29.12.1987
Efri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3328 í B-deild Alþingistíðinda. (2335)

206. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðmundur Ágústsson:

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir meiri hlutann af því sem hér hefur verið sagt varðandi það frv. sem er til umræðu. Það sem knúði mig mest upp var brtt. frá hv. 7. þm. Reykv. um persónulega eyðslu, risnu á fyrirtæki o.fl. Hann fullyrðir að hér séu tvær stéttir, önnur stéttin hinn almenni launþegi og hin stéttin sjálfstæðir atvinnurekendur sem geti sett ýmsa persónulega eyðslu á fyrirtækin sín.

Ég hef átt sjálfur við nokkuð mikið af skattframtölum og get staðfest hér að það er þó nokkuð mikið til í því sem hv. þm. segir. En hins vegar er spurningin: Hvernig er hægt að koma í veg fyrir þetta? Þó svo við setjum eitthvað í lagatexta um að þetta megi ekki eða annað megi virðist því miður alltaf vera hægt að koma sér undan nema með mjög virku eftirliti. Þegar það er ekki til staðar sér maður ekki beint tilganginn með þessu.

Það eina sem ég hef orðið var við hvað snertir skattframtöl er að sá liður sem heitir risna hjá fyrirtækjum er athugaður en ekki aðrir liðir. Þess vegna hefur verið lenska bæði hjá lögmönnum og endurskoðendum að færa þennan risnulið mjög lágt niður en hins vegar að bæta við aðra liði, eins og t.d. ferðakostnað, mat starfsfólks og eitthvað svoleiðis, færa persónulega eyðslu undir þá liði. Niðurstaðan af þessu er sú að það þyrfti að fara gagngert ofan í bókhald fyrirtækja til að sjá hvar hver liður á heima.

En svo að maður fari ofan í frv. sem slíkt, þá fagna ég 3. gr., að það skuli ekki vera núna gerður greinarmunur á fjármögnunarleigu eða kaupleigu og fjárfestingum með öðrum hætti með lánum. Eins og reglurnar voru var mjög hagkvæmt að kaupa lausafé, bíla o.fl., á kaupleigu og var hægt að færa þetta allt til frádráttar. Hér er verið að taka fyrir þennan leka. Hins vegar mætti líka velta fyrir sér að mörg þeirra viðskipta sem fóru fram t.d. á síðasta ári voru gerð í þeim tilgangi að fá þann frádrátt sem lögin þáverandi heimiluðu og eru þá kannski með þessum lögum brostnar forsendur fyrir því.

Hér varð tíðrætt um tapaðar viðskiptaskuldir og ég verð að segja að mér finnst að þessi heimild þurfi að vera í lögum. Það er þannig að það er alveg ljóst að mörg fyrirtæki verða fyrir verulegum skakkaföllum vegna lánsviðskipta og tekur oft mjög langan tíma að innheimta margar skuldirnar, bæði vegna gjaldþrota og út af því að viðkomandi aðilar, sem hafa stofnað til skuldbindinga við fyrirtækin finnast ekki. Mér finnst sanngjarnt gagnvart fyrirtækjunum að þau geti haft þennan frádráttarlið.

Varðandi tekjuskattsstofninn má segja að það sé vissulega „lapsus“ í þessum lögum að það er verið að lækka þarna tekjuskatt fyrirtækja um 6% og þar fyrir utan að þetta heldur áfram að vera eftirágreiddur skattur á meðan skattur hækkar á einstaklingum. Þetta aftur á móti kemur á móti þeim auknu tekjum sem ríkið hefur af þessum breytingum.

Ég sé ekki að í þessu frv. séu neinar stórvægilegar breytingar á tekju- og eignarskatti fyrirtækja, en tel raunar að þær tekjur sem ríkisstjórnin áætlar að afla með af þessu séu allt of lágt metnar, enda er grunnurinn að ég tel mjög veikur þar sem þetta eru stærðir sem erfitt er að henda reiður á.