverja fyrirvara og hygg ég að það sé ekkert nýmæli heldur og hafi gerst ekki einu sinni heldur afar oft áður.

En vegna þess að hér var beint til mín einni fyrirspurn um flokkun þm. á upplýsingatöflu hér frammi þá greini ég frá því að auðvitað var það ekki borið sérstaklega undir mig. En varðandi það sem hann spurði sérstaklega um vil ég segja hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni að Karvel Pálmason hv. þm., er í þingflokki Alþfl., og þingflokkur Alþfl. styður þessa ríkisstjórn.