28.12.1987
Neðri deild: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3307 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)
181. mál, stjórn fiskveiða
Forseti (Jón Kristjánsson):
Varðandi orð síðasta ræðumanns skal tekið fram að það hefur verið kynnt sú ætlun að ljúka þessari umræðu um stjórn fiskveiða og koma málinu til nefndar. Þingflokksformönnum mun hafa verið kunnug sú ætlan að atkvæðagreiðsla um þetta mál yrði á morgunfundi og það mundi takast að ljúka umræðu á fundi nú, enda er langt liðið á 1. umr. Þó að enn séu þrír á mælendaskrá hefur verið almenn þátttaka í þessum umræðum, eins og hv. 2. þm. Austurl. tók fram, en hv. þm. hafa yfirleitt ekki haldið ýkja langar ræður í málinu. Þannig má ætla að 1. umr. geti lokið á skikkanlegum tíma ef ræður hv. þm. verða ekki lengri en þær hafa verið hingað til.
Það var ætlunin og er að taka fyrir 1. mál á dagskrá, en þar var umræða hafin, þ.e. um söluskatt, og þar eru ekki margir á mælendaskrá þó að auðvitað geti alltaf bæst við. Þetta var hv. þm. kunnugt. Ég þarf ekki að tíunda þann tímaskort sem er í þessari hv. deild og mörg stór verkefni bíða.
Þetta vildi ég taka fram. Fjarvistir hv. þm. eru ekki með mínu leyfi og ef á þarf að halda að kalla þá til þessarar umræðu er ekkert því til fyrirstöðu að það verði gert.