28.12.1987
Neðri deild: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3292 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)
181. mál, stjórn fiskveiða
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Í nýlegu blaðaviðtali segir hv. 1. þm. Vestf., fyrrum hæstv. sjútvrh., svo m.a., þá var rætt um sjávarútvegsmál og landhelgismál, með leyfi hæstv. forseta:
„Við unnum stóra og fræga sigra í landhelgismálinu og leiddum það til lykta á tiltölulega skömmum tíma. Lokaspretturinn, útfærslan í 200 mílur og brotthvarf útlendinga af fiskimiðunum, er stærsti og mesti sigur sem við höfum unnið í sjálfstæðisbaráttunni að undanskilinni einungis lýðveldisstofnuninni 1944. Ef brotthvarf útlendinga af miðunum hefði dregist öllu lengur byggjum við hér nú við fátækt og atvinnuleysi.“
Þetta mun mála sannast. En þegar við höfðum náð þessum sigri, að ráða yfir hafinu umhverfis landið, þá var það okkar verk og viðfangsefni að vernda það og rækta, fara vel með þessa auðlind en nýta hana. Og þá kom að því að hinar svonefndu kvótareglur voru settar í samráði við hagsmunaaðila.
En hinar títtnefndu kvótareglur komu illa við marga og margir undu þeim ekki vel. Það var bæði deilt um veiðisvæðin og margt annað. T.d. hafa Breiðfirðingar bent á hin köldu viðmiðunarár sem lögð voru til grundvallar. Enginn hefur lýst þeim köldu viðmiðunarárum oftar né betur en Soffanías Cecilsson, útgerðarmaður í Grundarfirði, svo sem vitað er. Íbúar við Breiðafjörð vildu gjarnan hafa línuna dregna út frá Öndverðarnesi í staðinn fyrir út frá Bjargtöngum. Þetta kom fram m.a. nú í hv. Ed. þegar tveir af þm. Vesturl. fluttu brtt. þessa efnis og það er svo með Breiðfirðinga og Vestfirðinga, eins og bent hefur verið á, að þeir fiska tíðum hlið við hlið. Þess vegna er það ekki nema eðlilegt að mönnum finnist að um þau skip sem veiða hlið við hlið eigi að gilda svipaðar reglur. Það er alveg eins og ef tveir menn vinna á skrifstofu að sömu störfum við sama borðið, báðir duglegir menn þá finnst manni að það eigi ekki að vera mikill launamunur milli þeirra.
Ef við horfum aðeins til baka þá er ljóst að við Vestlendingar, Breiðfirðingar, höfum orðið harkalega fyrir barðinu á kvótareglunum. Þess er skemmst að minnast frá liðnu kjörtímabili þegar eitt stærsta og besta fiskiskip við Breiðafjörð var selt burt úr Grundarfirði. Það tók með sér þriðjung kvótans. Um þetta voru fluttar margar ræður af hálfu okkar þm. Vesturl. á sl. kjörtímabili. Við gerðum margar og margvíslegar tilraunir til að fá þetta á einhvern hátt leiðrétt, en gengum jafnan bónleiðir til búðar. En það verð ég að segja að yfirleitt hefur verið mjög góð samstaða hjá þm. Vesturl. í þessum málum öllum.
Hér fyrr í kvöld minntist hv. 5. þm. Vestf. á það að svo til allt væri að fara í rúst á Patreksfirði vegna þess að skipin væru seld burt þaðan. Ef það er svo að þetta er kvótareglunum að kenna að einhverju eða kannski öllu leyti, þá tel ég að þarna þurfi heldur betur að taka á því að bágt á maður með að sætta sig við að annað eins gósensvæði og Patreksfjörður og sú góða byggð verði fyrir miklum skakkaföllum af þessum sökum.
En nú á að endurskoða þessar reglur og lagfæra þær, það er að vísu seint á ferðinni, og þá er að líta á hvað helst þarf að athuga, hvað helst þarf að lagfæra. Herra forseti, það er nú komin nótt og nýr dagur svo að ég skal ekki fara langt út í einstök atriði þessa máls. En ég bendi á að það voru miklar og harðar umræður um þetta viðkvæma mál í hv. Ed. og satt að segja ekki að undra þó að margir vilji láta skoðun sína í ljós um þessi efni.
Ég ætla að benda á örfá atriði þar sem ég tel að bæta megi úr ágöllum að fenginni reynslu. Þá eru það fyrst smábátarnir sem mikið hefur verið rætt um hér í kvöld. Ég tel að við verðum að hlynna að smábátaútgerðinni. Þeir hafa fengið að vera tiltölulega frjálsir á undanförnum árum og þeir eiga það skilið, enda er það svo að ég heyri það sem betur fer að þeir eiga mjög marga góða, trausta, einlæga en kannski nokkuð orðmarga vini hér í röðum hv. alþm. í kvöld. Og það er vonandi að þeir standi við sín góðu orð.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa vini mína á smábátunum. En ég vil aðeins nefna eitt enn. Ég tel að það þurfi að líta ja, ég vil segja í miskunn til þeirra örfáu manna sem lentu í því að missa báta sína þegar kvótareglurnar skullu yfir og hafa frá þeirri stundu verið hálf vegavilltir á þurru landi. Ég tel að þó að horft yrði á erindi þessara manna mundi það ekki valda neinum straumhvörfum til óheilla í þessum efnum. Hitt er annað mál að það er kannski erfitt að taka þá og telja upp nöfn þeirra í löggjöf eins og reynt var að gera í hv. Ed. Það er miklu nær að setja einhverja reglu sem hæstv. sjútvrh. getur notað í þessum efnum. Að vísu hefur hann miklar og margvíslegar heimildir skv. þessum lögum, en bæði hann og við allir verðum að vita að það er ómögulegt að setja algjörlega undantekningarlausar og almennar reglur sem hæfa hvaða tilvikum sem kunna að bera að höndum.
Þá finnst mér að þessi mál séu enn í það mikilli deiglu, enn þá það skiptar skoðanir manna á meðal að það nægi alveg að þetta frv. eða þau lög sem sett verða gildi í tvö ár.
Allir vitum við það, og ég ætla ekki að eyða tíma í að ræða frv. sjálft lið fyrir lið, en við vitum það allir að við verðum að komast að einhverri niðurstöðu í þessu máli. Það er ekki hægt að vísa neinu máli frá með þeim rökum að það sé svo erfitt eða jafnvel óleysanlegt. Stjórn og skipulag verður að vera á fiskveiðum. Það eru allir alþm. sammála um. Og síðast var það tekið mjög skýrt fram af hv. 1. þm. Vestf. hér áðan.
Nú siglir þetta frv. að lokinni þessari umræðu til hv. sjútvn. Þar er í forsæti títtnefndur hv. 1. þm. Vestf.og fyrrum. sjútvrh. Það er von mín að hv. nefnd athugi þetta stórmál, reyni að ná samkomulagi og finni leiðir sem flestir geta við unað.